Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 24
6 • LÍFIÐ 31. JÚLÍ 2015
F
jölmargir Íslendingar hafa
sótt matreiðslunámskeið af
ýmsu tagi í kennslueldhús-
ið Salt Eldhús en fyrirtæk-
ið er kærkomin viðbót við ís-
lenska matarmenningu. Hugmynd-
ina að eldhúsinu á Auður Ögn
Árnadóttir en hún hefur frá barn-
æsku haft ástríðu fyrir matargerð.
„Ég man eftir því að það opnað-
ist fyrir mér nýr heimur þegar ég
var um níu til tíu ára en þá fékk
ég í hendur Matreiðslubók Mikka
og Mínu. Ég hafði litla þolinmæði
haft fyrir alls kyns handverki
þrátt fyrir að ekkert vantaði upp
á hugmyndaflugið, en í matreiðsl-
unni fann ég farveg fyrir listræna
útrás sem í mér bjó,“ segir hún.
Auður Ögn er alin upp á Sel-
fossi og bjó þar til unglingsára.
Hún var einungis fimm mánaða
þegar faðir hennar lést af slysför-
um. „Þetta hefur verið erfiður tími
fyrir móður mína að verða ekkja
aðeins tuttugu og tveggja ára með
þrjú ung börn. Þau voru svo til
nýflutt frá Akureyri, þaðan sem
þau voru bæði, til Selfoss þar sem
pabbi fékk vinnu við Búrfellsvirkj-
un. Um tveimur árum síðar kynn-
ist mamma svo stjúpföður mínum
en hann gekk mér í föðurstað og
hefur reynst mér rosalega vel. Það
er foreldrum mínum að þakka að
ég elti alltaf drauma mína, en þau,
ásamt eiginmanninum, eru mínir
dyggustu stuðningsmenn. Þau búa
núna á sveitabæ með hænur og
hesta rétt fyrir utan Selfoss.“
Auður Ögn er einstaklega hug-
myndarík og frjó kona en sjálf
segist hún ekki vera handlagin og
að skaparinn hafi ekki gefið henni
ögn af þolinmæði í vöggugjöf.
„Í menntaskóla heillaðist ég af
franskri menningu og fór sem au
pair til Frakklands, eftir það hóf
ég svo nám í frönsku í Háskólan-
um en hvarf frá því þar sem ég sá
litla atvinnumöguleika eftir námið
sem vöktu áhuga hjá mér. Ég sá
fyrir mér að mín biði það að vera
frönskukennari í menntaskóla og
það var nokkuð sem hin óþolin-
móða ég gat ekki hugsað mér.“
Póstkortið sem breytti öllu
Segja má að það hafi verið hrein
tilviljun sem réð því að Auður
Ögn Árnadóttir stofnaði kennslu-
eldhúsið Salt Eldhús á sínum
tíma „Það er svolítið skemmti-
leg saga að segja frá því hvern-
ig þetta byrjaði allt saman. Þannig
er mál með vexti að ég er búin að
vera í leshring í fimmtán ár og við
sem erum í honum vorum búnar
að ákveða að ferðast á söguslóð-
ir þess verks sem við kæmum til
með að lesa á tíu ára afmæli hóps-
ins. Það vildi svo heppilega til að
við rákumst á auglýsingu um að
Jane Austen-hátíðin í Bath yrði tíu
ára þetta saman ár. Við tók undir-
búningur sem fólst í því að lesa
allar bækur eftir og um höfund-
inn og við létum sauma á okkur
búninga fyrir tilefnið, en það er
hefð fyrir skrúðgöngu fólks í full-
um skrúða á þessari hátíð,“ segir
Auður Ögn.
Svo virtist sem þessi ferð væri
skrifuð í skýin en tímasetningin á
hátíðinni var þó ekki eina tilvilj-
unin sem Auður upplifði í Suður-
Englandi. „Fyrir ferðina hafði ég
verið, eins og svo oft áður, að skoða
matreiðslubækur á Amazon. Ég
pantaði mér nokkrar bækur sem
mér leist vel á og fékk þær sendar
heim stuttu síðar. Það var ein bók
í bunkanum sem vakti áhuga minn
en það var bók um brauðbakstur.
Þegar ég fer að rýna í bókina þá
dettur póstkort í fangið á mér sem
hafði verið stungið inn í bókina frá
höfundinum en þar var hann að
vekja athygli á því að hann væri
búinn að opna matreiðsluskóla í
Bath.“ Auður Ögn fór að sjálfsögðu
beint og skráði sig á eitt af nám-
skeiðunum.
Þegar þær stöllur komu til borg-
arinnar var systir Auðar búin að
leigja fyrir þær íbúð á besta stað.
„Ég hafði ekkert verið með putt-
ana í því að leigja íbúðina en þegar
leigubíllinn rennir upp að húsnæð-
inu þá segi ég við systur mína að
þetta hljóti að vera rangt heimilis-
fang og að hér sé kokkaskólinn
sem ég sé að fara í en ekki íbúð-
in. Stuttu síðar komumst við svo
að því að skólinn er við sömu götu,
meira að segja beint á móti íbúð-
inni,“ segir Auður Ögn og hlær.
Það var sem Auður Ögn hefði
verið leidd að næsta verkefni, því
að stofna matreiðsluskóla á Íslandi,
því hún heillaðist algjörlega af
konseptinu eftir veruna í Bath. „Ég
var lengi búin að vera að velta því
fyrir mér af hverju enginn væri
búinn að stofna svona skóla á Ís-
landi en fannst ég ekki geta verið
sú sem gerði það þar sem ég er
ekki menntaður kokkur. Ég sé það
núna að það voru óþarfa áhyggjur
og algjört vanmat á sjálfri mér. Ég
fæ bara fagmenn með mér í lið til
að kenna og hef verið mjög heppin
með þá matreiðslumenn sem hafa
verið að kenna hjá mér hingað til.
En ég þurfti smá tíma til að telja í
mig kjark.“
Með súpermódel í vinnu
Á þessum tíma rak Auður Ögn lítið
fyrirtæki sem hét Tilefni og tók
að sér að stílisera heimili, fyrir-
tæki og brúðkaup svo eitthvað sé
nefnt, ásamt því að hanna og selja
textíllínu fyrir heimilið sem aðal-
lega samanstóð af dúkum, púðum
og viskustykkjum. „Þetta var
mjög skemmtilegur tími og hent-
aði mér ákaflega vel með með þrjú
lítil börn, en þegar yngsta barnið
var komið í grunnskóla fannst mér
tími til kominn að gera eitthvað
meira krefjandi. Ég eignaðist börn-
in mín frekar seint en það fyrsta
FARVEGUR FYRIR LISTRÆNA ÚTRÁS
Auður Ögn Árnadóttir, stofnandi og eigandi Salt Eldhúss sem heldur fjölbreytt matreiðslunámskeið, bæði í tengslum við bakstur og matreiðslu framandi rétta.
„Ég hafði litla
þolinmæði haft fyrir
alls kyns handverki
þrátt fyrir að ekkert
vantaði upp á
hugmyndarflugið, en í
matreiðslunni fann ég
farveg fyrir listræna
útrás sem í mér bjó“
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is
IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk.
opið til 22 alla daga.
3
0
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
B
-C
9
F
4
1
5
9
B
-C
8
B
8
1
5
9
B
-C
7
7
C
1
5
9
B
-C
6
4
0
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K