Fréttablaðið - 15.04.2015, Side 2
15. apríl 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SAMGÖNGUR Í dag lýkur notk-
unar tíma nagladekkja yfir vet-
urinn en notkun nagladekkja
er óheimil á milli 15. apríl og 1.
nóvember. Þetta kemur fram á
heimasíðu lögreglunnar.
Þá mun lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu ekki byrja að
sekta fyrir notkun nagladekkja
fyrr en vetraraðstæðum lýkur.
Sekt fyrir að aka á nagla-
dekkjum yfir sumartímann er
5.000 krónur. - srs
Nagladekkin fara af í dag:
Engar sektir
vegna veðurs
VEÐUR
Hæg suðvestlæg átt, víða bjart og
sólríkt. Hiti 2 til 8 stig.
3°
4°
4°
4°
6° 3
4
4
9
7
SJÁ SÍÐU 16
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
SAMFÉLAG Starfsmenn Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar báru kjöt-
mjöl á Kópavogshluta golfvallar félagsins í síðustu viku. Heyrst hefur
um nágranna sem hafa kvartað undan ólykt og flokkum af mávum en
Guðmundur Árni Gunnarsson vallarstjóri segist ekki kannast við það.
- gar
Kjötmjöl var borið á hluta golfvallar Golfklúbbs Kópavogs:
Matarveisla fyrir mávahópa
KOMNIR Í FEITT Mikið hefur sést af mávum á golfvelli í Kópavogi eftir að kjötmjöl
var borið á hluta vallarins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Í vikunni verður farið
fram á mat frá geðlækni í kyn-
ferðisbrotamáli þar sem kona er
ákærð fyrir kynferðisbrot gegn
annarri konu.
Atvikið átti sér stað í heimahúsi
á Selfossi í ágúst á síðasta ári.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins ber hin ákærða fyrir
sig að hafa verið sofandi þegar
atvikið átti sér stað og muni þess
vegna ekki eftir því.
Lögmaður hinnar ákærðu,
Kristrún Elsa Harðardóttir, stað-
festir að í vikunni verði lögð fram
matsbeiðni í Héraðsdómi, þar
sem farið verður fram á að geð-
læknir geri mat á því hvort konan
þjáist af kynferðislegri svefn-
röskun eða sexsomnia.
Um er að ræða viðurkennda
svefnröskun sem lýsir sér þann-
ig að manneskja tekur þátt í eða
viðhefur kynferðislegar athafnir
í svefni og man ekki eftir því. Oft
bitnar það á þeim sem deilir rúmi
með viðkomandi þar sem sá er
ekki endilega samþykkur gjörð-
unum. Röskunin er sjaldgæf og
algengari meðal karla heldur en
kvenna.
Eftir því sem Fréttablað-
ið kemst næst hefur ekki verið
farið fram á slíkt mat áður hér-
lendis. Hins vegar eru fordæmi
fyrir því erlendis, meðal annars í
Danmörku, Svíþjóð, Bretlandi og
Kanada. Dæmi eru um að sýknað
hafi verið í kynferðisbrotamálum
þar sem viðkomandi hefur verið
haldinn þessari röskun.
- vh
Vill fá geðlækni til að meta hvort ákærða þjáist af kynferðislegri svefnröskun eða sexsomnia:
Telur sig hafa framið kynferðisbrot í svefni
SVEFNRÖSKUN Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins segist konan ekki muna
eftir atvikinu þar sem hún hafi verið
sofandi. NORDICPHOTOS/GETTY
VELFERÐARMÁL „Við mætum
þeim þar sem þau eru stödd. Að
þau upplifi að rýmið í Frú Ragn-
heiði sé fyrir þau, að þar eru þau
ekki dæmd, þurfa ekki að upplifa
skömm og geta talað um þessa hluti
á mjög eðlilegan hátt. Þannig geta
þau treyst okkur fyrir spurning-
um sem liggja á þeim og spjallað
við okkur um vímuefnaneysluna og
bara lífið,“ segir Svala Jóhannes-
dóttir, verkefnastýra Frú Ragn-
heiðar, skaðaminnkandi verkefnis á
vegum Rauða krossins í Reykjavík.
Verkefnið hefur verið starfrækt
frá árinu 2009 og hefur þann til-
gang að ná til jaðarhópa samfélags-
ins sem erfitt reynist að nálgast,
eins og heimilislausra og einstak-
linga í miklum fíknivanda, og bjóða
þeim skaðaminnkandi þjónustu og
almenna heilsuvernd í þeirra nær-
umhverfi. Um 450 einstaklingar
hafa nýtt sér þjónustuna.
Svala segir fjölgun vera á meðal
þeirra sem nýta sér þjónustuna
en þau viti þó ekki hvort hópur-
inn sé að stækka eða þau séu að ná
til fleiri. Þjónustan er starfrækt
fimm sinnum í viku frá klukkan
18 til 21 og fer á ákveðna staði
til þess að hitta fólk þar sem það
getur fengið heilbrigðisaðstoð og
sótt sér hreinan sprautubúnað.
Í janúar var tekin upp ný þjón-
usta, notendasími, þar sem hægt
er að hringja og biðja um að láta
hitta sig á ákveðnum stöðum. Að
sögn Svölu hefur það skilað miklu
árangri. „Þessi þjónusta hefur
mest verið notuð af ungum konum
og nær eingöngu af konum. Það er
mikið fagnaðarefni að vera komin
með tæki sem nær til kvenna,
hingað til hafa um 60 prósent
þeirra sem leita í Frú Ragnheiði
verið karlmenn þannig að við
erum mjög ánægð að vera komin
með tæki sem nær til kvenna.“
Svala segir Frú Ragnheiði hafa
skilað árangri, meðal annars í
fækkun á HIV-smitum á meðal
fólks sem sprautar vímuefnum
í æð. „Það hefur orðið gríðarleg
lækkun. Á árunum 2009 til 2012
voru 34 einstaklingar sem smituð-
ust af HIV úr þessum hópi, en 2013
og 2014 var aðeins einn á ári sem
smitaðist af HIV. Það bendir allt til
þess að Frú Ragnheiður hafi haft
gríðarlega mikil áhrif á viðhorf og
gildi fólks sem sprautar vímuefn-
um í æð, en fræðslugildið er eitt af
aðalmarkmiðum okkar. Að fræða
fólk um skaðaminnkandi leiðir í
sprautunotkun og gefa þeim tæki-
færi á að taka ábyrgð á eigin vímu-
efnaneyslu. Það hefur til dæmis
orðið mikil aukning í að fólk komi
til okkar og skili nálaboxum sem
við förum svo með í förgun.“
viktoria@frettabladid.is
Ná betur til kvenna
í vímuefnaneyslu
Frú Ragnheiður hefur sinnt um 450 einstaklingum frá árinu 2009. Sífellt fleiri
sækja sér þjónustuna á ári hverju. Þjónustan hefur meðal annars skilað sér í
töluverðri fækkun á HIV-smitum á meðal fólks sem sprautar vímuefnum í æð.
FRÚ RAGNHEIÐUR Svala er verkefnastýra Frú Ragnheiðar. Bíllinn keyrir um fimm
daga í viku frá 18-21. Nýlega var tekinn í notkun notendasími sem hægt er að
hringja í og biðja um að láta hitta sig. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það hefur til dæmis
orðið mikil aukning í að
fólk komi til okkar og skili
nálaboxum sem við förum
svo með í förgun.
Svala Jóhannesdóttir,
verkefnastýra Frú Ragnheiðar.
STJÓRNSÝSLA Í erindi Félags atvinnurekenda (FA)
til atvinnuvegaráðuneytisins er farið fram á að
ráðgjafar nefnd um inn- og útflutning landbúnaðar-
afurða verði kölluð saman vegna yfirvofandi verk-
falls dýralækna frá og með næstkomandi mánudegi.
Í bréfinu er vísað til fréttar Fréttablaðsins í gær
um að slátrun muni stöðvast í verkfallinu og að þá sé
stutt í skort á svína-, kjúklinga- og
nautakjöti í verslunum.
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjóri FA, bendir í bréfinu á að land-
búnaðarráðherra beri, samkvæmt
65. grein búvörulaga, skylda til að
gefa út opinn innflutningskvóta á
lægri tollum, þegar framboð búvöru
er ekki nægjanlegt á innanlands-
markaði.
„Félag atvinnurekenda fer þess á
leit við ráðuneytið að það kalli saman ráðgjafarnefnd
um inn- og útflutning landbúnaðarafurða og nefndin
undirbúi að gefa þegar í stað út opinn tollkvóta fyrir
fjölbreytilegt úrval nauta-, alifugla- og svínakjöts,
komi til verkfalls,“ segir í bréfinu. Með skjótum við-
brögðum nefndarinnar og ráðherra megi afstýra kjöt-
skorti og tryggja fæðuöryggi landsmanna. „Aðgerða-
leysi stjórnvalda mun á hinn bóginn, að óbreyttu,
valda skorti á nauðsynlegum matvælum, skerða lífs-
gæði og skaða allan almenning í landinu.“ - aí, óká
Aðgerðaleysi sagt að óbreyttu valda skorti á matvælum og skerða lífsgæði:
Ráðherra eigi að gefa út kvóta
KJÖT Í KÆLI BÓNUSS Birgðir lambakjöts eru sagðar duga til
hausts dragist verkföll á langinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÓLAFUR Þ.
STEPHENSEN
STJÓRNMÁL Jón Þór Ólafs-
son, þingmaður Pírata, lagði í
gær fram fyrirspurn til forseta
Alþingis um kostnaðaráætlun með
nefndarálitum. Jón spyr hvort for-
seti hafi kallað eftir auknu fjár-
magni til að þingið geti sinnt sínu
lögbundna hlutverki við að útbúa
kostnaðaráætlanir háð áliti fram-
kvæmdavaldsins. Alþingi hefur
í dag ekki aðstöðu til að búa til
sjálfstætt mat eftir meðferð mála
í nefndum. - srs
Aðstöðu þingsins ábótavant:
Spyr um aukið
fé til þingsins
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
C
-8
9
8
C
1
6
3
C
-8
8
5
0
1
6
3
C
-8
7
1
4
1
6
3
C
-8
5
D
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K