Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 4
12. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
NEPAL Mörg börn á jarðskjálfta-
svæðinu í Nepal upplifa ótta og
óöryggi vegna þeirra aðstæðna
sem þau búa við eftir jarðskjálft-
ana sem þar ollu mikilli eyðilegg-
ingu í lok apríl á þessu ári. Þetta
kemur fram í fjölda viðtala sem
UNICEF og samstarfsaðilar tóku
við börn á svæðinu. Rætt var við
nærri 2.000 börn.
Neyðarsöfnun UNICEF á
Íslandi fyrir Nepal stendur enn
og hafa fjölmargir skráð sig í
áheitahlaup fyrir UNICEF á
Íslandi í Reykjavíkurmaraþoninu
í næstu viku. - ngy
Ræddu við 2.000 börn:
Börn í Nepal
upplifa ótta
EYÐILEGGING Mannskæður jarðskjálfti
reið yfir Nepal í lok apríl. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
VIÐSKIPTI Netverslun Íslendinga með föt og frá
útlöndum hefur margfaldast síðustu ár ef marka má
árbók Rannsóknarseturs verslunarinnar.
Erlend fataverslun sem Íslandspóstur annaðist
flutning á nam 76 milljónum króna árið 2009 en
630 milljónum króna á síðasta ári. Þá hefur verslun
með húsbúnað aukist verulega. Slík verslun nam 41
milljón króna árið 2009 en 296 milljónum króna árið
2014.
Heildarvelta netverslunar frá útlöndum sem
Íslandspóstur annaðist flutning á nam 1,47 millj-
örðum króna á síðasta ári en 1,04 milljörðum króna
árið 2013. Aukningin nam því fjörutíu prósentum
milli ára.
Stærstur hluti kaupanna var frá bandarískum
netverslunum eða 27 prósent og 24 prósent frá Bret-
landi.
Greining Rannsóknarsetursins náði einungis til
þeirra vara sem Íslandspóstur flutti til landsins en
ekki aðrir flutningsaðilar. - ih
Ríflega helmingur netkaupa var frá bandarískum og breskum verslunum:
Sprenging í fataverslun á netinu
VERSLUN Fatakaup á netinu hafa aukist. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
MENNTAMÁL „Markmið okkar
er að vinna að framförum í
menntun á Íslandi og vinna að
betri gæðum skólastarfs,“ segir
Arnór Guðmundsson, forstjóri
nýrrar stjórnsýslustofnunar á
sviði menntamála, Menntamála-
stofnunar.
Stofnunin hefur tekið til starfa
og varð formlega til með lögum
sem sett voru í byrjun júlí á
þessu ári. „Stofnunin tekur þó
ekki að fullu til starfa fyrr en 1.
október,“ segir Arnór.
Stofnunin sinnir þeim verk-
efnum sem Námsmatsstofnun og
Námsgagnastofnun hafa sinnt
hingað til auk fleiri verkefna sem
flutt verða frá mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytinu til hennar.
„Ég held að ávinningurinn sé
sá að stofnunin er nú stærri og
öflugri,“ segir Arnór og bætir
við að hlutverk stofnunarinnar
sé víðtækt. „Hún mun sjá um
námsmat og að meta gæði í skól-
um landsins. Sérfræðingar hjá
okkur heimsækja skólana og gera
úttektir. Jafnframt mun stofnun-
in greina menntakerfið og kanna
þannig hvernig það standi í sam-
anburði við önnur lönd. Auk þess
sér stofnunin um mál er lúta að
velferð nemenda, til dæmis um
aðgerðir gegn einelti.“
Arnór sér fyrir sér breytingar
á námsmati. „Væntanlega breyt-
ist matið með tímanum. Ég sé
fram á sveigjanlegra mat sem
yrði þá með rafrænum prófum
sem eru einstaklingsmiðaðri.“
- ngy
Menntamálastofnun sinnir þeim verkefnum sem Námsmatsstofnun og Námsgagnastofnun hafa sinnt:
Ný stofnun á sviði menntamála tekur til starfa
Ég held að
ávinningurinn
sé sá að stofn-
unin er nú
stærri og
öflugri. Hún
mun sjá um
námsmat og að meta gæði
í skólum landsins.
Arnór Guðmundsson,
forstjóri Menntamálastofnunar.
MANNRÉTTINDI „Það að Íslandsdeildin skuli
sitja hjá finnst mér sýna einhvers konar kjark-
leysi hjá félaginu,“ segir Fríða Rós Valdimars-
dóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands.
Heimsþing Amnesty International sam-
þykkti á fundi sínum í Dyflinni í gær tillögu
um að styðja við afglæpavæðingu vændis á
alþjóðavísu. Íslandsdeild Amnesty sat hjá í
atkvæðagreiðslunni auk þess sem samtökin
stóðu að breytingartillögu sem var þó felld.
„Sjálf kynntist ég mannréttindabaráttu í
gegn um Amnesty og þar var baráttan svona
mest áberandi þegar ég var unglingur,“ segir
Fríða. „Þannig að þetta er fyrir mér mikill
sorgardagur að þessi samtök sem maður hefur
stutt í mörg ár skuli taka þennan snúning og
berjast á móti mannréttindabaráttunni sem
þau hafa verið með.“
Hún segir að rannsóknir hafi sýnt að vændi
er skaðlegt og lögleiðing dragi ekki úr ofbeldi
gegn vændisstarfsmönnum. Ofbeldi gagnvart
fólki hafi minnkað með banni við kaupum á
vændi.
„Nýjustu tölur frá Noregi sýna að ungir
strákar hafa hætt að kaupa vændi sem er
mjög merkilegt. Það er svo mikil skaða-
minnkun í því og það er það sem oft gleymist í
umræðunni að vændiskaupin eru líka skaðleg.
Mér finnst eins og að Amnesty sé byrjað að
skipuleggja eigin jarðarför með þessu.“
Hörður Helgi Helgason, formaður Íslands-
deildar Amnesty International, segir að
aðstæður íslensku samtakanna hafi verið
erfiðar í aðdraganda þingsins þar sem trún-
aður lá yfir tillögunni.
„Við áttum þá ekki möguleika á að leita opin-
berlega til okkar félaga heldur ræða við þá
með óformlegum samtölum,“ segir hann.
„Í lok júlí síðastliðins tók Íslandsdeildin á
stjórnarfundi sínum hins vegar ákvörðun í
málinu og taldi að athuguðu máli að hún gæti
ekki stutt þessa tillögu sem lá fyrir vegna
þess að gögn sem voru lögð fram henni til
stuðnings væru ónóg. En þess utan samþykkti
stjórnin að ganga til þingsins með opnum huga
og hlusta þar á öll rök sem þar voru sett fram
sem og við gerðum.“
Þá hafi umræðan um tillöguna á Íslandi
verið fremur óupplýst. Hörður gagnrýnir
Gunnar Braga Sveinsson utanríkisráðherra
fyrir að leggjast gegn tillögunni og gagnrýna
Amnesty International.
„Það er sérstaklega neyðarlegt í ljósi þess
að hann vísaði þessu til stuðnings í átakið
HeForShe sem er á vegum UN Women en þau
samtök hafa ekki einungis stutt það að þessi
iðja verði afglæpavædd heldur beinlínis viður-
kennd sem atvinnugrein.“
Tillaga Amnesty mætti harðri gagnrýni hér
heima fyrir en auk gagnrýni Gunnars Braga
hafa sjö kvenréttindasamtök gagnrýnt til-
löguna harðlega auk þess sem þingflokkur VG
skoraði á Íslandsdeildina að hafna tillögunni.
stefanrafn@frettabladid.is
Amnesty International að
skipuleggja eigin jarðarför
Formaður Kvenréttindafélags Íslands segir að ákvörðun heimsþings Amnesty um að styðja afglæpavæðingu
vændis marki sorgardag. Íslandsdeild Amnesty International sat hjá í atkvæðagreiðslu um tillöguna.
VÆNDISKAUP Von
Amnesty er að geta
barist betur fyrir
mannréttindum fólks
í kynlífsiðnaðinum
með afglæpavæð-
ingu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Þetta er fyrir mér
mikill sorgardagur að
þessi samtök sem maður
hefur stutt í mörg ár
skuli taka þennan
snúning.
Fríða Rós Valdimarsdóttir,
formaður Kvenréttindafélags Íslands
RÚSSLAND Stutt er í ákvörð-
un rússneskra stjórnvalda um
hvernig eigi
að útvíkka við-
skiptaþvinganir
gegn Vestur-
löndum.
Þetta kom
fram í máli
Arkadís Dvork-
ovítsj, varafor-
sætisráðherra
Rússlands, á
blaðamannafundi í gær.
Að hans sögn eru embættis-
menn að ræða sín á milli nokkra
hnökra og smáatriði áður en lögin
verða kynnt.
Stefna Rússlands er að koma á
viðskiptabanni á matvæli gagn-
vart þeim ríkjum sem styðja
þvingunaraðgerðir gegn Rúss-
landi. Ísland er þar á meðal. - srs
Viðskiptabann á vestrið:
Segir stutt í
ákvörðunina
ARKADÍ
DVORKOVÍTSJ
SPURNING DAGSINS
Nám í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð
hjá Upledger á Íslandi hefst 13. ágúst 2015
Námið er kennt í önnum og eru fimm annir til að klára námið
og geta orðið skráður græðari.
Á fyrstu önninni eru kennd grunnatriði meðferðarinnar.
Þau eru sett upp í 10 þrepa kerfi, sem er sérstaklega hannað og hugsað til að þjálfa
færni og næmni meðferðaraðilans en hefur einnig þann kost að meðferðarþiggjandi
er að fá frábæra meðhöndlun á öllum líkama.
Þeir sem hafa tekið þennan fyrsta áfanga í náminu geta tekið
hestanámskeiðið sem haldið verður 1.-4. október.
Kennari er Erla Ólafsdóttir sjúkraþjálfari, CST.
Nánari upplýsingar um námið og skráning í síma 863-0610 eða erla@upledger.is
www.upledger.is
Magnús, borðar þú perur?
„Já, ég borða alveg perur.“
Magnús Valur Böðvarsson, Maggi Bö, hefur
vakið mikla lukku á samskiptamiðlinum
Snapchat. Það hefur nafni hans Magnús
Guðmundsson, oft kallaður Maggi Peran,
líka gert.
1
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
B
6
-E
0
A
C
1
5
B
6
-D
F
7
0
1
5
B
6
-D
E
3
4
1
5
B
6
-D
C
F
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K