Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 16
12. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT Guðrún Hannesdóttir Kristín Hannesdóttir Halla Hannesdóttir Páll H. Hannesson Pétur H. Hannesson og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts foreldra okkar HANNESAR PÁLSSONAR OG SIGRÚNAR HELGADÓTTUR Sólheimum 42, Reykjavík. Bróðir okkar, mágur og frændi, GUNNAR SIGHVATSSON GUNNI FRÆNDI húsasmíðameistari Frostafold 32, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 9. ágúst. Útförin auglýst síðar. Sigrún Sighvatsdóttir Jón Gústafsson Ólöf Sighvatsdóttir Þorvaldur Bragason Gísli Sighvatsson Kristjana G. Jónsdóttir Ástrós Sighvatsdóttir og systkinabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR JÓHANNSDÓTTUR frá Vörum, Garði. Guð blessi ykkur öll. Valgerður Þorvaldsdóttir Bragi Guðmundsson Halldór Kr. Þorvaldsson Kolbrún Valdimarsdóttir Ingimar J. Þorvaldsson Elín Kjartansdóttir Vilberg J. Þorvaldsson Helena Rafnsdóttir Þorvaldur Þorvaldsson Mikkalína Þ. K. Finnbjörnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN GUÐNADÓTTIR hjúkrunarfræðingur, andaðist á Landspítalanum 6. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. ágúst kl. 15.00. Kári Sigfússon Guðni Már Kárason María Hrönn Magnúsdóttir Sigfús Ásgeir Kárason Birna Jónsdóttir Kristín Helga Káradóttir og barnabörn. Elskulegur bróðir okkar og frændi, EIÐUR VALUR STEINGRÍMSSON Beisi frá Ingvörum, mjólkurbílstjóri, lést mánudaginn 10. ágúst. Jarðarförin fer fram í Dalvíkurkirkju laugardaginn 15. ágúst kl. 13.30. Jarðsett verður að Tjörn. Systkini og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona, amma og langamma, SIGRÍÐUR HREFNA MAGNÚSDÓTTIR Lundi 3, Kópavogi, lést fimmtudaginn 5. ágúst sl. Jarðarförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 13. ágúst kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á barnaspítalasjóð Hringsins. Ásta Pétursdóttir Júlíus Bjarnason Erla Pétursdóttir Ísleifur Leifsson Guðrún Sylvía Pétursdóttir Ólöf Sylvía Magnúsdóttir Guðmundur Kr. Guðmundsson ömmubörn og langömmubörn. Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS JÓNSDÓTTIR Halldórsstöðum í Köldukinn, fyrrv. húsfreyja í Hriflu, lést þann 5. ágúst á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Húsavík. Hún verður jarðsungin frá Þorgeirskirkju að Ljósavatni laugardaginn 15. ágúst næstkomandi kl. 11.00. Sigtryggur Vagnsson Hávar Örn Sigtryggsson Guðbjörg Kristín Jónsdóttir Sigrún Birna Sigtryggsdóttir Sigvaldi Óskar Jónsson Vagn Haukur Sigtryggsson Margrét Sólveig Snorradóttir Björg Jóna Sigtryggsdóttir Ari Rúnar Sigurðsson barnabörn og langömmubörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, FRIÐRIK I. GUÐMUNDSSON byggingatæknifræðingur, Hamraborg 32, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ föstudaginn 7. ágúst sl. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 14. ágúst nk. kl. 15.00. Guðmundur B. Friðriksson Ríkharður F. Friðriksson Elín Gränz og barnabörn. Yndisleg eiginkona mín, mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, RAGNHILDUR JÓNSDÓTTIR frá Neskaupstað, Drekavöllum 18, Hafnafirði, lést á Landakotsspítala þann 9. ágúst. Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 21. ágúst kl. 15.00. Karl Finnbogason Jón H. og Erla Finnbogi, Jóna Dóra og Guðmundur Árni Heimir og Rúna ömmubörn og langömmubörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir, og amma, ELÍN KOLBEINSDÓTTIR Fróðengi 1, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 2. ágúst sl. verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 13. ágúst kl. 13.00. Grétar Zóphaníasson Hjálmar Árnason Kolbeinn Árnason Harpa Barkar Barkardóttir systkini og ömmubörn. „Uppbyggingarstarfið hér er búið að vera hobbý hjá fjölskyldu minni og vinum í bráðum átta ár,“ segir Þórar- inn Magnússon byggingarverkfræðing- ur og hvatamaður þess að reisa sam- komuhúsið á Nauteyri við norðanvert Ísafjarðardjúp úr rústum. Það verður vígt á laugardaginn sem safn og fræða- setur, tengt minningu Aðalsteins Krist- mundssonar, sem tók sér skáldanafnið Steinn Steinarr og var fæddur á Lauga- bóli í Skjaldfannardal árið 1908. Húsið skiptist í 50 m² fræðimanns- íbúð og 100 m² safn. Íbúðin er með öllum nauðsynlegum búnaði og í safn- inu er sýning sem Ólafur Jóhann Ingi- bergsson hjá Sögumiðlun og Björn Björnsson leikmyndahönnuður eiga mestan heiður að. Þar eru sýningar- spjöld sem lýsa ævi og starfi Steins, hljóðupptökur með ljóðalestri hans og þáttum um hann, munir frá tíma skáldsins, bókahorn og myndefni á skjáum. Þórarinn hefur haldið utan um verk- efnið frá byrjun. „Hugmyndin að Steins- húsi kviknaði í bústað okkar hjónanna hér á Nauteyri þar sem við höfðum brunarústirnar fyrir augum. Við heyrð- um rætt í fjölmiðli um væntan legt ald- arafmæli Steins en hann var fæddur hér í hreppnum. Ég fékk grænt ljós hjá eigendum rústanna og hélt að ekkert mál yrði að fá fé til uppbyggingarinnar enda var árið 2007 en forsendur breytt- ust um það leyti sem framkvæmdir hóf- ust í september 2008.“ Þegar fé úr brunabótum og frá menningarráði Vestfjarða var upp- urið sneri Þórarinn sér til hönnuða, verktaka og iðnaðarmanna sem hann þekkti. Sagðist geta lofað þeim tvennu ef þeir tækju þátt í endurreisninni á Nauteyri, í fyrsta lagi að þeir fengju aldrei borgað og í öðru lagi að um skemmtilegt verkefni yrði að ræða. „Frá haustinu 2009 fram á síðasta haust voru farnar ótal vinnuferðir úr Reykjavík, gist í bústað fjölskyldunnar, ég eldaði og á kvöldin var farið í heita pottinn,“ lýsir hann. „Þetta varð vin- sælt og menn spurðu gjarnan, hvenær verður næst farið í Djúpið?“ Nú er framkvæmdum lokið, að sögn Þórarins. Allt fékkst gefins sem laut að húsinu, vinna, innréttingar, húsgögn, tæki og borðbúnaður. Vegagerðin útbjó bílastæði og setti upp skilti við vega- mót þjóðvegar 1, sem vísar á staðinn. „Ef hægt væri að verða doktor í sníkj- um yrði ég efnilegur nemandi, ef ekki bara kennari,“ segir Þórarinn glaðlega. „Nú erum við bara að taka til. Þegar eru farnir að koma gestir og þeir verða örugglega margir á laugardaginn á opnunarhátíðinni. En svo verður safnið lokað fram á næsta sumar en þá verða líka kaffiveitingar á boðstólum.“ gun@frettabladid.is Steinshús byggt með elju, góðvild og gjöfum Samkomuhúsið á Nauteyri í Ísafj arðardjúpi, sem eyðilagðist í eldi árið 2002, hefur verið endurbyggt og verður opnað á laugardag sem fræðasetur til minningar um Stein Steinarr. ALLT TILBÚIÐ Þórarinn og Sigríður Aust- mann Jóhanns- dóttir, kona hans, í Steinshúsi. Opnunarathöfn verður í Steinshúsi á Nauteyri laugardaginn 15. ágúst 2015 klukkan 14. Ávörp flytja: Þórarinn Magnússon stjórnarformaður Steinshúss, Ása Ketilsdóttir kvæðakona, ábúandi á Laugalandi, Össur Skarphéðinsson fyrir hönd Vina Steins, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður, Kristín Helga Gunnarsdóttir, formaður Rithöfundasambands Ís- lands, Ólafur J. Engilbertsson, höfundur sýningarinnar. Loks mun Elfar Logi Hannesson flytja ljóð eftir Stein og KK leika nokkur lög. Allir áhugasamir um Stein Steinarr og verk hans eru boðnir hjartanlega velkomnir. Dagskráin á laugardag 1 1 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 B 6 -E A 8 C 1 5 B 6 -E 9 5 0 1 5 B 6 -E 8 1 4 1 5 B 6 -E 6 D 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.