Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 1
FRÉTTIR Ég fór til Frakklands, Sviss, Þýskalands og Austurríki RÚSSIBANAREIÐ NIÐUR MONT BLANCEVRÓPUREISA Kormákur Rögnvaldsson dreif sig upp á hæsta fjall Evrópu í sumar og brunaði niður að fjallsrótum með kláfi. Hann synti í grænu vatni í Austurríki, heimsótti rómverskt safn og skoðaði líka elsta kastala Evrópu. FJÖLBREYTTIR HELLAR Á milli 650 og 700 þekktir hellar eru hér á landi en þeir algengustu eru hraunhellar. Guðni Gunnars son, formaður Hellarannsóknafélags Íslands, segir þá búa yfir mikilli fjölbreytni. Síða 2 DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · Hljóðlát Stórt op > auðvelt að hlaða Sparneytin amerísk tæki. <Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerísk gæðavara Amerísk gæðavara G Ö N G U M HRE INT T I L V E R K S ! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014 Miðvikudagur 14 2 SÉRBLÖÐ Markaðurinn | Fólk MARKAÐURINN Sími: 512 5000 12. ágúst 2015 187. tölublað 15. árgangur SPORT Aníta Hinriks dóttir fær að vera með á HM í frjálsum í Peking. 26 Fékk umfjöllun í Forbes: Spáð velgengni í gala-klæðum LÍFIÐ Í ítarlegri umfjöllun tíma- ritsins Forbes er breska tísku- merkið Galvan sagt verða meðal forystumerkja í gala-klæðn- aði. Sóla Kára- dóttir er list- rænn stjórnandi Galvan, sem hefur vaxið hratt frá stofnun fyrir aðeins einu og hálfu ári. Hún flakkar starfs síns vegna milli Lundúna í Bretlandi og Los Angeles í Bandaríkjunum. - gj / sjá síðu 24 SÓLA KÁRADÓTTIR IÐNAÐUR Álverð lækkar enn og er í sögulegu samhengi mjög lágt. Í júlí fór tonnið niður í 1.679 dollara, sem er töluvert undir viðmiðunarverði sem notað var í arðsemisútreikn- inga fyrir Kárahnjúkavirkjun, en þar var gert ráð fyrir að verðið í júní 2015 yrði um 1.875 dollarar á tonnið. Nokkrar framkvæmdir eru í pípunum varðandi álver. Cent- ury Aluminium vinnur að stækkun álvers á Grundartanga og hefur lengi unnið að bygg- ingu álvers í Helgu- vík. Þá er unnið að því að reisa álver á Bakka við Húsavík og á Hafurs stöðum í Skagafirði. Hörður Arn- arson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að vegna viðskiptalegra sjónar miða tjái fyrir tækið sig ekki um verk- efni sem verið sé að vinna að. „Almennt má segja að svona lágt álverð hefur neikvæð áhrif á þau álverk- efni sem menn eru að skoða á Íslandi og annars staðar. Það er alveg ljóst að það eru allar líkur á að það dragi úr vilja manna til að auka afköstin.“ Sigurður Jóhannesson, hagfræð- ingur við Háskóla Íslands, telur að lækkun álverðs dragi úr fram- kvæmdum við álver. „Ég reikna með að bæði sé áhugaleysi hjá þeim sem stjórna virkjanaframkvæmdum hér sem og álframleiðendum, á því að gera eitthvað næstu árin. Ég sé ekki neinar líkur á því að það gerist neitt.“ Ágúst F. Hafberg, framkvæmda- stjóri viðskiptaþróunar og sam- skipta hjá Norðuráli, segir að þróun álverðs hafi engin áhrif á stækkun álvers á Grundartanga. „Varðandi Helguvík þá erum við bara að bíða eftir orkumálum hjá HS Orku, það er svo sem ekkert meira um það að segja.“ - kóp / sjá síðu 6 Lágt álverð dregur úr áhuga á álverum Álverð lækkar enn. Er undir viðmiðunarverði sem notað var við arðsemisútreikn- inga á Kárahnjúkavirkjun. Áhugaleysi um álverkefni næstu ár segir hagfræðingur. FLUGFÉLAG FÓLKSINS Vertu eins og heima hjá þér Full búð af nýjum vörum. MENNING Ari Daníelsson stýrir Jazzhátíð Reykjavíkur sem hefst með göngu kl. 17. 20 LÍFIÐ Siggi Jensson vildi deila upplifun sinni af Eistnaflugi. 30 RAÐAÐ Í DÚKKUHÚSIÐ Bergljót Gunnarsdóttir listakona hefur nýlokið smíði tveggja dúkkuhúsa sem bera allan keim af raunverulegum húsakynnum fólks, nema hvað stærðina varðar. Veggspjöld prýða unglingaherbergi og málverk stofur. Húsin bjó hún til fyrir langömmubörn sín. Sjá síðu 30 FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HÖRÐUR ARNARSON VEÐUR Það spáir vondu veðri um allt land í dag og stormi á suðvestur horninu síðdegis. „Það þarf að setja inn trampólínið, grill- ið og garðhúsgögnin svo það fari ekki allt að fjúka,“ segir Þorsteinn Jónsson, veðurfræðingur á Veður- stofu Íslands. Þorsteinn segir veðrið á morg- un vera haustlegt en segir þó að sumarið sé ekki alveg búið að vera. Ferðaveður verði slæmt í dag. „Bílarnir með kerrurnar eru í straffi. Hviður geta farið í 35 metra á sekúndu á þessum venju- legu hvassviðrisstöðum.“ Hann leggur áherslu á að ferða- menn á hálendinu hugi vel að sér og bíði veðrið af sér. Þar verði sömuleiðis mikið rok, allt upp í 23 metra á sekúndu, rigning og lélegt skyggni. Búast má við því að það lygni um kvöldmatarleytið. - snæ Veðurstofa Íslands býst við stormi suðvestan til og rigningu um allt land: Lausamunir líklegir til að fjúka Árlegar tekjur á annan milljarð Tekjur Rauða kross Íslands voru á annan milljarð króna í fyrra. Framkvæmdastjóri hreyfingarinnar segir að rekstur á spilakössum skipti sífellt minna máli fyrir fjáröflunina, en tekjur af fatasöfnun skipti meira máli. Áhugi Íslendinga á notuðum fötum sé að aukast. SKOÐUN Páll Magnússon segir snúið út úr fyrir lög- reglustjóranum í Eyjum. 15 Ofsóknirnar hafnar aftur Maður sem ofsótt hefur Ásdísi Hrönn Viðarsdóttur árum saman og rofið nálgunarbann hlaut í sumar dóm fyrir. Hann áfrýjaði og hóf ofsóknir á ný eftir um árshlé. 8 Lokun haturssíðu skaðleg Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, efast um gagnsemi þess að loka vef- síðum sem innihalda hatursáróður. 2 Segir Amnesty grafa sér gröf Formaður Kvenréttindafélags Íslands syrgir ákvörðun heimsþings Amnesty um að styðja afglæpavæðingu vændis. 4 1 1 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 B 6 -C 7 F C 1 5 B 6 -C 6 C 0 1 5 B 6 -C 5 8 4 1 5 B 6 -C 4 4 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.