Fréttablaðið - 16.06.2015, Qupperneq 26
FÓLK|HEILSA
ÆFINGAR
Æfingarnar verða
á mánudögum og
miðvikudögum á
eftirfarandi tímum:
Kl. 15-16.15 – 3.-5.
bekkur
Kl. 16.15-17.30 –
6.-8. bekkur
Æfingum lýkur um
mánaðamótin júlí/
ágúst.
Íþróttir eru alþjóðlegt tungumál. Í gegnum þær kynnumst við á allt annan hátt, í gegnum líkamstjáningu
í stað tungumáls,“ segir Eva Dögg Guð-
mundsdóttir sem heldur utan um verk-
efnið Samspil í samstarfi við Þjónustu-
miðstöð Breiðholts, ÍR og Leikni en
verkefnið er styrkt af ÍTR.
Hugmyndin vaknaði hjá Evu þegar
hún skrifaði mastersritgerð sína en hún
stundaði þverfaglegt nám í menningar-
og innflytjendafræðum og uppeldis- og
menntunarfræðum frá háskólanum í
Hróarskeldu. Í ritgerðinni lagði hún
mat á verkefni í Danmörku sem snerist
um að flytja íþróttaæfingar út í hverfi
þar sem íþróttaþátttaka var ekki nógu
mikil, og bjóða upp á æfingar undir
berum himni. „Þó margt hafi verið vel
gert í þessu verkefni var ýmislegt sem
mér fannst mega betur fara,“ segir
Eva Dögg. „Til dæmis vildi
ég ekki að greitt væri fyrir
æfingarnar eins og var gert
þar. Þá vildi ég bæta inn
fræðslu og lífsleikniæfing-
um,“ segir Eva Dögg sem
hefur haldið fyrirlestra
um hugmyndir sínar sem
forsvarsmenn þjónustu-
miðstöðvarinnar og íþrótta-
félaganna í Breiðholti höfðu
haft spurnir af. Þeir tóku því vel
í tillögu Evu Daggar um að setja upp
svipað verkefni í Breiðholti. Samspili
var þannig hrundið af stokkunum síð-
astliðið sumar og boðið er upp á
það í annað sinn nú í ár.
FYRIR BÖRN Í ÞRIÐJA TIL
ÁTTUNDA BEKK
„Breiðholtið varð fyrir
valinu þar sem íþrótta-
þátttaka þar er mun
minni en í öðrum hverfum
borgarinnar,“ útskýrir Eva
Dögg og segir reynsluna
frá því í fyrrasumar nokkuð
góða. „Það komu tæplega 90 börn
á æfingarnar okkar en þó hefðum við
viljað hafa fleiri þátttakendur. Rigningin
gerði okkur erfitt fyrir en í ár eigum við
athvarf inni í íþróttahúsi ef veðrið er að
stríða okkur.“
Æfingar eru haldnar tvisvar í viku á
skólalóð Hólabrekkuskóla. Æfingarnar
eru ætlaðar börnum í þriðja til áttunda
bekk. „Öll börn eru velkomin
hvort sem þau eru vön að
stunda íþróttir eða ekki.“
ÍÞRÓTTAHLAÐBORÐ
Fyrsta æfing sumarsins
var í gær en lítið mál er
að mæta á næstu vikum.
„Krakkarnir geta bara
mætt á staðinn og fá þá
með sér heim skráningar-
blað sem þau fylla út með for-
eldrunum,“ segir Eva Dögg en
boðið verður upp á fjölbreyttar æfingar.
„Þetta verður nokkurs konar íþróttahlað-
borð. Við verðum með handbolta, fót-
bolta, körfubolta, frjálsar íþróttir
og keilu,“ lýsir Eva Dögg og því
ættu allir að finna eitthvað
við sitt hæfi. Vonir standa
einnig til að áhugi krakk-
anna á áframhaldandi æf-
ingum í vetur muni vakna
með þessu átaki.
Íþróttakennarar frá
Leikni og ÍR halda utan
um íþróttaæfingarnar en
Eva Dögg mun sjá um lífs-
leikniæfingar. Hún leggur áherslu á
að fræða krakkana um fordóma, staðal-
ímyndir, einelti og valdeflingu. „Það er
mikilvægt að byrja snemma að fræða
krakka um fordóma enda fæðumst við
fordómalaus en lærum að dæma hluti
með aldrinum,“ segir hún.
ÓKEYPIS ÍÞRÓTTIR Í
BREIÐHOLTI Í SUMAR
ÍÞRÓTTAHLAÐBORÐ Í sumar mun verkefnið Samspil bjóða upp á ókeypis
íþróttaæfingar í Efra-Breiðholti í annað sinn. Æft er tvisvar í viku á skólalóð
Hólabrekkuskóla. Æfingar eru ætlaðar börnum í þriðja til áttunda bekk.
SAMSPIL Eva Dögg er hugmyndasmiður Samspilsverkefnisins sem verður í gangi í Efra-Breiðholti í sumar. Þar geta krakkar komið og
prófað ýmsar íþróttir undir leiðsögn reyndra þjálfara. MYND/ERNIR
GAMAN AÐ PRÓFA
Krakkarnir fá að prófa
margar íþróttir á æfing-
unum sem fram fara á
lóð Hólabrekkuskóla.
Börkur af plöntunni
MAGNOLIA
OFFICINALIS, sem vex
í fjallahéruðum Kína,
hefur verið notaður við
svefnvandamálum, kvíða
og þunglyndi í yfir 2000
ár í Asíu.
365.is Sími 1817
Færðu fjarskiptin yfir til 365
og fáðu vandað sjónvarpsefni
á fáránlega góðu verði
REIKNAÐU
DÆMIÐ
á 365.is
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
C
-6
E
B
C
1
6
2
C
-6
D
8
0
1
6
2
C
-6
C
4
4
1
6
2
C
-6
B
0
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K