Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 24
FÓLK|FERÐIR Á Íslandi eru á bilinu 650-700 þekktir hellar sem telst lítið samanborið við önnur lönd. Algengustu hellar landsins eru hraunhellar en þeir finn- ast ekki í miklu magni í öðrum löndum að sögn Guðna Gunnars- sonar, formanns Hellarannsókna- félags Íslands. „Það sem gefur íslensku hellunum sérstöðu er jarðfræðilegur ferskleiki þeirra, hinn mikli fjölbreytileiki og sú staðreynd að við eigum líklega skreyttustu hraunhella heims. Þegar talað er um skraut, þá er átt við dropsteina og hraunstrá og aðrar myndanir sem verða til þegar afgangsbráð finnur sér leið inn í hellisrásina, drýpur niður á hellisgólfið og storknar þar í alls kyns formum. Þessar hraun- myndanir brotna og molna niður við minnstu snertingu enda eru hraunhellar með viðkvæmari náttúrufyrirbrigðum jarðar.“ Hann segir dulúðina vera mest heillandi við hellana og um leið þau forréttindi að sjá ókannaða og ósnortna undraveröld. „Fjöl- breytileikinn er gífurlegur og erum við enn að uppgötva hluti sem koma jafnvel reyndustu hellamönnum á óvart. Auk þess getur litadýrðin verið mikil og þeir verið formfallegir. Það er ekki hægt að gefa sér neitt þegar kemur að íslensku hellunum.“ Í nágrenni höfuðborgarsvæðis- ins má finna nokkra aðgengilega hella að sögn Guðna þótt hann vilji fara varlega í að tala um að einhverjir þeirra séu auðveldir. „Raufarhólshellir í Leitahrauni er rétt við Þrengslaveginn og hentar hann vel fyrir þá sem vilja sjá stóra og mikilfenglega hellisrás. Arnarker er í sama hrauni og vel merkt með skilti og er stikuð leið að hellisopinu. Í báðum þessum hellum geta verið glæsilegar ísmyndanir á veturna.“ MARGT GLEÐUR AUGAÐ Einnig hafa Bláfjallahellarnir þótt heppilegir fyrir byrjendur en þeir eru í hrauninu beint á móti skíða- svæðinu. „Djúpihellir er í grennd- inni en hann hefur þá sérstöðu að vera á tveimur hæðum. Síðan er þess virði að kíkja á Tann- garðshelli, Gljáa og Rósahelli. Allt eru þetta ólíkir og skemmtilegir FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 FJÖLBREYTNI „Það sem gefur íslensku hellunum sérstöðu er jarðfræðilegur fersk- leiki þeirra, hinn mikli fjölbreytileiki og sú staðreynd að við eigum líklega skreyttustu hraunhella heims,“ segir Guðni Gunnarsson, for- maður Hellarannsókna- félags Íslands. MYNDIR/GUÐNI GUNNARSSON FALLEGUR Hellirinn litríki, Jörundur í Lambahrauni, var friðlýstur árið 1985 vegna verndunar dropsteina. LITFAGUR Innviðir Leitahrauns sem er hraunbreiða austur af Reykjavík. HEILLANDI DULÚÐIN UNDRAVERÖLD Mikil litadýrð og fjölbreytileiki einkennir íslenska hella. Huga þarf vel að öryggismálum og ganga vel um þá hella sem heimsóttir eru. hellar á tiltölulega litlu svæði.“ Guðni nefnir einnig Leiðar- enda í Stórabollahrauni sem sé með greiðfærari hellum en aðkomuleiðin og innviðir hans hafa skemmst mikið vegna mik- illar umferðar. „Nálægt honum er hellirinn Flóki sem tilheyrir Tvíbollahrauni og er rúmlega kílómetra langur. Þar er margt sem gleður augað og gaman er að fara um hann og jafnvel vill- ast aðeins en lítil hætta er á að villast til lengdar þar sem það er hægt að komast út um göt á mörgum stöðum.“ Meðlimir Hellarannsókna- félagsins búa yfir gífurlegri reynslu í umgengni um hella að sögn Guðna. „Hlutverk okkar er fyrst og fremst að skjalfesta hella og stuðla að verndun og varðveislu þeirra. Þó hafa of miklar skemmdir orðið á ís- lenskum hellum og lítum við á það sem okkar hlutverk að koma í veg fyrir að þær haldi áfram. Þessu getur fylgt aðgangsstýring í hellana, eða jafnvel lokun, sem þykir sjálfsögð í þeim löndum sem komin eru lengra en við í hellaverndun.“ Nánari upplýsingar um fjölda aðgengilegra hella, æskilegan öryggisbúnað og fjölda fallegra ljósmynda má finna á vef Hella- rannsóknafélags Íslands, www. speleo.is. ■ st arri@365.is Smáralind facebook.com/CommaIceland Haustið nálgast, nýtt, spennandi og afslappað Skipholti 29b • S. 551 0770 Glæsilegar haustvörur komnar! Allar b uxur á Rýming asölun ni 50% afsláttu r! Rýmingasala hafin af útsöluvörum! 1 1 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 B 6 -D 1 D C 1 5 B 6 -D 0 A 0 1 5 B 6 -C F 6 4 1 5 B 6 -C E 2 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.