Fréttablaðið - 12.08.2015, Qupperneq 10
12. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Við
þokumst nær
og nær.
Einungis tvö
eða þrjú
smáatriði eru
eftir.
Euclid Tsakalotos,
fjármálaráðherra Grikklands.
GRIKKLAND „Við þokumst nær og
nær. Einungis tvö eða þrjú smá atriði
eru eftir,“ sagði Euclid Tsakal otos,
fjármálaráðherra Grikklands, við
fréttastofu Reuters í gær.
Gríska ríkið vinnur nú hörðum
höndum að gerð samnings við seðla-
banka Evrópu og framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins um
nýja, 12.600 milljarða króna neyð-
araðstoð fyrir ríkið. Neyðaraðstoð-
arsamningurinn verður til þriggja
ára og er bráðnauðsynlegur fyrir
Grikki ef þeir ætla að halda sér
innan evru svæðisins og forðast
gjaldþrot. Neyðaraðstoðin yrði sú
þriðja á fimm árum en áður hafa
sömu aðilar auk Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins lánað Grikkjum.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
hyggst þó ekki vera með í nýja
samningnum þar sem hinir lánar-
drottnar Grikkja vilja ekki fella
niður hluta skulda Grikkja, sem
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur
nauðsynlegt svo ríkið geti náð efna-
hagslegum bata.
Grikkir vonast til að klára samn-
inginn fyrir tuttugasta ágúst en þá
þarf ríkið að borga 440 milljarða
króna af láni frá seðlabanka Evrópu.
Grikkir hafa samþykkt að stofna
einkavæðingarsjóð að hvöt evru-
svæðisins auk þess að uppfylla fleiri
skilyrði neyðaraðstoðarsamnings-
ins.
Nýi samningurinn á þó eftir að
fara í gegn um gríska þingið eftir
að hann er í höfn. Þar hefur Alexis
Tsipras, forsætisráðherra Grikkja,
mætt andstöðu nýverið þegar sam-
þykkja þurfti lagapakka til að
greiða fyrir samningaviðræðum.
Andstaðan kom úr röðum sam-
flokksmanna hans á þinginu en
Tsipras þurfti að reiða sig á atkvæði
stjórnarandstöðunnar til að fá frum-
varpið samþykkt.
Tsipras hótaði þingmönnum
sínum í kjölfarið nýjum kosningum,
en hann er mjög vinsæll í Grikk-
landi og myndi samkvæmt skoð-
anakönnunum ná endurkjöri.
Fleiri góðar fréttir bárust Grikkj-
um í gær, en evran styrktist um
0,2 prósent gagnvart Bandaríkja-
dal. Gerðist það eftir að Kínverjar
felldu gjaldmiðil sinn, júan, til að
reyna að stemma stigu við miklu
falli kínverska fjármálamarkaðar-
ins. Útflutningur Kínverja dróst
saman um 8,3 prósent í júlímán-
uði. Þá hafa hlutabréf í Grikklandi
einnig lækkað í verði í kjölfar opn-
unar kauphallarinnar í Aþenu fyrr
í ágúst. thorgnyr@frettabladid.is
Samningar næstum í höfn
Grikkir hafa nærri lokið samningaviðræðum við lánardrottna um nýja 12.600 milljarða króna neyðaraðstoð.
Fjármálaráðherra Grikkja segir einungis eftir að semja um smáatriði. Evran styrktist í gær eftir fall júansins.
SAMNINGUR Skiptar skoðanir eru meðal Grikkja á nýjum neyðaraðstoðarsamningi, en skilyrðum lánardrottna var hafnað í
þjóðaratkvæðagreiðslu fyrr í sumar. NORDICPHOTOS/GETTY
HEILBRIGÐISMÁL Vísindamenn frá
Háskóla Íslands, Landspítala og
fleiri alþjóðlegum stofnunum hafa
komist að tímamótaniðurstöðu um
hvernig streptókokkabakterían
veldur alheimsfaröldrum.
Niðurstöðurnar opna á þann
möguleika að þróa ný lyf, forvarn-
ir og greiningar gegn streptó-
kokkasýkingum og faröldrum.
Í rúma öld hefur það verið
þekkt að bakterían geti valdið
heimsfaröldrum án þess að vita
ástæðu þess.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnuninni valda streptó-
kokkar af flokki A rúmlega 600
milljón sýkingum í mönnum á ári.
Flestir fá hálsbólgu en bakteríu-
sýkingin getur leitt til gigtsóttar
og ýmissa sýkinga. - srs
Tímamótarannsókn birt:
Eykur skilning
á faröldrum
BRETLAND Jeremy Corbyn þykir
sigurstranglegastur í formanns-
kjöri breska verkamannaflokks-
ins með fylgi 53 prósenta kjós-
enda samkvæmt könnun sem
YouGov birti í gær. Næstir koma
Andy Burnham með 21 prósent
og Yvette Cooper með átján pró-
sent.
Corbyn þykir lengst til vinstri
meðal frambjóðendanna. Hann
er meðal annars á móti nýtingu
kjarnorku og fylgjandi aukinni
þátttöku ríkisins á breskum
markaði. Hann hefur setið á þingi
frá árinu 1983 eða í 32 ár. - þea
Formannskosningar í bráð:
Corbyn nýtur
mests fylgis
1
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
B
6
-D
B
B
C
1
5
B
6
-D
A
8
0
1
5
B
6
-D
9
4
4
1
5
B
6
-D
8
0
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K