Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 22
 | 6 12. ágúst 2015 | miðvikudagur Íslenska veðmálasíðan Fanaments var opnuð um mánaðamótin. Vef- síðan er bæði hönnuð af og í eigu íslenskra frumkvöðla en er skráð á Möltu þar sem fyrirtækið er með veðmálaleyfi . Guðmundur Sveinsson, yfi rmað- ur tæknimála hjá Fanaments, segir markmið fyrirtækisins að komast í fremstu röð í veðmálaheiminum. Fyrirkomulagi Fanaments svipar til draumaliðsdeilda þar sem spil- arar velja leikmenn sem gefa stig fyrir frammistöðu sína. Stigahæstu spilarar í hverri umferð vinna þá upphæðir sem safnast hafa með veðmálum annarra spilara. Hægt er að veðja á golf, fótbolta, körfu- bolta og blandaðar bardagaíþróttir hjá Fanaments. Guðmundur segir slíka veðmála- leiki hafa notið mikilla vinsælda í Bandaríkjunum. Enn séu sóknar- færi í Evrópu sem fyrirtækið hygg- ist nýta. „Við stefnum á að verða jafn stórir í Evrópu og þessir aðilar eru í Bandaríkjunum,“ segir hann. - ih Hjá hin íslenska Fanaments er fé lagt undir á draumalið notenda: Opna veðmálasíðu fyrir íþróttaviðburði Önundur Páll Ragnarsson var á dögunum ráðinn á fjármálastöðug- leikasvið Seðlabanka Íslands og hefur störf um miðjan ágúst. Hann mun ganga til liðs við teymi hjá bankanum sem vinnur að mótun þjóðhagsvarúðarstefnu. „Þetta snýst í aðalatriðum um það að innleiða og framfylgja mælikvörðum, eða vísum, sem segja til um það hvort kerfi slæg áhætta sé að myndast í bankakerf- inu og hvort kerfi ð geti staðið af sér högg eða skelli sem hagkerfi ð í heild kann að verða fyrir,“ segir Önundur í samtali við Markaðinn. Þessir þjóðhagsvísar eigi þá að vera til þess fallnir að hægt sé að sjá kerfi slæga áhættuþætti mynd- ast tímanlega, svo að hægt sé að grípa inn í ef þurfa þykir. Þann- ig geti þessir vísar auðveldað og rökstutt ákvarðanir um inngrip eða reglusetningu sem yfi rmenn bankans telja nauðsynlega. Önundur útskrifaðist nýlega úr námi á Spáni með M.S.-gráðu í þjóðhagfræðilegri stefnumótun og fjármálamörkuðum. „Barcelona GSE er bara fyrir meistaranám í hagfræði og er samstarfsverkefni tveggja góðra háskóla og tveggja rannsóknarstofnana á sviði hag- fræði,“ útskýrir Önundur. Hann sótti skólann rétt utan við Barce- lona, en naut leiðsagnar kenn- ara frá bæði Universitat Pompeu Fabra og Universitat Autonoma de Barcelona. Önundur segir að námið hafi verið góður undirbúningur fyrir það starf sem hann tekur nú að sér. „Af því að í þessu námi fékk ég góða innsýn í grundvallaratriðin í þjóðhagfræði og líkanasmíð og tímaraðagreiningu, sem er mikið notuð í þjóðhagfræði. Svo fékk maður innsýn í peningamálahag- fræði og mín lokaritgerð var á því sviði,“ segir Önundur. Hann hafi líka fengið góða innsýn í reglu- verk fjármálamarkaða og nýjustu skrif hagfræðinga um þjóðhags- varúðarstefnu. Önundur hafði áður starfað tímabundið hjá Seðlabanka Íslands áður en hann fór til Spánar í nám. Einnig hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og þar áður var hann blaðamaður hjá Morgun- blaðinu. „Ég var blaðamaður 2007 til 2011, frá góðæri og fram í lung- ann af kreppunni. Og ég myndi bara segja að það hafi verið gríðar- lega góður skóli. Maður hafi full- orðnast mikið og fræðst mikið,“ segir Önundur. Reynslan úr blaða- mennskunni muni alveg klárlega nýtast í nýja starfinu og öllum þeim störfum sem hann muni taka sér fyrir hendur. Helstu áhugamál Önundar eru veiði, bóklestur, þjóðfélagsmál og ekki síst kórsöngur. „Ég er með- limur í karlkórnum Esju,“ útskýr- ir Önundur. Esja er ungur kór en hróður hans eykst sífellt. „Mér skilst það. Ég var náttúrlega fjar- verandi í vetur en mér skilst að hróður kórsins hafi aukist mjög. Og hann hafi verið uppbókaður stóran hluta vetrar. Ég hlakka mikið til að fara á fyrstu æfi nguna í haust. Við æfum einu sinni á viku, á mið- vikudögum eftir vinnu,“ segir Önundur. Kórinn hefur aðstöðu í safnaðarheimili Háteigskirkju en Önundur segir kórinn þó ekki vera kirkjukór. jonhakon@frettabladid.is Bíður spenntur eftir fyrstu kóræfingunni Önundur Páll Ragnarsson hefur verið ráðinn á fjármálastöðug- leikasvið Seðlabankans. Þar mun hann taka þátt í að móta þjóð- hagsvarúðarstefnu. Í frítímum syngur hann í karlakórnum Esju. STÓRHUGA Starfsmenn Fanaments ætla sér að ná langt í veðmálabrans- anum. MYND/FANAMENTS NÝKOMINN FRÁ SPÁNI Önundur Páll Ragnarsson útskrifaðist nýlega úr námi á Spáni með meistaragráðu í þjóðhagfræðilegri stefnumótun og fjármálamörkuðum. Hann segir námið hafa verið góðan undirbúning fyrir nýja starfið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Önundur er greindur, duglegur og framtakssamur maður. Einnig er hann mikill húmoristi sem auðvelt er að umgangast. Hjá honum er ekkert sem heitir að fara hálfa leið, það er allt eða ekkert. Á það jafnt við um áhugamál, nám og störf. Umfram allt er hann þó ákaflega traustur og góður vinur. Magnús Davíð Norðdahl héraðsdómslögmaður Önundur er yfirvegaður og lætur lítið yfir sér en samt er grunnt á húmorinn hjá honum. Hann kom í hagfræðinámið – vel þurr á bak við eyrun – með reynslu úr námi í sagnfræði og blaða- mennsku sem hefur gefið honum ákveðna dýpt sem hagfræð- ingur. Hann er mjög vel ritfær og á létt með að setja hlutina upp með skipulegum og skýrum hætti. Eftir fjármálakrísuna hefur vegur peningamagnskenninga vaxið mjög í heiminum – en fyrir 2008 var það almennt viðkvæði meðal hagfræðinga að peningamagn skipti ekki máli. Önundur hefur lagt sérstaka áherslu á þessi fræði bæði í náminu hér heima og ytra og það verður virkilega spennandi að sjá til hans í starfi hjá Seðlabankanum. Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við HÍ VEL RITFÆR HÚMORISTI Þetta snýst í aðalatriðum um það að innleiða og framfylgja mæli- kvörðum eða vísum sem segja til um það hvort kerfislæg áhætta hafi myndast. NÝMÆLI Á VERÐBRÉFAMARKAÐI MORGUNVERÐARFUNDUR FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ THE FINANCIAL SUPERVISORY AUTHORITY, ICELAND 1. Opnun fundarins – Sigurveig Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri vettvangs- og verðbréfaeftirlits Fjármálaeftirlitsins 2. Steven Maijoor, stjórnarformaður Evrópska verðbréfa- og markaðs- eftirlitsins (ESMA), kynnir helstu áherslur þess árið 2015 3. EMIR reglugerðin og áhrif hennar á Ísland – Andri Már Gunnarsson, sérfræðingur FME Vinsamlegast skráið þátttöku á fme@fme.is fyrir dagslok 19. ágúst 4. Umræður og spurningar úr sal Fjármálaeftirlitið (FME) býður til opins morgunverðarfundar föstudaginn 21. ágúst í Gullteigi á Grand Hóteli. Húsið verður opnað kl. 8.00 með léttum morgunverði. Dagskrá hefst kl. 8.15 og stendur til kl. 10.00. 1 1 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 B 6 -E 5 9 C 1 5 B 6 -E 4 6 0 1 5 B 6 -E 3 2 4 1 5 B 6 -E 1 E 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.