Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 32
USD 133,18 GBP 207,82 DKK 19,71 EUR 147,10 NOK 16,26 SEK 15,30 CHF 135,70 JPY 1,07 Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Gengi gjaldmiðla 6.664,54 71,68 -71,68 (1,06%) Viðskiptavefur Vísis @VisirVidskipti STJÓRNAR - MAÐURINN @stjornarmadur 06.08.2015 Þegar stjórnvöld taka ákvörðun sem hér virðist hafa verið tekin er ástæða til að vanda þar til verka og hafa samráð við þá sem þessara hagsmuna hafa að gæta og að umræða um þetta allt saman sé uppi á borðum. Okkur þykir hafa skort á það. Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Hótelherbergjum á landsvísu hefur fjölgað um 28% á árabilinu 2010-2014 eða um rúmlega 6% á ári að meðaltali. Framboðið hefur aukist hlutfallslega mest á Suðurnesjum, Suðurlandi, Vestfjörðum og Vesturlandi, en einnig þó nokkuð á höfuðborgar- svæðinu. Lítil framboðsaukning hefur verið á Austurlandi og samdráttur á Norðurlandi. Á sama tíma fjölgaði erlendum ferðamönnum um 111% eða um meira en 20% á ári að meðaltali. 6% AÐ MEÐALTALI Mest aukning á Suður- og Vesturlandi Fjármálaráðgjöf Capacent gerir ráð fyrir rúmlega 0,1% hækkun vísitölu neysluverðs í ágúst. Gangi þetta eftir mun verðbólgan á ársgrundvelli lækka úr 1,9% í 1,8%. Verðbólgan lúrir því enn vel undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Það sem helst hefur áhrif til lækkunar vísitölunnar er lækk- andi olíuverð og lægri flugfargjöld. Áhrifa útsölu- loka gætir hins vegar og mjólkurverðshækkun hefur einnig áhrif til hækkunar á vísitölu. 1,8 PRÓSENT Capacent spáir minni verðbólgu Verslun Dunkin’ Donuts var opnuð á dögunum á Lauga- vegi, en líklegt er að mót- tökurnar hafi farið fram úr björtustu vonum þeirra sem að standa. LÖNG RÖÐ myndaðist strax kvöldið fyrir opnunina, og samkvæmt því sem fram kom í fjölmiðlum seldust um 16 þúsund kleinuhringir fyrsta daginn. Lítið virðist vera að draga úr hungri Reykvík- inga í kleinuhringi, en þegar þetta er ritað tæpri viku síðar horfir stjórnarmaðurinn út á Laugaveg þar sem röðin snigl- ast í átt að Bankastræti. MARGIR HAFA þó orðið til þess að furða sig á vinsæld- unum og hafa sakað gesti staðarins um lágmenningu, lágkúru og fleira í þeim dúr. Þetta hefur verið sérstak- lega áberandi meðal fjöl- miðlamanna sem hafa látið sleggjudóma sem þessa falla í útvarpi, á samfélagsmiðlum og víðar. EINHVERJIR hafa meira að segja gefið í skyn að með því að kaupa varning frá Dunkin’ Donuts sé fólk með einhverj- um hætti að sýna þjóð sinni óhollustu, eins og fólki eigi að renna blóðið til skyldunnar og gæða sér á dönskuskotnu bakarískruðeríi í staðinn (sem er í flestum tilvikum innflutt frosið). STJÓRNARMAÐURINN hefur alla tíð átt erfitt með að skilja menningarlega hreinræktar- stefnu á borð við þessa. Hvernig er Dunkin’ Donuts t.d. frábrugðið rótgrónum kaffihúsum eins og Kaffi- tári eða Te og kaffi? Dunk- in’ Donuts er vitanlega rekið samkvæmt sérleyfi og ber erlent nafn, en í báðum til- vikum er um að ræða íslenska rekstraraðila, og í báðum til- vikum er verið að flytja nýja siði til landsins. EÐA ER kaffi og croissant allt í einu orðið íslenskara en kaffi og kleinuhringur? Vitan- lega ekki. Eru það sömuleiðis orðin sérstök mannréttindi að fá að kaupa mjólkurkaffi á 600 krónur í miðbænum, og að geta ekki nálgast ódýrari kost nema með því að fara upp í bíl og aka á næstu bensínstöð? MÖGULEGA mætti gagnrýna Dunkin’ Donuts og fleiri staði á grundvelli lýðheilsusjónar- miða, en þá skal eitt yfir alla ganga – pitsur, hamborgara, kleinur, vínarbrauð og djöfla- tertur þurfa sömuleiðis að víkja. ER SAMT ekki bara einfald- ast að fólk fái að bera sjálft ábyrgð á því hvað það lætur ofan í sig? Bakkelsisfárið O S C A R I S A A C Með Skemmtipakkanum fylgja sex sjónvarpsstöðvar, GSM, internet, heimasími, Stöð 2 Maraþon og aðild að Vild. SKEMMTIPAKKINN ©2015 Home Box Office, Inc. All rights reserved. HBO® and all related programs are the property of Home Box Office, Inc. Aðeins 310 kr. á dag *Gildir fyrir áskrifendur í tilboðspökkum 365. Nánari upplýsingar á 365.is. Allt það besta hjá 365 HEFST 27. ÁGÚST HEFST 13. ÁGÚST HEFST 9. ÁGÚST 25. ÁGÚST HEFST 24. ÁGÚST HEFST 17. ÁGÚST HEFST 9. ÁGÚST HEFST 30. ÁGÚST HEFST 26. ÁGÚSTMÁNUDAGA ENDALAUST TAL OG 10 GB Á 3.990 KR.* Færðu farsímann yfir til 365 og fáðu allt þetta frábæra sjónvarpsefni á fáránlega góðu verði. Nýir íslenskir og erlendir þættir í bland við kvikmyndir í sérflokki. Tryggðu þér áskrift núna á 365.is eða í síma 1817. Taktu maraþon af Breaking Bad eða Mad Men. Á Stöð 2 Maraþon eru meira en 800 klst. af sjónvarpsefni, úrvals seríum. MIÐVIKUDAGAALLA DAGA ÞRIÐJUDAGA SUNNUDAGA MÁNUDAGA ÞRIÐJUDAGASUNNUDAGA SUNNUDAGA 1 1 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 B 6 -F 9 5 C 1 5 B 6 -F 8 2 0 1 5 B 6 -F 6 E 4 1 5 B 6 -F 5 A 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.