Fréttablaðið - 16.06.2015, Page 48
Mig renndi ekki í grun hvaða undur áttu eftir að eiga sér
stað þennan sólbjarta sunnudag
þegar ég keypti mér dagblaðið
El País í söluturni einum. Fór
ég því léttur í lund og settist
undir svokölluðu jacaranda-tré
við kaffihús eitt og pantaði mér
kaffi sóló.
ÞEGAR ég er að lesa um spill-
inguna skellur slumma á mynd-
ina af Rajoy forsætisráðherra.
Leit ég upp og sá fjaðraðan
sökudólginn. Fannst mér þetta
vel til fundið hjá honum en ég
færði ég mig þó aðeins um set
því þessi skrítla yrði kannski
ekki jafn skemmtileg næst.
EN hvað haldið þið? Þegar ég
er kominn á menningarsíðurnar
skellur aftur í blaðinu og deg-
inum ljósara að ófögnuðurinn
kom aftur úr skuti þessa fugls
sem byrsti nú brjóst, greinilega
til alls líklegur. Ég sýndi honum
hnefann og bölvaði á okkar
ylhýra. Ekki gat ég þó fært mig
aftur því borðin við kaffihúsið
voru öll setin. Ég var því í hættu
staddur.
AUGNABLIKI síðar heyri
ég dynk mikinn við trjáræt-
urnar og þótti mér sá vængjaði
þá heldur stórtækur. En þegar
ég ætla að líta ósköpin blasir
fuglinn sjálfur við mér á jörð-
inni í dauðakippum. Þá rifjast
upp fyrir mér atvikið þegar við
strákarnir á Bíldudal fundum
vængbrotinn máv og fórum með
hann til smiðs sem við kölluðum
aldrei annað en Graeme Souness
enda nauðlíkur samnefndum
harðjaxli Liverpool. Smiður-
inn benti á Byltuna og sagði,
„sjáið þið“. Þegar við litum svo
aftur til smiðsins var mávurinn
orðinn minning ein. Nú fannst
mér ég þurfa að taka Graeme
Souness á þetta til að binda enda
á þjáningar fuglsins. Ég tek
hann því upp, flóttalegur eins
og þjófur að nóttu, og er að fara
að snúa upp á hann en þá heyri
ég lítinn dreng segja: „Mamma,
hvað er hann að gera við fugl-
inn?“
ÉG horfði á fuglinn og spurði,
hvorn okkar er verið að taka af
lífi?
Aft aka
á miðju torgi
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Allt sem þú þarft ...
Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á
tölublað 18–49 ára. Prentmiðlakönnun
Gallup, jan.– mar. 2015
YFIRBURÐIR
Fréttablaðsins staðfestir
53,7%
19,6%
FB
L
M
BL
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
B
-D
A
9
C
1
6
2
B
-D
9
6
0
1
6
2
B
-D
8
2
4
1
6
2
B
-D
6
E
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K