Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 21
 5 | 12. ágúst 2015 | miðvikudagur a af mörkum ur Íslandsspila skipti sífellt minna máli fyrir neyðina á Íslandi að verða sýnilegri. verkefni,“ segir Hermann og bætir við að sjálfboðaliðarnir sem starfi með deildunum séu í kringum 3.500. Hann segir að áttatíu sjálfboðaliðar starfi við hjálparsímann 1717. Síðan eru þrír fastir starfsmenn sem eru félagsráðgjafar að mennt og vinna í faglegri umsjón og þjálfun með sjálfboðaliðum. Eitt verkefni Rauða krossins er rekstur sjúkrabíla á landinu. „Þetta eru 78 bílar úti um allt land. Við gerum samning við velferðar- ráðuneytið um innkaup og rekstur þessara sjúkrabíla. Og við leggj- um umtalsvert fjármagn inn í það samstarf. Og við sjáum svo algjör- lega um rekstur þeirra, útboð og allt sem viðkemur þeim tækjum og tólum sem þarf í sjúkrabílana,“ segir Hermann, en bætir því við að Rauði krossinn sjái ekki um að manna bílana. Það sé misjafnt eftir landshlutum hvernig því er fyrir komið. Á höfuðborgarsvæð- inu er það Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins sem sér um að manna bílana. „Rauðakrossdeildirnar víða um landið voru stofnaðar í kringum sjúkrabílana. Af því að þetta er svo gríðarlegt öryggisatriði og aðkoma Rauða krossins í þessu máli er ekki síst til þess að tryggja að byggðirn- ar úti um landið fái líka góða bíla og að það sé eðlileg endurnýjun á þeirra bílum líka. Ég hef alltaf sagt að þetta sé ódýrasta byggðastefna sem er í framkvæmd á Íslandi. Það er að hafa almennileg sjúkrafl utn- ingatæki,“ segir Hermann. Sé tekið mið af þjónustu ykkar, myndirðu segja að það væri vaxandi neyð á Íslandi? „Neyðin hrópar hærra og hún er að verða sýnilegri. Við fi nnum það bara í gegnum heimsóknarþjón- ustuna okkar og í gegnum Hjálpar- símann,“ segir Hermann. Það sé eitthvað að breytast í samfélags- gerð okkar sem ekki sé hægt að festa hendur á. „Við erum að reyna að ná til fólks sem við vitum að er í ákveðinni hættu. Við erum að reyna að ná til unga fólksins. Í Hjálpar- símanum erum við núna að leggja áherslu á að reyna að ná til ungra karlmanna sem eru í sjálfsmorðs- hugleiðingum og reyna að fá þá til að tala og stíga fyrstu skrefi n út úr vítahringnum. Við erum að taka núna upp símaþjónustu fyrir spila- fíkla sem er hluti af þeirri ábyrgð sem við berum gagnvart okkar sam- félagi,“ segir Hermann. Rauði krossinn á aðild að rekstri Íslandsspila sem halda úti spila- kössum. Er þetta eitthvað sem ykkur þykir óþægilegt að reka? „Í sjálfu sér ekki. Þetta er gamalt fyrirtæki sem við eigum með SÁÁ og Landsbjörg og við erum í hópi mjög margra íþrótta- og góðgerðar- félaga á Íslandi og menntastofnana sem eru á happdrættismarkaði,“ segir Hermann. Þetta sé einfaldlega partur af fjármögnun Rauða kross- ins og fjármunirnir sem þarna fáist séu nýttir til góðs. Íslandsspil sé ein- ungis með um 10 prósent af spila- markaðnum. „ Á þessum markaði er íþróttahreyfi ngin, Háskólinn, SÍBS, DAS og ótal aðilar ,“ segir Hermann. Lottóið og getraunir eru þarna lang- stærst.“ Hann segir tekjur frá Íslandsspil- um skipta sífellt minna máli í fjár- mögnun Rauða krossins og stöðug hugmyndavinna sé í gangi til að fi nna nýjar tekjuöfl unarleiðir. Til dæmis hafi verið farið í samstarf við CCP og spilarana í Eve Online, sem hafi gengið vel. „Við fengum frá þeim 190 þúsund dollara til uppbygg- ingar eftir hamfarirnar á Filippseyj- um 2013 og núna 130 þúsund til verk- efna í Nepal. Síðan erum við að auka samstarf okkar við fyrirtæki til þess að gefa þeim kost á því að koma að þessu. Auðvitað er það partur af samfélagsábyrgð að taka þátt í góð- gerðarstarfsemi,“ segir Hermann. Upphæðirnar sem safnað var sam- svara 25 milljónum króna til Filipps- eyja og 17 milljónum króna til Nep- als miðað við gengi dagsins í dag. Á annan milljarð í tekjur Hermann segir að Rauði krossinn hafi verið með á annan milljarð í tekjur á síðasta ári. Það sé mark- miðið að skila ekki hagnaði. „Nema það sem eðlilegt er og að við séum réttum megin við núllið. Allir okkar peningar eiga að fara til góð- gerðarmála og við höfum verið að skera niður markvisst í umsjónar- kostnaði og mikil hagræðing hefur átt sér stað síðustu tvö árin,“ segir Hermann. Það sé markmiðið að einungis tólf prósent eða minna af tekjunum fari í umsýslu- og stjórn- unarkostnað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hafa ber í huga að ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á framtíðarárangur. Gengi sjóðsins getur bæði hækkað og lækkað og fjárfestar kunna að fá minna til baka en upphaflega var fjárfest fyrir. Ávöxtunartölur eru fengnar hjá Landsbankanum sem er vörsluaðili sjóðsins. Landsbankinn er söluaðili sjóða Landsbréfa. Komdu við í næsta útibúi eða hafðu samband við Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf í síma 410 4040. Landsbréf – Úrvalsbréf eru árfestingarsjóður, starfræktur í samræmi við lög nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, árfestingar sjóði og fag ár festa sjóði og lúta eirliti Fjármálaeirlitsins. Rekstrarfélag sjóðsins eru Landsbréf hf. og vörslufélag er Landsbankinn hf. Fjárfesting í árfestingarsjóði telst almennt áhættumeiri en árfesting í verðbréfasjóði vegna rýmri ár festinga heimilda. Innlausnarvirði hlutdeildarskírteina sjóðsins er virði samanlagðra eigna að frádregnum skuldum sjóðsins, s.s. ógreiddri umsýslu, þóknunum og öðrum gjöldum. Nánari upplýsingar um sjóðinn, skattlagningu hlutdeildarskírteina og áhættu þætti við ár festingu í sjóðnum má sjá í útboðslýsingu sjóðsins og lykilupplýsingum sem finna má á vefsvæði Landsbréfa, landsbref.is. Meðaltal nafnávöxtunar Úrvalsbréfa á ársgrundvelli miðað við 30.06. 2015 4 ár 17,8% 5 ár 18,8% 3 ár2 ár1 ár 21,7%22,4% 34,5% Góð ávöxtun Úrvalsbréfa Landsbréf – Úrvalsbréf hafa skilað góðri ávöxtun síðastliðin ár. Sjóðurinn er hlutabréfasjóður. Að baki Úrvalsbréfum er teymi fólks með mikla reynslu, víðtæk tengsl við markaðinn og þekkingu á íslensku viðskiptalífi. Fjárfesting í hlutabréfasjóðum felur ætíð í sér áhættu. Fjárfesting í hlutdeildarskírteinum árfestingarsjóða er þó að jafnaði öruggari en þegar keyptir eru einstakir ármálagerningar, þar sem hver sjóður dreifir áhættu árfesta með kaupum í fleiri en einum flokki ármálagerninga. Hlutabréf eru í eðli sínu áhættusöm árfesting og afkoma þeirra félaga sem sjóðurinn á hlutabréf í hefur bein áhrif á gengi sjóðsins. Nauðsynlegt er að árfestar kynni sér vel þá áhættu sem fólgin er í því að árfesta í hlutabréfasjóðum með því að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins áður en ákvörðun er tekin um árfestingu. Það eru þeir sem bera uppi starfið í deildunum og koma saman og sjá um að þessi verk séu unnin. 1 1 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 B 6 -E A 8 C 1 5 B 6 -E 9 5 0 1 5 B 6 -E 8 1 4 1 5 B 6 -E 6 D 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.