Fréttablaðið - 15.04.2015, Síða 30

Fréttablaðið - 15.04.2015, Síða 30
 | 8 15. apríl 2015 | miðvikudagur Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, hefur staðið í ströngu undan farið við að undirbúa skráningu fyrirtækisins í Kaup- höll Íslands. Viðskipti með bréfi n hófust svo á fi mmtudag í síðustu viku. Guðjón hefur langa starfs- reynslu að baki. Hann hefur verið forstjóri Reita í tæp fimm ár. Áður var hann í níu ár hjá Essó, sem síðar rann inn í N1, og þar áður hjá Eimskipi í níu ár. „Ég tók mastersgráðu í alþjóða- viðskiptum og markaðssetningu frá Háskólanum í Álaborg í Dan- mörku. Þegar ég kom til Íslands var ég lektor í tvö ár á Bifröst eftir að honum hafði verið breytt í háskóla og kenndi þar,“ segir Guðjón. Hann segir að það hafi verið mikil reynsla að taka á móti námsefni í fi mm ár og verja síðan tveimur árum á eftir í að miðla því til annarra. Guðjón sinnti fjölbreytilegum verkefnum hjá Eimskipi, eftir að hann byrjaði þar árið 1991. „Ég var yfir markaðsdeild og var framkvæmdastjóri Eimskips í Bandaríkjunum og svo í Hamborg í Þýskalandi í tvö ár,“ segir hann. Hann segist ekki geta svarað því til hvaða vinnustaður sé skemmti- legastur, Eimskip, Esso eða Reit- ir. „Þetta er eins og að gera upp á milli barnanna sinna. Þú færð mig ekki til að svara þessu,“ segir Guðjón og hlær. Hann tekur fram að það sé ótrúlega samheldinn hópur sem hann hafi hitt á báðum þeim fyrri vinnustöðum sem hann var á, Esso og Eimskip, og hann hitti fyrrverandi samstarfs- menn sína þaðan reglulega. Guðjón segist hafa unnið að skráningu Reita eiginlega allt frá því að hann byrjaði sem forstjóri. „Félagið var að langstærstu leyti í eigu viðskiptabankanna þriggja. Þeir gátu ekki átt þetta félag til framtíðar og um það var gert samkomulag við Samkeppnis- eftirlitið að þeir þyrftu að koma þessu félagi af sínum höndum innan tiltekins tíma,“ segir Guð- jón. Verkefni hans á undanförn- um árum hafi því verið daglegur rekstur fyrirtækisins, endurfjár- mögnun þess og undirbúningur fyrir skráningu á markað. Guðjón ver frítíma sínum að mestu leyti í hreyfingu. „Mér finnst útivera skemmtileg. Á sumrin er það golfi ð. Ég er dott- inn í það að klífa fjöll og er að byrja að láta plata mig í það að vera á hjóli,“ segir Guðjón. Á veturna er hann aðallega í því að spila fótbolta. „Frambyggðir Þróttarar hittast tvisvar í viku og spila fótbolta saman og svo læt ég plata mig í spinning reglu- lega,“ segir Guðjón. Hann reyni því að hjóla inni á veturna en úti á sumrin. jonhakon@frettabladid.is Hittir Þróttara tvisvar sinnum í viku í fótbolta Guðjón Auðunsson hefur staðið í ströngu við að undirbúa skrán- ingu Reita í Kauphöll Íslands. Hann hefur fjölbreytta starfsreynslu og stýrði skrifstofum Eimskips í Bandaríkjunum og Þýskalandi. Það er ekkert sirka hjá honum. Hann veit alltaf nákvæmlega hvað hann er að gera. Hann horfir fram í tímann og ef hann er að fara að gera eitthvað þá planleggur hann það mjög vel. Ef það er eitthvað sem kemur á óvart þá hefur hann gert ráð fyrir því að það kæmi á óvart. Hann er heilmikill íþróttamaður og er farinn að hjóla núna. Hann leggur sig fram við það sem hann er að gera og er keppnismaður. Hann er góður félagi og heilsteyptur og hefur góð og heilbrigð prinsíp. Hann er ekki nógu lélegur í skák (svo ég eigi betra með að vinna hann) og svo er hann ekki nógu elskur að hundum systur sinnar. Aðra galla skortir hann tilfinnanlega. Sveinn Valgeirsson, prestur í Dómkirkjunni. Við Guðjón höfum unnið saman á tveimur vinnustöðum, fyrst hjá Eim- skip og síðar hjá Olíufélaginu. Hann er frábær samstarfsfélagi og mjög kær og traustur vinur. Guðjón er hörku- klár, strategískur, hugmyndaríkur og markaðsþenkjandi. Ég hef alltaf litið á Guðjón sem leiðtoga, hann er fram- sýnn, hefur góða tilfinningagreind, hrífur fólk auðveldlega með sér og er mjög drífandi. Ofan á þetta allt saman er hann líka mjög skemmtilegur. Óþolinmæði kemur upp í hugann ef ég á að benda á einhverja galla. Ég veit að Guðjón er mikill áhugamaður í golfi og setur mikla pressu á sig við að lækka forgjöfina. Það pirrar hann hvað það gerist hægt. Auður Björk Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá VÍS DRÍFANDI OG HRÍFUR AÐRA MEÐ SÉR VERKEFNINU LOKIÐ Guðjón Auðunsson hringdi bjöllunni í Kauphöllinni við upphaf fyrsta viðskiptadags. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI E N N E M M / S ÍA / N M 6 8 2 8 3 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is " 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 E -2 D 3 C 1 6 3 E -2 C 0 0 1 6 3 E -2 A C 4 1 6 3 E -2 9 8 8 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.