Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.04.2015, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 15.04.2015, Qupperneq 10
15. apríl 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 AÐALFUNDUR Félags tæknifólks í rafiðnaði Félag tæknifólks í rafiðnaði Aðalfundur Félags tæknifólks í rafiðnaði verður haldinn í húsnæði RSÍ að Stórhöfða 31, Grafarvogsmeginn miðvikudaginn 22. apríl 2015 kl. 17. Reykjavík 10.04.2015 Stjórn Félags Tæknifólks í rafiðnaði Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2015 Starfslok starfsmanna Hér með óskar Öldrunarráð eftir tilnefningum til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands. Öllum er heimilit að senda inn tilnefningar. Frestur til að senda inn tilnefningar er til og með 26. apríl 2015 og skulu tilnefningar sendar til Öldrunarráðs Íslands, Hrafnistu við Laugarás, 104 Reykjavík eða á netfangið oldrunarrad@oldrunarrad.is Öldrunarráð Íslands veitir sérstaka viðurkenningu til fyrirtækja eða stofnanna sem hafa myndað sér framúrskarandi stefnu varðandi starfslok starfs- manna sinna og framfylgja henni á ábyrgan máta. Óðalsostur hefur verið á borðum landsmanna frá árinu 1972 þegar Mjólkursamlag KEA hóf framleiðslu hans á Akureyri. Fyrirmynd hans er Jarlsberg, frægasti ostur Norðmanna. Óðalsostur er mildur með örlítinn möndlukeim og skarpa, sæta, grösuga tóna. Frábær á morgunverðarborðið, hádegishlaðborð eða bara einn og sér. www.odalsostar.is ÓÐALSOSTUR TIGNARLEGUR FRAMKVÆMDIR Bygging nýs hótels við Austurhöfn í Reykjavík hefst í haust gangi áætlanir eftir. Hótel- ið rís vestan við tónlistar- og ráð- stefnuhúsið Hörpu, líkt og gert hefur verið ráð fyrir í skipulagi svæðisins. Gert er ráð fyrir að bygging hót- elsins taki tvö ár, að því er fram kom í máli Richards L. Friedman, forstjóra bandaríska fasteigna- félagsins Carpenter & Company, sem annast byggingu hótelsins, á blaðamannafundi í Hörpu í gær, þar sem upplýst var um áformin. Þá kom fram í máli Friedmans að fyrirtækið hefði og myndi hafa sam- starf við innlenda verktaka, hönnuði og fleiri við verkið, en þegar hefur verið samið við verkfræðistofuna Mannvit og T.ark-arkitekta um hönnun og stjórnun framkvæmda. Friedman sagði hins vegar ekki tímabært að upplýsa um hvaða hótel keðja fengi inni í byggingunni, því enn væri verið að leggja loka- hönd á samninga. Upplýsa ætti um það eftir þrjár til fjórar vikur. Í spjalli við blaðamann upplýsti Friedman að kostnaður við bygg- ingu hótelsins yrði í grennd við hundrað milljónir Bandaríkjadala, eða 10 til 15 milljarðar íslenskra króna. „Í verkefni af þessari stærðar gráðu og með þann árang- ur í huga sem á að ná dugar ekki að hafa neitt annars flokks,“ segir Friedman. Það eigi jafnt við um bygginguna sjálfa og innanstokks- muni. Allt verði fyrsta flokks. „Stað- setning sem þessi á ekkert skilið nema það besta. Við ætlum að gera hlutina rétt í fyrstu tilraun.“ Dagur B. Eggertsson, borgar- stjóri í Reykjavík, sagði í ræðu sinni fagnaðarefni að óvissunni væri eytt um framtíðaruppbyggingu við Hörpu. „Þetta er mikið fagnaðar- efni fyrir alla sem hafa komið að þessu húsi, þetta er fagnaðarefni fyrir Reykjavíkurborg og þetta er í raun ný vídd fyrir ferðaþjón- ustuna hjá okkur að fá hingað fimm stjörnu hótel.“ Það segir Dagur styrkja Reykjavík sem ráðstefnu- og fundaborg. „En síðast en ekki síst var orðið mjög tímabært að fara að fylla upp í holuna, því það var svona alveg á mörkunum að menn færu að aldursfriða hana,“ gantaðist Dagur í ræðu sinni. Létt var yfir gestum í Hörpu í gær, enda útlit fyrir að loksins komi bygging í húsgrunninn sem staðið hefur tómur við hlið hússins. Hall- dór Guðmundsson, forstjóri Hörpu, kvaðst ekki hafa miklar áhyggjur af því að nýtt hótel skyggði á Hörpu. „Og þótt svo væri, þá vildi ég frekar að skyggði á húsið úr þessari áttinni en að hafa þess holu áfram hér við hliðina.“ olikr@frettabladid.is Nýtt hótel á 10 til 15 milljarða króna Ekkert verður til sparað við byggingu og hönnun nýs hótels við Austurhöfn í Reykja- vík, segir forstjóri fasteignafélagsins Carpenter & Company. Áætlað er að fram- kvæmdir við bygginguna hefjist strax í haust. Áætlaður byggingartími er tvö ár. Í HÖRPU Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Richard L. Friedman, forstjóri Carpenter & Company, og Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, sem leiðir fjármögnun hótel- byggingarinnar, skoða líkan af hótelinu og næsta umhverfi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fasteignafélagið Carpenter og Company er alþjóðlegt fasteignafélag sem er sérhæft í uppbyggingu hótela. Félagið hefur fest kaup á byggingarrétti fyrir hótel á Austurbakka 2 við Reykjavíkurhöfn (Hörpureitur) af fyrri eigendum og verður leiðandi fjárfestir í verkefninu. Carpenter reisir á lóðinni 250 herbergja fimm stjörnu hótel, en í framhaldinu tekur leiðandi alþjóðleg hótelkeðja við rekstri þess. Hótelið hýsir líka veislu- og fundar- sali, fjölda veitingastaða auk heilsulindar. Nýja hótelið á Hörpureitnum er fyrsta hótelverkefni Carpenter utan Bandaríkjanna, en þar hefur félagið starfað með hótelkeðjum á borð við St. Regis, Four Seasons, Marriott, Hyatt og Starwood. Kolufell ehf., seljandi byggingarréttarins, þróar áfram íbúða- og verslunarbyggð á suðurhluta lóðarinnar. ➜ Festu kaup á byggingarrétti hótelsins LÍKANIÐ Hótelið nýja stendur held- ur lægra en Harpa sem er fremst á myndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI AFSTÖÐUMYND Efst í hægra horninu stendur Harpa, en vestur af húsinu kemur svo hótelið. MYND/T.ARK 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 C -E C 4 C 1 6 3 C -E B 1 0 1 6 3 C -E 9 D 4 1 6 3 C -E 8 9 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.