Fréttablaðið - 12.08.2015, Page 2
12. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp,
13-20 m/s og talsverð rigning síðdegis, en
15-23 við suður- og vesturströndina og
á hálendinu og hviður allt að 35 m/s við
fjöll. Mun hægara og þurrt á N- og A-landi.
Dregur úr vindi og úrkomu í kvöld, en
hvessir með rigningu norðaustantil.
LÖGREGLUMÁL „Að loka á þessa
síðu er í skásta falli gagnslaust
og í versta falli beinlínis skað-
legt,“ segir Helgi Hrafn Gunnars-
son, þingflokksformaður Pírata,
um spjallborð sem Fréttablaðið
fjallaði um á mánudag. Á spjall-
borðinu deila Íslendingar haturs-
fullum skoðunum en spjallborðið
er hýst á bandarískri vefsíðu.
„Það er alltaf vandamál að ætla
að stjórna efni á netinu. Ef þú
ætlar að loka á efnið verður það
að eltingaleik sem er ekki hægt
að vinna nema með samstarfi
lögregluyfirvalda. Samstarfið
þarf að vera byggt á því að nota
hefðbundnar rannsóknarheim-
ildir. Þannig er til dæmis tekist á
við barnaklám. Maður nær ekki í
glæpamann með því að loka á vef-
síður,“ segir Helgi.
„Þegar kemur að hatursáróðri
er ekki ljóst við hvað er átt. Það
er dæmigert vandamál. Ef um er
að ræða tjáningu sem veldur rétt-
mætum ótta ber að rannsaka það
sem lögreglumál,“ bætir Helgi við.
Helgi segir tilgangslaust að
loka á vefsíðu sem þessa þar sem
sami hópur muni koma saman á
annarri vefsíðu, eða sækja sömu
vefsíðu með krókaleiðum, og ræða
sömu mál. „Skoðanirnar verða
áfram til án samfélagslegrar
gagnrýni. Umræðan mun þá fara
fram án þess að fólk sem er á móti
þessum skoðunum tjái sig,“ segir
Helgi.
Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirlögregluþjónn á höfuðborgar-
svæðinu, sagði í samtali við
Fréttablaðið á mánudag þurfa að
skoða hvort hægt sé að loka síð-
unni en ekki er víst hvort það er
lagalega framkvæmanlegt.
„Ef fólk vill fara að loka svona
vefsvæðum því þar finnst haturs-
áróður, hvar dregur maður lín-
una? Ætlar maður að banna
biblíuvers þar sem fjöldamorð
eru réttlætt, eða banna kóran-
inn? Ætlarðu að banna vefsíður
þar sem fólk er raunverulega að
takast á um dauðarefsingar eða
hvort herveldi megi pynta fanga?
Hvar ætlar fólk að setja mörkin
milli þess sem því finnst óþægi-
legt og ógeðslegt og hins vegar
mikilvægrar umræðu um erfið-
ustu mál samtímans? Erfiðustu
mál samtímans verða alltaf ógeðs-
leg,“ segir Helgi.
Eigandi síðunnar sem hýsir
spjallborðið, Fredrick Brennan,
er tvítugur Bandaríkjamaður.
„Rasismi er ekki ólöglegur í mínu
landi, negri,“ skrifaði hann á Twit-
ter-síðu sína um fréttina sem birt-
ist á mánudag.
thorgnyr@frettabladid.is
Skaðlegt að loka á
hatursáróðurssíðu
Helgi Hrafn Gunnarsson segir í skásta falli gagnslaust að loka á hatursáróðurs-
síður og í versta falli skaðlegt. Hann segir síðurnar spretta upp aftur sé þeim lokað.
Eigandi síðu sem hýsir íslenskt hatursáróðursspjallborð segir rasisma löglegan.
SKAÐLEGT Helgi Hrafn Gunnarsson segir í versta falli skaðlegt og í skásta falli
gagnslaust að loka á hatursáróðurssíður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Rasismi
er ekki ólög-
legur í mínu
landi, negri.
Fredrick Brennan
vefhönnuður.
RÚSSLAND Yfirvöld í Rússlandi
telja Noreg svívirða alþjóðlegan
sáttmála um málefni Svalbarða.
Nýleg tilskipun frá norsku ríkis-
stjórninni bannar tilteknum rúss-
neskum ríkisborgurum að heim-
sækja Svalbarða. Enn fremur
hefur Noregur innleitt nýjar landa-
mærareglur sem heimila þeim að
vísa öllum rússneskum ríkisborg-
urum sem eru á bannlistanum á
brott frá Noregi. Aðgerðin er hluti
af þvingunaraðgerðum Evrópu-
sambandsins gegn Rússlandi.
Samkvæmt sáttmálanum hafa
Rússar ferðafrelsi á svæðinu líkt
og þegnar þeirra ríkja sem eiga
aðild að sáttmálanum.
Dímítrí Rogosín, varaforsætis-
ráðherra Rússlands, er einn þeirra
sem er ekki heimilt að ferðast til
Svalbarða. Hann hefur lýst yfir
megnri vanþóknun á aðgerðum
Noregs og sagði meðal annars á
Twitter-síðu sinni að Norðmenn
væru öfundsjúkir þar sem Rúss-
ar hefðu stungið sér til sunds við
norðurpólinn.
Þá hefur Alexander Bortníkov,
formaður öryggismálanefndar
Rússlands, boðað aukna veru rúss-
neska flotans við norðurskautið.
Hann segir að með auknum við-
skiptahagsmunum og umferð á
svæðinu beri ríkinu að vernda sína
hagsmuni. Hann segir að Rússland
hafi svigrúm í alþjóðalögum til að
auka umferð herskipa um svæðið.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
hefur sett málefni norðurslóða
ofarlega í forgang undanfarin ár.
- srs
Yfirvöld í Rússlandi vilja auka veru sjóhersins á norðurskautinu til að vernda hagsmuni sína á svæðinu:
Sumir Rússar ekki velkomnir á Svalbarða
SVALBARÐI Margir Rússar starfa í
námuiðnaðinum á Svalbarða.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
SKJÁSKOT Netrisanum Google hefur verið skipt upp í nokkur fyrirtæki undir
móður fyrirtækinu Alphabet. NORDICPHOTOS/EPA
VIÐSKIPTI Netrisinn Google upplýsti í gær um ákvörðun um að skipta
fyrirtækinu upp í smærri einingar undir nýju móðurfyrirtæki, Alpha-
bet. Meðal nýju fyrirtækjanna sem munu starfa undir væng Alphabet
má nefna Nest, sem hannar snjallheimili, og drónavæng Google. Þá mun
Google enn halda utan um leitarvélina vinsælu, YouTube og Android.
Larry Page mun taka við starfi forstjóra Alphabet og Sergey Brin við
starfi stjórnarformanns en þeir stofnuðu Google. Sundar Pichai verður
forstjóri hins nýja Google en Eric Schmidt mun áfram gegna stjórnar-
formennsku. - þea
Alphabet er nýtt móðurfyrirtæki fyrirtækja Google:
Google skipt upp í smærri félög
NÍGERÍA Minnst 47 manns létust í
sprengjuárás í Nígeríu í gær.
Sprengjan sprakk á markaði
í Sabon Gari í norðausturhluta
landsins.
Alls særðust 52 en talið er að
vígamenn á snærum hryðju-
verkasamtakanna Boko Haram
hafi verið að verki.
Ekki liggur fyrir hvort sjálfs-
vígssprengjumaður var að verki
eða hvort sprengju hafi verið
komið fyrir.
Liðsmenn Boko Haram hafa
drepið hundruð manna í hér-
aðinu. - srs
Ráðist á markað í Nígeríu:
47 manns létust
í sprengjuárás
STJÓRNMÁL Unnsteinn Jóhanns-
son hefur verið ráðinn upplýsinga-
fulltrúi Bjartrar
framtíðar. Hann
mun einnig gegna
hlutverki aðstoðar-
manns Guðmundar
Steingrímssonar,
formanns Bjartrar
framtíðar.
Unnsteinn er útskrifaður úr
KaosPilot-námi í Hollandi og
Danmörku og hefur verið virkur
þátttakandi í félagastarfi, meðal
annars starfi Samtakanna ’78 og
skátahreyfingarinnar. - srs
Ráðinn sem aðstoðarmaður:
Björt framtíð
hjá Unnsteini
UNNSTEINN
JÓHANNSSON
VEÐUR
SJÁ SÍÐU 18
Snjallara heyrnartæki
HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð)
með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
SVÍÞJÓÐ Lögregla í Svíþjóð staðfesti í gær að karl-
mennirnir tveir sem réðust á viðskiptavini IKEA
í Västerås með hnífum í fyrradag hafi þekkst og
verið erítreskir, en þeir dvöldu á sömu móttöku fyrir
hælisleitendur.
Lögregla gerði húsleit í hælisleitendamóttökunni
einungis tveimur klukkustundum eftir árásina.
Mennirnir eru fæddir árið 1979 og 1992 og voru
báðir handteknir í kjölfar árásarinnar. Þá liggur sá
eldri inni á sjúkrahúsi eftir hnífsstungu sem talið
er að sá yngri hafi veitt honum. Yngri maðurinn var
handtekinn á strætisvagnastöð fyrir utan versl-
unina.
Tvö féllu í árásinni og voru þau mæðgin. Móðirin
var á sextugsaldri en sonurinn á þrítugsaldri.
„Við munum reyna að auka öryggisgæslu í móttöku
hælisleitendanna,“ segir Eva Moren, talsmaður lög-
reglunnar í Västerås. „Það er ekki hægt að útskýra
þessa árás. Þetta var algjört brjálæði,“ bætir hún við.
Yngri maðurinn sem handtekinn var hefur neitað
sök eftir að lögregla yfirheyrði hann. Ekki hefur enn
gefist tækifæri til að yfirheyra þann eldri en það
verður gert á næstu dögum. - þea
Lögreglan í Svíþjóð staðfestir að IKEA-árásarmennirnir tveir séu erítreskir:
Árásarmaður liggur á sjúkrahúsi
LÖGREGLUSTJÓRI Per Ågren, lögreglustjóri í Västerås, upplýsir
um þróun mála á blaðamannafundi í gær. NORDICPHOTOS/AFP
1
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
B
6
-C
C
E
C
1
5
B
6
-C
B
B
0
1
5
B
6
-C
A
7
4
1
5
B
6
-C
9
3
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K