Fréttablaðið - 16.06.2015, Síða 18
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
FRÁ DEGI
TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR:
Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is.
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
Það er draumur hvers manns að hrinda
hugmyndum sínum í framkvæmd. Öll
fáum við hugmyndir sem okkur langar
til að verði að veruleika en aðeins brot
af öllum þeim birtist okkur í raunveru-
leikanum. Allir stjórnmálamenn eiga sér
drauma og setja þá fram í von um fylgi
við málstað sinn. Eitt er að setja fram
hugmynd og eiga drauma en hitt að sjá
málstað sinn verða að veruleika.
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar tók við völdum fyrir tveimur
árum og ljóst að margt hefur áunnist á
þeim tíma, unnið að öðru og ýmislegt sem
betur mátti fara. Það breytir því ekki að
einu stærsta hagsmunamáli þjóðarinn-
ar hefur verið hrint í framkvæmd og til
stendur losun gjaldeyrishafta. Slíkt var
draumur og hugmyndir margra stjórn-
málamanna.
Stór orð um losun gjaldeyrishafta féllu
fyrir alþingiskosningar árið 2013. Þau orð
standa. Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs
hefur komið hugmyndum margra stjórn-
málamanna og draum annarra í fram-
kvæmd. Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs
hyggst verja hagsmuni þjóðarinnar með
hagsmuni allra að leiðarljósi en ekki sér-
hagsmuni. Hótun um stöðugleikaskatt
tryggir stöðu stjórnvalda og þrýstir á
kröfuhafa að fallast á skilyrði stjórn-
valda. Þessi leið er skynsamleg og leiðir
til jafnvægis í kerfinu. Leið sem á sér
ekki fordæmi í samtímanum og út fyrir
hefðbundnar leiðir í efnahagsmálum. Sig-
mundur Davíð forsætisráðherra reynist
því maður orða sinna, stóru orðanna sem
aðra stjórnmálamenn dreymdi og höfðu
hugmyndir um. Stóru orðin standa sama
hvaða skoðun og viðhorf fólk hefur.
Þessi áætlun felur í sér mikil tímamót
og eftir mikla vinnu forsætis- og fjár-
málaráðuneytis, Seðlabanka Íslands og
ýmissa sérfræðinga hefur henni verið
hrint í framkvæmd.
Hugmynd sett í framkvæmd
– stóru orðin standa
➜ Stór orð um losun gjaldeyris-
hafta féllu fyrir alþingiskosningar
árið 2013. Þau orð standa. Ríkis-
stjórn Sigmundar Davíðs hefur
komið hugmyndum margra stjórn-
málamanna og draum annarra í
framkvæmd.
STJÓRNMÁL
Hjálmar Bogi
Hafl iðason
þingmaður Fram-
sóknarfl okks
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun. is www.sorg. is sorg@sorg. is
Opið hús hjá Nýrri dögun, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð
þriðja fimmtudag hvers mánaðar kl. 20:00
í Safnaðarheimili Háteigskirkju neðri hæð.
18. júní, 16. júlí og 20. ágúst
Opið hús er vettvangur fyrir syrgjendur til að deila reynslu
sinni með öðrum sem eru í sömu sporum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sorgin
fer ekki í sumarfrí
Sáttur við grínið
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra lét ekki slá sig út af laginu
þegar netmiðlarnir birtu í gær popp-
lag sem hafði verið samið við ræðu
ráðherrans á föstudaginn. Popplagið
vakti mikla hrifningu hjá ráðherr-
anum sjálfum sem velti upp þeirri
spurningu hvort þarna væri kominn
sumarsmellurinn í ár. Það voru
Þorsteinn Baldvinsson og
fréttavefurinn Nútíminn
sem stóðu að gerð mynd-
skeiðsins. Smellurinn
fylgir í kjölfarið á lagabút
sem sömu aðilar gerðu
um Sveinbjörgu Birnu og
á þessari stundu ku vera
alls óvíst hvort fleiri fylgi
í kjölfarið.
Tónlistarferill fram undan?
Miðað við niðurstöður skoðanakann-
ana upp á síðkastið er útlit fyrir að
Gunnar Bragi vermi ekki ráðherra-
sætið mikið lengur en út þetta
kjörtímabil. Miðað við útkomuna á
fyrrgreindu myndskeiði er auð-
vitað spurning hvort Gunnar Bragi,
Þorsteinn og Nútíminn geti tekið
höndum saman og byggt upp alvöru
tónlistarferil. Gunnar Bragi á
Secret Solstice 2017 er auð-
vitað eitthvað sem mætti velta
fyrir sér.
Útúrsnúningur
Að öðru og öllu
alvarlegra máli,
því eðli málsins
samkvæmt hefur
mikið verið rætt um lagasetningu á
verkfall BHM og hjúkrunarfræðinga.
Ekki síst eftir að Þórunn Svein-
bjarnardóttir, formaður BHM, hefur
boðað málssókn vegna ólögmætrar
lagasetningar. En það er merkilegt
hvernig stundum tekst að afbaka
umræðuna og snúa henni upp í
eitthvað sem engu máli skiptir.
Þannig hefur verið reynt að halda því
fram að lagasetningin sé einhvers
konar árás á konur. Með sömu
rökum hefði kannski mátt reyna
að sannfæra mann og annan um
að lögin sem sett voru á verkfall
starfsmanna Herjólfs á sínum
tíma hafi verið atlaga að
miðaldra karlmönnum. En
auðvitað datt engum það í
hug. jonhakon@frettabladid.is
M
erkilega lítið fór fyrir Kristjáni Þór Júlíussyni, ráð-
herra heilbrigðismála, í aðdraganda lagasetningar
á verkföll Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og
aðildarfélaga BHM. Svo lítið að hann flutti ekki einu
sinni frumvarpið, heldur kollegi hans í sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðuneytinu. Það er merkilegt að metnaðargjarn
stjórnmálamaður skuli láta setja sig jafn freklega til hliðar og
Kristján Þór gerði í þessu máli, sem ber annaðhvort vott um yfir-
náttúrulega auðmýkt eða tilhneigingu til að skorast undan ábyrgð.
Skýrsla landlæknis um stöðuna
er grundvallarplaggið sem liggur
undir röksemdum ríkisstjórnar-
innar fyrir lagasetningunni og
á máli ráðherra og stjórnarliða
má ljóst vera að það er fyrst
og fremst hagur sjúklinga sem
þeir segjast bera fyrir brjósti.
Hvernig stendur þá á því að
ráðherra þeirra málaflokks stendur ekki fyrir aðgerðum sem munu
hafa bein áhrif á hans eigin málaflokk?
Kristján Þór var spurður út í það á Alþingi í gær hvernig hann
hygðist bregðast við þeirri grafalvarlegu stöðu að fjölmargir
hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp og æ fleiri boðað uppsagnir, að
yfirmenn heilbrigðisstofnana segja hrun yfirvofandi í íslenska heil-
brigðiskerfinu.
„Þetta er sá veruleiki sem stofnanir okkar í kerfinu standa
frammi fyrir,“ sagði ráðherra, „með því er ég á engan hátt að vísa
allri ábyrgð á þessari stöðu yfir til stofnana.“ Nei, ekki að fullu,
segir ráðherra, sem er þá að viðurkenna að hann geri það að ein-
hverju leyti. Æðsti yfirmaður heilbrigðiskerfisins ætti kannski
frekar að tala sem ráðherra í ríkisstjórn allrar þjóðarinnar, tala um
vanda heilbrigðiskerfisins sem vanda okkar allra, ekki einhverra
stofnana sem hægt er að gera embættismenn ábyrga fyrir.
Þegar Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, ræddi fjárveitingar
til heilbrigðismála í gær, hvort þær væru nægar, hvort þyrfti að
bæta í, kallaði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra úr sæti sínu
að það væri Alþingi sem færi með fjárlagavaldið. Þetta er athyglis-
verð yfirlýsing frá manninum sem í raun fer með samningsumboð
við alla ríkisstarfsmenn, en framselur nefnd það umboð.
Hvað átti fjármálaráðherra við með framíkallinu? Er hann að
biðla til Alþingis um að fólk þar taki sig nú til og semji við hjúkr-
unarfræðinga? Leysi vandann í heilbrigðiskerfinu? Hefði ekki verið
nær að hann og sessunautur hans í þingsal, Kristján Þór Júlíusson,
ráðherra heilbrigðismála, ræddu þau mál, frekar en að hrópa að
þingmanni Pírata að hann og félagar hans hefðu fjárveitingavaldið?
Lagasetning sem afnemur verkfallsrétt er grafalvarlegt mál. Að
reyna að skjóta sér undan ábyrgðinni á afleiðingum hennar er ekki
síður alvarlegt mál. Forsætisráðherra sá sér ekki einu sinni fært að
vera viðstaddur atkvæðagreiðslu um málið.
Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands geta ekki látið eins og þeir
séu hlutlausir áhorfendur. Þeir verða að taka ábyrgð á gjörðum
sínum. Ef það vantar fjármuni í heilbrigðiskerfið er það á ábyrgð
ráðherranna. Ef starfsfólk ríkisins segir upp í hrönnum vegna
óánægju er það á ábyrgð ráðherranna. Ef heilbrigðiskerfið ónýtist
er það á ábyrgð ráðherranna.
Ráðherrar verða að taka ábyrgð á eigin gjörðum:
Hlutlausir áhorf-
endur eigin verka
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
D
-B
E
7
C
1
6
2
D
-B
D
4
0
1
6
2
D
-B
C
0
4
1
6
2
D
-B
A
C
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K