Fréttablaðið - 31.07.2015, Page 20
2 • LÍFIÐ 31. JÚLÍ 2015
ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Umsjón Friðrika Hjördís Geirsdóttir rikka@365.is ● Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
erlabjorg@365.is ● Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is
Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ● Forsíðumynd Ernir Eyjólfsson
Lífi ð
www.visir.is/lifid
LÍFIÐ MÆLIR MEÐ SALT ELDHÚSI
Hver kannast ekki við að langa til að bæta færni
sína í eldhúsinu og geta borið fram framandi kræs-
ingar fyrir fjölskyldu og vini? Í kennslueldhúsi Salt
eldhúss eru haldin margvísleg námskeið þar sem
þátttakendur elda frá upphafi til enda allan mat-
inn. Hægt er að velja um ansi fjölbreytt námskeið
og hvort sem þig langar til að bæta færni þína í
bakstri makkaróna eða prófa þig áfram í austur-
lenskri matargerð er hægt að finna sér námskeið
við hæfi. Þetta gæti verið kjörið hópefli fyrir vina-
hópa eða jafnvel bara góð gjöf til einstaklings sem
hefur gaman af því að elda, og auðvitað borða.
Um komandi helgi ná útileg-
ur og grillveislur algjöru há-
marki en sjálfsagt hefur þjóð-
in verið iðin við kolann þrátt
fyrir húrrandi rigningu og
rok. Við Íslendingar gefumst
nefnilega ekki upp, við grill-
um ef við ætlum að grilla. Ef
rétt er að farið geta grillrétt-
ir verið ansi hollir og bragð-
góðir en það er auðvelt að
breyta því með tilheyrandi
sósum, meðlæti og drykkjar-
föngum. Við eigum að njóta
sumarsins og samverunnar
við grillið en það breytir því
ekki að það er ákjósanlegt að
huga að því hvað við setjum
ofan í okkur, það er hægt að
grilla fleira en hamborgara
og pylsur. Hér koma örfá ráð
sem gott er að hafa í huga við
grillið:
Grænmeti
Sem fyrri daginn er okkur
mannfólkinu ráðlagt að borða
okkar daglega skammt af
grænmeti og það á líka við um
sumartímann. Að mínu mati
er grænmeti sjaldan betra en
beint af grillinu og þá sérstak-
lega ef búið er að nostra við
það örlítið með góðri mariner-
ingu og kryddi. Gættu þess
bara að sverta það ekki of
mikið því þá er gleðin fuðruð
upp í kosmósið.
Sósur
Íslendingar elska sósur hver
svo sem ástæðan er fyrir því.
Ég er alls ekki á móti sósum,
þvert á móti sver ég mig í ætt-
ina og elska sósur eins og hver
annar en sósa er ekki bara sósa.
Það er hvergi höggvið í stein
að sósur þurfi að vera óhollasti
hluti máltíðarinnar. Mér finnst
ágætt ráð að blanda majónesi
og léttum sýrðum rjóma saman
til helminga, þá verður hún
fituminni og léttari í sér. Svo
er líka hægt að bera grillmat
fram með heimatilbúinni salsa,
guacamole eða chimichurri.
Kjötið
Það er aðdáunarverð kúnst að
grilla kjöt rétt og vel. Það skipt-
ir miklu máli að vanda sig á
grillinu og breyta ekki fallegri
nautalund í kolamola og með því
gera það óhollt í leiðinni. Veldu
góða bita á grillið.
Fiskur
Fátt er betra en vel grillaður
fiskur, stútfullur af næringar-
efnum. Sumum reynist það
mikil áskorun að grilla fiskinn
því hann á það til að festast við
og detta í sundur þegar kemur
að því að snúa. Notaðu þar til
gerða fiskigrind, það gerir lífið
örlítið auðveldara, nú ef þú átt
ekki eina slíka, skelltu þá bara
fisknum á álpappír og lokaðu
grillinu í stutta stund eða þar
til að fiskurinn er fulleldaður.
VELJUM RÉTT Á GRILLIÐ
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is
Allt sem þú þarft ...
Taktu þátt í bíóleik Fréttablaðsins
Það eina sem þú þarft að gera til að taka þátt í laufléttum bíóleik
Fréttablaðsins er að senda okkur tölvupóst á leikur@frettabladid.is
með nafni, kennitölu, símanúmeri og netfangi.
Glæsilegir vinningar í boði
1. Dróni
2. Armbandsúr með myndavél
3. Miðar á Mission: Impossible – Rogue Nation
Dregið verður 4. ágúst
BRUNAÐ
UPP BREKKU
Birgitta Elín Hassel er annar
eigenda bókaútgáfunn-
ar Bókabeitan sem gefur út
bækur fyrir börn og unglinga.
Þegar hún fer út að skokka þá
er heldur betur góður stuðtakt-
ur í tónunum og ætti þetta að
hvetja hvern þann sem er úti
á landi til að hlaupa upp á
næstu hæð eða hól.
AIN‘T GOT NOBODY
SÍSÝ EY
KNOCKED OUT OF
HEAVEN
BRUNO MARS
MIRRORS
JUSTIN TIMBERLAKE
CANT HOLD US
MACKLEMORE & LEWIS
TITANIUM
DAVID GUETTA
ROSES
OUTKAST
RAISE YOUR GLASS
PINK
NUTBUSH CITY
LIMITS
TINA TURNER
AS
MARY J. BLIGE
OG GEORGE MICHAEL
CHANDELIER
SIA
Heilsuvísir
3
0
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
B
-F
1
7
4
1
5
9
B
-F
0
3
8
1
5
9
B
-E
E
F
C
1
5
9
B
-E
D
C
0
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K