Fréttablaðið - 16.06.2015, Blaðsíða 24
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur
og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Ég held að hann hafi ekki grunað hvað hann var að koma sér út í,“ segir Ágústa Edda Björns-
dóttir, félagsfræðingur og fyrrverandi
landsliðskona í handbolta, en maður-
inn hennar gaf henni í sakleysi sínu
reiðhjól í afmælisgjöf fyrir ári. Ágústa
kolféll fyrir hjólasportinu, svo hressi-
lega að fjölskyldan gaf henni annað hjól
í afmælisgjöf í ár, alvöru racer, og mun
Ágústa hjóla kringum landið í WOW-
cyclothoninu.
„Ég byrjaði aðeins að hjóla þegar
ég fékk hjólið og fann fljótlega að mig
langaði til að verða betri. Þetta ýtti
við keppnismanneskjunni í mér og ég
fór að mæta á æfingar hjá hjólafélag-
inu Tindi. Fljótlega fann ég líka að nýja
hjólið dugði skammt, ef maður ætlar
að eiga eitthvert erindi verður maður
að eiga racer. Eftir að ég fékk hann í
afmælisgjöf, um miðjan apríl í vor, gerð-
ust hlutirnir hratt. Þá fór ég alveg á kaf
í þetta,“ segir Ágústa. Nú liggur hún í
hjólreiðabókum og les allt um hjólreið-
ar sem hún kemst yfir á netinu.
„Hjólreiðar eru það síðasta sem ég
hugsa um áður en ég sofna á kvöldin. Í
síðustu viku fékk ég að prófa fjallahjól í
keppni en ég hafði aldrei stigið á fjalla-
hjól áður. Nú er ég komin með fjalla-
hjólabakteríuna líka og er farin að safna
mér fyrir fjallahjóli,“ segir hún hress.
En er þetta ekki tímafrekt sport?
„Jú, mig langar bara til að taka mér
frí í vinnunni til að hjóla,“ segir hún
hlæjandi. „Ég reyni bara að púsla lífi
mínu saman kringum þetta. Ég hjóla í
vinnuna og vel lengri leiðina og lengri
leiðina heim. Svo hjóla ég líka seint á
kvöldin þegar börnin eru sofnuð. Ég á
auðvitað skilningsríkan mann, það var
nú hann sem kom mér út í þetta,“ segir
Ágústa en eiginmaðurinn tók sjálfur
þátt í cyclothoninu í fyrra og þekkir því
ástríðuna að baki.
„Við vorum einmitt að fá okkur
hjólafestingar á bílinn. Nú getum við
farið að hjóla úti á landi. Eftir nokkur ár
sé ég fyrir mér að öll fjölskyldan hjóli
saman,“ segir Ágústa.
En hvað er svona skemmtilegt við
hjólreiðarnar?
„Hvað maður kemst hratt yfir. Mér
fannst alltaf gaman að hlaupa en get
það ekki út af slæmu hné en hjólreið-
arnar fara vel með líkamann. Svo er líka
svo skemmtilegur félagsskapur í hjól-
reiðunum. Mér var boðið að vera með
í liði í cyclothoninu sem heitir Team
Kría, tíu stelpur sem tengjast Kríubúð-
inni en þar kaupi ég allt mitt hjóladót.
Æfingarnar ganga vel. Ég hlakka mikið
til þó auðvitað verði þetta erfitt, lítill
sem enginn svefn og hjólað á fullu gasi.
En þetta er áskorun sem gaman er að
takast á við.“
En eru rólyndis lystitúrar á hjólinu
ekkert fyrir þig?
„Jú, jú, ég fer líka á hjólinu á kaffi-
hús og til að fá mér ís. En ég samt mjög
erfitt með að hjóla hægt.“ ■ heida@365.is
Á ERFITT MEÐ AÐ
HJÓLA HÆGT
HJÓLREIÐAR Hjólabakterían heltók Ágústu Eddu Björnsdóttur þegar hún fékk
reiðhjól í afmælisgjöf fyrir ári. Í ár fékk hún aftur hjól í afmælisgjöf, alvöru
racer, og er komin í keppnislið. Hún tekur þátt í WOW-cyclothoninu í ár.
KEPPNISMANNESKJA
Ágústa Edda Björnsdótt-
ir er með hjólreiðabakt-
eríu á háu stigi en hún
fékk hjól í afmælisgjöf
fyrir ári. Nú er hún hluti
af Team Kría, keppnisliði
í WOW-cyclothoninu
og hjólreiðar eru það
síðasta sem hún hugsar
um fyrir svefninn.
MYND/GVA
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
Nánari upplýsingar www.SUPERBEETS.is Umboð: vitex ehf - Upplýsingasími 896 6949
Betra blóðflæði
Rauðrófu kristall 100% náttúrulegt
Einstök virkni og gæði - þú finnur muninn
Nitric Oxide Superbeets
allt að 5 sinnum öflugri
1. dós superbeets jafngildir
30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa
Íslensk vottun á
virkni NO3
Sýni rannsóknarstofa - Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar
Nitri c Oxide framleiðslu strax. Bætt blóðflæði og aukin súrefnisupptaka hefur jákvæð
áhrif á alla starfsemi líkamans, þ.m.t. hjarta og æðakerfi.
ATH: Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide. (NO) byrjar í munni, þess vegna er
SuperBeets tekið inn í vökvaformi, en ekki töfluformi.
Laugavegi 178 - Sími: 568 9955
www.tk.is
10% afsláttur
Meðferð við háræðasliti - Tilboð
Ármúla 21, 2. hæð • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
Snyrtistofan Hafblik
10% afsláttur af 2 × 30 mín.meðferð
15% afsláttur af 3 x 30 mín.meðferð
20% afsláttur af 4 x 30 mín.meðferð
Miðast við samfelldan meðferðartíma.
Hljóðbylgjumeðferð
Fjarlægir háræðaslit í andliti,
háræða stjörnur, blóðblöðrur og
skemmdir í húð eftir rósroða.
Hversu margar meðferðir þarf?
Algengt er 2-4 skipti, en misjafnt er
hversu margar meðferðir þarf til að
fjarlægja háræðaslit endanlega.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
C
-4
2
4
C
1
6
2
C
-4
1
1
0
1
6
2
C
-3
F
D
4
1
6
2
C
-3
E
9
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K