Fréttablaðið - 16.06.2015, Qupperneq 10
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
www.odalsostar.is
TINDUR
OSTUR ÚR SKAGAFIRÐINUM
Þessi bragðmikli meðlimur Óðalsfjölskyldunnar
er framleiddur í Skagafirði og nefndur eftir
fjallinu Tindastól. Tindur er einstakur ostur sem
fengið hefur drjúgan þroskunartíma þar til hinu
einkennandi þétta bragði hefur verið náð.
Óðals Tindur er sérstaklega bragðmikill, hæfir
við ýmis tækifæri og er dásamlegur einn og sér.
Tindur parast vel með sterku bragði enda lætur
hann fátt yfirgnæfa sig.
BRETLAND Meira en fjórar millj-
ónir manna hafa hrakist frá Sýr-
landi frá því vopnuð átök þar hófust
vorið 2011. Langflestir þeirra haf-
ast nú við í fimm nágrannaríkjum
Sýrlands, sem eru að sligast undan
vandanum.
„Flóttamannavandinn er eitt
helsta verkefni 21. aldarinnar, en
viðbrögð alþjóðasamfélagsins hafa
verið til skammar,“ segir Shalil
Shetty, framkvæmdastjóri mann-
réttindasamtakanna Amnesty Int-
ernational, í tilefni af útgáfu nýrrar
skýrslu um ástandið. „Umheimurinn
getur ekki lengur setið hjá og fylgst
með löndum á borð við Líbanon og
Tyrkland taka á sig þetta stórar
byrðar.“
Samtökin segja nauðsynlegt að
stokka rækilega upp í þeim leiðum,
sem alþjóðasamfélagið svonefnda
hefur farið til þess að bregðast við
vandanum. Móta þurfi nýja stefnu
og stunda önnur vinnubrögð en hing-
að til.
Meðal annars leggja samtökin
til að stofnaður verði alþjóðlegur
flóttamannasjóður, sem gæti veitt
myndarlegan stuðning til þeirra
ríkja sem taka við mörgum flótta-
mönnum. Þá þurfi að efna til alþjóð-
legrar ráðstefnu þar sem einkum
verði horft til ábyrgðar ríkja heims
og leiða til að taka í sameiningu á
vandanum.
Samtökin segja að leiðtogar
helstu ríkja heims hafi í raun dæmt
milljónir flóttamanna til þess að
búa við óbærilegar aðstæður og
þúsundir manna til dauða með því
að útvega ekki nauðsynlega mann-
úðarvernd.
Tilboð framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins um að taka við 20
þúsund flóttamönnum til viðbótar,
sem fái hæli í löndum sambandsins,
er engan veginn nóg til þess að slá
á vandann.
Engar líkur virðast á því að þær
milljónir flóttamanna, sem hrakist
hafa frá Sýrlandi, geti snúið þangað
aftur á næstu misserum. Samtökin
segja að alþjóðasamfélaginu beri
skylda til að sinna þessum flótta-
mönnum. Alltof fáum þeirra hafi
boðist hæli og mikið vanti upp á að
óskum mannúðarsamtaka um fjár-
mögnun aðgerða hafi verið sinnt.
Að mati Amnesty International
er þörfin slík, að 300 þúsund flótta-
menn þurfi að fá hæli í öðrum lönd-
um á ári hverju næstu fjögur árin.
gudsteinn@frettabladid.is
Segja ríki heims þurfa að
stofna flóttamannasjóð
Mannréttindasamtökin Amnesty International segja ríki heims hafa brugðist illilega gagnvart flóttamanna-
vandanum, sem nú er orðinn verri en þekkst hefur frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Fimm nágrannalönd Sýr-
lands eru að sligast undan vandanum og engar líkur á því að flóttafólkið geti snúið aftur til Sýrlands í bráð.
HANDAN
GRYFJUNN-
AR Kúrdar
í norðan-
verðu Sýr-
landi bíða við
landamæri
Grikklands í
von um að
komast yfir
gryfjuna, sem
skilur á milli.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
● Meira en 50 milljónir manna í heiminum eru á vergangi innan eða utan
heimalands síns.
● Meira en helmingur íbúa Sýrlands hefur hrakist að heiman.
● 4 milljónir Sýrlendinga hafa hrakist úr landi.
● 95 prósent flóttafólks frá Sýrlandi eru nú í fimm löndum: Tyrklandi,
Líbanon, Jórdaníu, Írak og Egyptalandi.
● Meira en 3 milljónir þeirra eru í Tyrklandi og Líbanon.
● 1 af hverjum 5 íbúum Líbanons er flóttamaður frá Sýrlandi.
● Önnur lönd hafa boðist til þess að taka við 90 þúsund flóttamönnum frá
Sýrlandi, sem eru aðeins 2,2 prósent flóttafólks í þessum heimshluta.
● 33 prósent þeirra flóttamanna sem koma yfir Miðjarðarhafið til Evrópu
eru frá Sýrlandi.
● 1.865 flóttamenn hafa látið lífið á leiðinni yfir Miðjarðarhafi það sem
af er þessu ári, en 3.500 á síðasta ári.
● 166 þúsund manns var bjargað til Ítalíu á síðasta ári.
● 3 milljónir flóttamanna koma frá átakasvæðum sunnan Sahara, í
löndum á borð við Suður-Súdan, Sómalíu og Mið-Afríkulýðveldið.
Flóttamannavandinn í tölum
EFNAHAGSMÁL „Þeir hafa verið mjög
áhugasamir um efnahagsbatann
á Íslandi og það hafa einhverjir
nærri honum [Tsipras] áður haft
samband til að grennslast fyrir
um þessi mál,“ segir Steingrímur
J. Sigfússon, fyrrverandi fjármála-
ráðherra.
Hann segir ekkert formlegt sam-
starf vera á milli Vinstri grænna
og Syriza en fólk á vinstri hliðinni í
Evrópu hittist reglulega.
„Ég var þarna á Grikklandi fyrir
ári á tveggja daga ráðstefnu til að
tala um þessi efnahagsmál. Þar tók
ég meðal annars þátt í pallborði
með Tsipras og ég hef hitt hann
nokkrum sinnum. Við erum hvor
öðrum kunnugir.“
The Telegraph greindi frá því á
sunnudaginn að áhugi væri meðal
þingmanna Syriza á að fara svokall-
aða íslenska leið við að glíma við
skuldavanda Grikklands.
Fundir leiðtoga Grikklands og
Evrópusambandsins báru engan
árangur um helgina en í lok mán-
aðar gjaldfellur 1,5 milljarða evra
lán frá AGS til Grikklands.
Alexis Tsipras neitar að verða við
lánaskilyrðum Evrópusambandsins
sem fela meðal annars í sér að skera
niður í lífeyriskerfinu.
Steingrímur segir að fulltrúar
innan Syriza hafi verið áhugasam-
ir um íslensku leiðina fyrir stjórn-
arskipti í Grikklandi en hann varar
við því að fólk standi í of miklum
samanburði.
„Ég set á það mikla fyrirvara.
Eins og ég hef sagt að þá er þetta
algerlega ósambærilegt. Það getur
verið áhugavert og gagnlegt að bera
saman bækur en að yfirfæra lausn-
ina er allt annar handleggur.“ - srs
Alexis Tsipras sýndi bata í íslensku efnahagslífi mikinn áhuga á ráðstefnu vinstri flokka í Aþenu í fyrra:
Segir íslensku leiðina ekki til samanburðar
STEINGRÍMUR
J. SIGFÚSSON
ALEXIS
TSIPRAS
FÉLAGSMÁL Tæplega 26 þúsund
Íslendingar skrifuðu undir áskor-
un til Sameinuðu þjóðanna um að
auka skilning á virkni taugakerf-
isins.
Undirskriftalistinn verður
afhentur Ban Ki-moon, aðalritara
Sameinuðu þjóðanna.
Áskorunin er hluti af átakinu
„Stattu með taugakerfinu“ sem
vakið hefur athygli hérlendis síð-
astliðnar fjórar vikur.
Taugaskaði er ein helsta
ástæða fötlunar í heiminum. - snæ
Skora á Ban Ki-moon:
Auka vitund
um taugaskaða
DÓMSMÁL Tveir menn hafa verið
ákærðir fyrir fjársvik og blekk-
ingu við innflutning á 7.224 flösk-
um af sterku áfengi árið 2012.
Mennirnir eru sakaðir um að
hafa flutt áfengið inn á nafni Vín-
heima ehf. en síðar stílað reikn-
ing á félagið Valís ehf. Annar
hinna ákærðu fékk áfengið toll-
afgreitt og ráðstafaði því þannig
að ekkert af andvirði áfengisins
rann til síðarnefnda félagsins.
Með þessu fengu mennirnir
greiðslufrest á kröfu tollsins.
Krafan nam rúmum 26 milljónum
króna.
Málið var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Menn-
irnir neituðu báðir sök. - snæ
Reyndu að blekkja tollinn:
Fluttu inn vín
og voru ákærðir
VÍN Allt áfengið sem flutt var inn var
37,5 prósent að styrk. NORDICPHOTOS/GETTY
NEYTENDUR Neytendastofa hefur
sektað þrjú bakarí, um samtals
275 þúsund krónur, vegna ónógra
verðmerkinga. Stofnunin skoðaði
ástand verðmerkinga í fjölda bak-
aría í febrúar og apríl.
Þau fyrirtæki sem höfðu gripið
til aðgerða og lagað verðmerking-
ar sínar fyrir neytendur sluppu
við sektargreiðslur. Sveinsbakarí,
Fjarðarbakarí og Bakarameistar-
inn höfðu hins vegar ekki gætt að
sér og þurfa því að greiða sekt í
ríkissjóð. - sa
Verðmerkingar í ólagi:
Neytendastofa
sektar bakarí
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
C
-9
B
2
C
1
6
2
C
-9
9
F
0
1
6
2
C
-9
8
B
4
1
6
2
C
-9
7
7
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K