Fréttablaðið - 16.06.2015, Page 20
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 20
Í umræðu um fyrirhugaða
sólarkísilverksmiðju Sil-
icor á Grundartanga hafa
komið fram spurningar er
varða Silicor-ferlið, fram-
leiðsluferlið sem verksmiðj-
an mun byggja á. Þær hafa
meðal annars snúið að því
hvort reynsla og prófanir á
ferlinu séu fullnægjandi til
að byggja á jafn stóra verk-
smiðju og áætlað er.
Rótgróin vísindi
Silicor-ferlið byggir á vís-
indaþekkingu sem á rætur
sínar að rekja til ársins 1833 þegar
Hugh Lee Pattinson fann upp
aðferð til þess að vinna silfur úr
blýi. Fyrstu hugmyndir um að nota
„Pattinson-ferlið“ til að hreinsa
kísil úr áli, með aðferð sem líkist
Silicor-ferlinu, komu fram á sjötta
áratug síðustu aldar og síðan aftur
á áttunda og níunda áratugnum.
Út frá vísindalegu sjónarmiði hafa
þær hreinsunaraðferðir sem notað-
ar eru í Silicor-ferlinu verið þekkt-
ar lengi og eru sannreyndar á sviði
málmvinnslu.
250 mannár í rannsóknir og þróun
Silicor varð til við samruna tveggja
fyrirtækja, fyrirtækis sem sér-
hæfði sig í hreinsunartækni og
fyrirtækis sem sérhæfði sig í fram-
leiðslu sólarhlaða. Þessi sam-
eining ásamt um 250 mann-
árum í rannsóknum og þróun
auk 33 milljarða kr. fjárfest-
ingar gerði Silicor kleift að
bæta margreyndar aðferðir
til þess að hanna ferli til að
hreinsa kísil til notkunar í
sólarhlöðum.
Öflugt 25 manna teymi
hefur starfað á vegum Silicor
í sjö ár við þróun ferlisins. Í
fyrstu verksmiðju Silicor,
sem reist var í Kanada árið
2006, störfuðu 150 manns
og þar hafa verið framleidd
meira en 700 tonn af sólarkísli.
Framleiðsla verksmiðjunnar hefur
verið seld á almennum markaði til
stórra, rótgróinna og viðurkenndra
framleiðenda sólarhlaða til fram-
leiðslu yfir 20 milljóna sólarhlaða.
Framleiðsla verksmiðjunnar hefur
frá upphafi verið undir eftirliti
verkfræðingateyma í Ontario, Kali-
forníu og Berlín.
Það eru viðskiptavinir okkar sem
gera hörðustu kröfurnar og þeir
hafa gert afar krefjandi prófanir
á sólarkíslinum okkar til þess að
tryggja að sólarhlöðin sem fram-
leidd eru uppfylli fyllstu gæða-
kröfur. Þessar prófanir hafa stað-
fest með óyggjandi hætti að okkar
framleiðsla uppfyllir allar kröfur
og bíða viðskiptavinir nú í ofvæni
eftir framleiðslunni. Að auki
hefur tækni Silicor farið í gegn-
um röð tæknilegra áreiðanleika-
kannana hjá mörgum alþjóðlega
viðurkenndum verkfræðifyrir-
tækjum, þar á meðal CH2MHILL,
Hatch og McLellan. Tæknin hefur
einnig verið rækilega rannsök-
uð af stærstu birgjum okkar, þar
á meðal hjá alþjóðlega tækja- og
verksmiðjuframleiðandanum SMS
Siemag.
Líta má á verksmiðju Silicor
á Íslandi sem þrjár minni verk-
smiðjur, hlið við hlið. Fjórum til
fimm sinnum stærri en uppruna-
lega verksmiðjan okkar í Kanada.
Tækni okkar byggir á ferli, sem
krefst einungis hefðbundins búnað-
ar sem er algengur og margreynd-
ur í málmiðnaði og er það þýska
fyrirtækið SMS Siemag, sem á sér
langa sögu í málmiðnaði, sem mun
sjá verksmiðju okkar á Grundar-
tanga fyrir honum.
Þekking og reynsla
Fyrir liggur að Silicor-ferlið bygg-
ir á áratuga rannsóknum og þróun
auk þess sem á grunni þess hefur
verið framleiddur sólarkísill sem
notaður hefur verið í sólarhlöð um
allan heim. Á grunni viðamikillar
þekkingar og reynslu Silicor og
samstarfsaðila verður verksmiðj-
an á Grundartanga byggð og rekin
á traustan og öruggan máta.
Vísindin að baki Silicor
Bók Mary Wollstonecraft
Réttlæting fyrir réttindum
kvenna sem kom út árið
1792 og Kúgun kvenna
eftir John Stuart Mill sem
kom út árið 1869 höfðu
mikil áhrif meðal kvenna
í Evrópu og víðar um heim
og vakti konur til umhugs-
unar um hin bágu kjör
þeirra og réttindaleysi.
Kvenrithöfundar, bækur
þeirra og bæklingar juku
einnig á vitund kvenna
um hve léleg réttarstaða þeirra
var. Nokkrar konur voru óháðar
körlum þar sem þær voru ógiftar,
voru kennarar, ráku greiðasölu
eða verslun og greiddu skatta til
samfélagsins. Barátta kvenna á
Norðurlöndum fyrir kosningarétti
hófst á seinni hluta 19. aldar. Nor-
egur var fyrsta fullvalda
ríkið til að veita konum
kosningarétt árið 1913.
Ástralía og Nýja-Sjáland
höfðu veitt konum kosn-
ingarétt áður en þau ríki
voru hins vegar í Breska
heimsveldinu og Finnar,
sem veittu konum kosn-
ingarétt árið 1906 voru
á þeim tíma stórhertoga-
dæmi undir stjórn Rússa-
keisara. Í Danmörku og á
Íslandi fengu konur kosn-
ingarétt árið 1915 og í Svíþjóð árið
1919.
Konur fengu almennt að kjósa
fyrr í sveitarstjórnarkosningum
en til þjóðþinga. Konur þurftu að
berjast lengi til að fá þessi sjálf-
sögðu mannréttindi og oft fylgdi
ekki kjörgengi um leið. Karlar
höfðu ekki heldur allir rétt til að
kjósa þar sem kosningaréttur var
oft háður aldri, búsetu, eignum,
skattgreiðslum og stétt. Konur
sem greiddu skatta eða voru í iðn-
aðarmannagildum í Finnlandi og
Svíþjóð fengu takmarkaðan kosn-
ingarétt á árunum 1718-1771 en þá
var hann afnuminn. Árið 1862 gátu
sænskar konur sem greiddu skatta
kosið en það voru aðallega ógift-
ar konur eða ekkjur. Árið 1906
gátu giftar konur kosið til bæjar-
stjórna í Svíþjóð og árið 1909 gátu
allar konur kosið í bæjarstjórnar-
kosningum.
Árið 1863 fengu ógiftar konur
og ekkjur í Noregi að kjósa ef
þær voru eldri en 30 ára og væru
myndugar. Árið 1898 höfðu allir
karlar fengið kosningarétt og
konur fengu rétt til að kjósa til
sveitarstjórna. Noregur varð
sjálfstætt konungsríki árið 1905
og tveimur árum síðar gátu konur
sem voru eldri en 25 ára gamlar
og áttu eignir eða greiddu skatta
kosið í bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningum og boðið sig fram til
þings. Kjörgengi þeirra var því
víðtækara en kosningarétturinn
sem þær fengu árið 1913.
Þegar Danir sömdu nýja
stjórnar skrá árið 1849 fengu þeir
karlar kosningarétt sem voru
orðnir 30 ára gamlir og áttu eigið
heimili og höfðu hvorki verið
vinnuhjú eða þegið fátækrahjálp.
Danskar konur gátu kosið til
sveitar stjórna árið 1908 ef þær
voru orðnar 25 ára gamlar eða
eldri og greiddu skatta eða eigin-
menn þeirra. Fyrstu konurnar sem
settust á þing á Norðurlöndunum
voru 19 finnskar konur sem kosn-
ar voru árið 1907. Ein kona settist
á þing í Noregi árið 1911 og árið
1918 settust níu konur á danska
þingið og þremur árum síðar voru
fimm konur kosnar á þing Svía.
Fyrsti norræni kvenráðherrann
var Nina Bang sem settist í ríkis-
stjórn í Danmörku árið 1924 og
varð hún menntamálaráðherra.
Kosningaréttur kvenna á Norðurlöndunum
Í þessari viku eru rétt-
ar átta aldir liðnar frá því
Magna Carta var samið,
eitt mikilvægasta lagaskjal
allra tíma. Það er mikið í
það vitnað (reyndar oft á
rangan hátt) og því haldið
á lofti sem einum af horn-
steinunum í þróun hins
vestræna réttarríkis. Nel-
son Mandela, Thomas Jef-
ferson, Winston Church ill
og ótal aðrir hafa sótt inn-
blástur í þennan merka miðalda-
texta. Magna Carta var innsigl-
að hinn 15. júní 1215. Markaði sá
atburður fyrsta áfangann að þróun
þingræðis í Bretlandi og skjalfest-
um réttindum einstaklings-
ins, sem er grunnurinn að
gildum okkar og mörgum
þeirra stjórnarskrárbundnu
réttinda sem breskir borg-
arar njóta nú á dögum.
En hvað er svona merki-
legt við skjal, sem ritað var
nærri þremur öldum eftir
að Alþingi Íslendinga var
stofnað? Hvað átti sér stað
þegar Jóhann I., þáver-
andi Englandskonungur, og
nokkrir óstýrilátir aðalsmenn söfn-
uðust saman á afskekktum grasvelli
í Suður-Englandi? Í stuttu máli sagt
voru þeir að reyna að útkljá ágrein-
ingsmál sín. Barónarnir voru reiðir
konungi vegna þess sem þeir töldu
ósvífna skattheimtu og hneigð kon-
ungs til að stela landi þeirra og
drepa óvini sína. Jóhann konungur
var ekki þekktur fyrir löghlýðni.
Reyndar taldi hann sig sjálfan
standa ofar lögunum. Einmitt þarna
lá vandinn. Í augum barónanna
hafði konungurinn gengið enda-
laust á rétt þeirra árum saman og
nú vildu þeir sjá breytingar.
Magna Carta – eða „Samningur-
inn mikli“ – var um 3.500 orða lang-
ur latneskur texti sem setti völdum
konungs skorður. Sumir sagnfræð-
ingar hafa skemmt sér við að gera
lítið úr ýmsum ákvæðum Magna
Carta, en fáein ákvæði hafa sannar-
lega staðist tímans tönn, ekki síst
þetta: „Engan frjálsan mann má
handtaka, fangelsa, svipta eigum
sínum eða gera útlægan, né eyði-
leggja á nokkurn hátt, […] nema að
undangengnu réttarhaldi jafningja
sinna eða hann sé dæmdur að lands-
lögum.“ Og: „Engum munum vér
selja né neita um rétt eða réttmætt
réttarhald.“
Með nokkrum pennastrikum
höfðu hinar hatrömmu deilur kon-
ungs og landeignaraðals Englands
fætt af sér grundvallarreglu réttar-
ríkisins og þá meginreglu að enginn
væri ofar lögunum – ekki einu sinni
konungurinn.
Átta öldum síðar er ánægjulegt
að geta haldið því til haga að þess-
ar meginreglur eru í heiðri hafðar
enn í dag í löndum okkar. Við deilum
þessum gildum og vinnum saman að
því að viðhalda þeim.
Um leið og ég óska lesendum til
hamingju með afmælisviku Magna
Carta vil ég hvetja þá til að kynna
sér ítarefni á samfélagsmiðlagátt-
um sendiráðsins á Facebook og
Twitter, UkinIceland.
Magna Carta í 800 ár
➜ Öfl ugt 25 manna teymi
hefur starfað á vegum Silicor
í sjö ár við þróun ferlisins.
IÐNAÐUR
Alain Turenne
tæknistjóri Silicor
Materials
Clemens
Hofbauer
framkvæmdastjóri
rekstrar Silicor
Materials
dr. Matthias
Hauer
veitir
rannsóknamiðstöð
Silicor í Berlín
forstöðu
RÉTTARRÍKI
Stuart Gill
sendiherra Bret-
lands á Íslandi
➜ Magna Carta – eða
„Samningurinn mikli“ –
var um 3.500 orða langur
latneskur texti sem setti
völdum konungs skorður.
JAFNRÉTTI
Kolbrún S.
Ingólfsdóttir
sagnfræðingur og
lífeindafræðingur
➜ Konur fengu almennt
að kjósa fyrr í sveitar-
stjórnarkosningum en til
þjóðþinga. Konur þurftu að
berjast lengi til að fá þessi
sjálfsögðu mannréttindi og
oft fylgdi ekki kjörgengi um
leið.
Greiðum atkvæði um kjarasamningana
ábyrga afstöðuSýnum
FLÓABANDALAGIÐ
ATH! Atkvæði póstleggist í síðasta lagi 18. júní
22. júní er síðasti dagurinn sem þú hefur til að hafa áhrif á niðurstöður í atkvæðagreiðslunni um kjarasamningana
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
D
-A
0
D
C
1
6
2
D
-9
F
A
0
1
6
2
D
-9
E
6
4
1
6
2
D
-9
D
2
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K