Fréttablaðið - 12.08.2015, Qupperneq 23
Ég fór til Frakklands, Sviss, Þýskalands og Austurríkis með fjölskyldunni minni
í sumar. Við vorum fimm vikur
í ferðinni og vorum aðallega í
Frakklandi, í litlu þorpi nálægt
Lyon og í Salzburg. Það var heitt
og alltaf sól en við vorum með
sundlaug í garðinum,“ segir Kor-
mákur Rögnvaldsson, nemandi
í 6. bekk í Brekkuskóla á Akur-
eyri, þegar hann er spurður út í
sumarfríið.
Kormákur skemmti sér hið
besta í ferðinni en fjölskyldan fór
meðal annars í tívolí og í dýragarð
og heimsótti rómverskt safn. Þá
dreif hann sig upp á hæsta fjall
Evrópu.
„Við fórum upp á Mont Blanc
með einum hæsta kláf í Evrópu,
það var svolítið hræðilegt og
gaman. Að fara niður var eins og í
rússibana,“ segir Kormákur.
„Við heimsóttum kastalann í
Salzburg, elsta varðveitta kastala í
Evrópu og það var eins og að fara
aftur í tímann, af því að hann er
mjög gamall og litlu hefur verið
breytt. Við fórum í nokkrar göngu-
ferðir og einu sinni sáum við
flottan kastala en lentum síðan í
brenninetlum og rósarunnum. Það
var ekki gaman fyrr en eftir á. Eng-
inn brenndi sig samt. Einu sinni
fórum við líka upp á lítið fjall í
gegnum vínekrur og við vonuðum
að það væri veitingastaður eða
útsýnispallur uppi. Svo þegar við
komum upp var veitingastaður
með útsýnispalli en hann var lok-
aður. Það var síesta! Það var ekki
gaman,“ segir Kormákur sposkur.
Þá heimsótti hann skemmtilegt
safn með mömmu sinni.
„Við mamma fórum í Sound of
Music-ferð og fréttum að þetta
væri sönn saga en það vissum
við ekki. Í þeirri ferð sáum við að
húsið þeirra var nokkur hús sem
voru sett saman í Hollywood. Við
fórum líka að synda í tveimur
vötnum í Austurríki þar sem voru
fiskar, annað vatnið var grænt
eins og óþrifið fiskabúr.“
Hvað var eftirminnilegast í ferð-
inni?
„Það var að fara upp á Mont
Blanc, tívolíið og dýragarðurinn
og kvikmyndasafn í Lyon þar
sem hlutir úr alls konar myndum
voru til sýnis, til dæmis hlutir úr
Narníu.“
RÚSSIBANAREIÐ
NIÐUR MONT BLANC
EVRÓPUREISA Kormákur Rögnvaldsson dreif sig upp á hæsta fjall Evrópu í
sumar og brunaði niður að fjallsrótum með kláfi. Hann synti í grænu vatni í
Austurríki, heimsótti rómverskt safn og skoðaði líka elsta kastala Evrópu.
HÆSTI TINDUR EVRÓPU Kormákur á Mont Blanc og Alparnir allt um kring. Honum
fannst hann vera í rússibana á leiðinni niður með kláfi. MYNDIR/BIRNA GUÐRÚN BALDURSDÓTTIR
HITABYLGJA Kormáki fannst oft ansi
heitt í ferðinni og þá var gott að hafa
sundlaug í bakgarðinum til að kæla sig í
með litla bróður.
GÖNGUFERÐ Í AUSTURRÍKI Kormákur
ásamt mömmu sinni, Birnu Guðrúnu, og
Styrmi litla bróður í notalegum göngutúr.
FJÖLBREYTTIR HELLAR
Á milli 650 og 700 þekktir hellar eru hér á
landi en þeir algengustu eru hraunhellar. Guðni
Gunnars son, formaður Hellarannsóknafélags
Íslands, segir þá búa yfir mikilli fjölbreytni.
Síða 2
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
Fáðu þér áskrift í síma 1817 eða á 365.is
ENDALAUST TAL OG
10 GB Á 3.990 KR.*
Færðu farsímann yfir til 365 og fáðu frábært
sjónvarpsefni á fáránlega góðu verði.
Allt það besta hjá 365
*Gildir fyrir áskrifendur í tilboðspökkum 365
1
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
B
6
-D
6
C
C
1
5
B
6
-D
5
9
0
1
5
B
6
-D
4
5
4
1
5
B
6
-D
3
1
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K