Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 8
12. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8 OFBELDISMÁL „Hann byrjaði aftur að ofsækja mig eftir að hann áfrýj- aði dómnum í byrjun júlí. Skila- boðin sem ég hef fengið á einum mánuði eru um tvö hundruð. Bara í dag hef ég fengið fimmtán skila- boð frá honum,“ segir Ásdís Hrönn Viðarsdóttir sem hefur ítrekað kært hótanir og brot á nálgunar- banni sem sett var á fyrrverandi sambýlismann hennar, fyrst árið 2012. Ásdís og maðurinn bjuggu saman í um tíu mánuði árið 2011 og eftir að samvistum lauk hefur hann meira og minna ofsótt hana. Ásdís sagði sögu sína í Kastljósi í fyrra og lagði þar áherslu á að nálgunarbann væri fullkomlega gagnslaust þegar lögregla brygðist ekki við því þegar það væri brotið. Af ótta við manninn ákvað Ásdís árið 2013 að flýja til Þórshafnar á Langanesi, ásamt börnum sínum og býr þar enn í dag. 26. júní síðastliðinn féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness gegn fyrrverandi sambýlismanni Ásdís- ar. Að sögn Ásdísar var hann meðal annars sakfelldur fyrir lík- amsárás, um átta hundruð brot á nálgunarbanni, brot gegn barna- verndarlögum og að hafa brotið gegn blygðunarsemi hennar. Hann hlaut fimmtán mánaða dóm, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundna. Maðurinn hefur áfrýjað dómn- um. „Og þá byrjuðu ofsóknirnar aftur, eftir árs pásu. Nú þarf ég aftur að sitja undir óhróðri og hót- unum frá honum,“ segir Ásdís. „Ég mun aldrei gefast upp“, „Þú ert lygari og átt eftir að fá þetta í bakið“, og „Ég er ekki að fara neitt“ eru dæmi um nýleg skila- boð sem Ásdís hefur fengið. Hún segir hann senda foreldr- um sínum og núverandi sambýlis- manni skilaboð líka. „Hann er meira að segja farinn að senda börnum hans.“ Að sögn Ásdísar hefur þessi tími reynst mjög erfiður og veit hún ekki hvað er hægt að gera í stöðunni. Ásdís keyrði frá Þórshöfn til Akureyrar í byrjun júlí til þess að láta taka afrit af skilaboðun- um. „Ég krafðist nálgunarbanns hjá lögreglustöðinni á Þórshöfn og fór svo til Akureyrar á lögreglu- stöðina samdægurs með símann,“ segir Ásdís. „Ég hef ég ekkert heyrt frá lögreglunni. Það þarf eitthvað að laga í þessu kerfi, þetta er ekki hægt,“ segir Ásdís og bætir við að nú sé kominn mánuður síðan hún bað um nálgunarbann en það hafi enn ekki gengið úrskurður. „Ég er orðin svo ótrúlega þreytt á þessu.“ nadine@frettabladid.is Ofsóknir aftur eftir árs hlé Ásdís Hrönn Viðarsdóttir hefur ítrekað kært brot á nálgunarbanni sem sett var á fyrrverandi sambýlismann hennar, fyrst árið 2012. Maðurinn var í júlí dæmdur fyrir ýmis brot gegn Ásdísi. Hann áfrýjaði og hefur tekið upp ofsóknir á ný. ÁSDÍS HRÖNN VIÐARSDÓTTIR Af ótta við fyrrverandi sambýlismann sinn flutti Ásdís Hrönn Viðarsdóttir til Þórshafnar árið 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BELGÍA Yfirvöld í Evrópusam- bandinu hafa ákveðið að fram- lengja stuðning til bænda innan sambandsins vegna viðskipta- þvingana Rússlands sem bann- ar innflutning á matvælum frá Evrópusambandinu. Aðstoð sambandsins var komið á í fyrra og hefur verið ákveðið að halda aðstoðinni áfram og mun hún vara til júní 2016. Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra hefur viðrað þá hugmynd að taka upp aðstoð af svipuðum toga ef Ísland verður fyrir þvingunum. - srs Þvingunaraðgerðir Rússa: Endurnýja að- stoð til bænda FRAMKVÆMDASTJÓRN ESB Aðstoðin nær til ársins 2016. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞORGILS SVEITARSTJÓRNARMÁL Listamenn taka þátt Ný alþjóðleg listahátíð, Cycle Music and Art Festival, fer fram í Kópavogi 13. til 16. ágúst. Um hundrað lista- menn, innlendir sem erlendir, taka þátt eða eru með verk á hátíðinni sem sýnd verða víða um bæ. Viðburðir eru alls 37 auk myndlistarsýningar. Miðpunktur hátíðarinnar er í menningarhúsum bæjarins, Gerðarsafni, Salnum, Nátt- úrufræðistofu Kópavogs og Bókasafni Kópavogs. Ókeypis er inn á flesta við- burði og eru allir velkomnir. 1 1 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 B 6 -E F 7 C 1 5 B 6 -E E 4 0 1 5 B 6 -E D 0 4 1 5 B 6 -E B C 8 2 8 0 X 4 0 0 5 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.