Fréttablaðið - 12.08.2015, Side 29
9 | 12. ágúst 2015 | miðvikudagur
Austur-Indíafélagið og Austur-
landahraðlestin seldu veiting-
ar fyrir hálfan milljarð króna á
síðasta ári. Sala félaganna jókst
um 125 milljónir króna milli ára.
Rekstrarkostnaður jókst aftur á
móti um 97 milljónir króna sem
skýrist helst af auknum efnis- og
launakostnaði.
Samanlagður hagnaður félag-
anna nam 24 milljónum króna
árið 2014. Viðsnúningur varð á
afkomu félaganna sem rekin voru
með 6 milljóna króna tapi á síð-
asta ári.
Þá var söluhagnaður af eignum
Austur-Indíafélagsins bókfærð-
ur upp á 16 milljónir króna.
Austurlandahraðlestin rekur
fjóra veitingastaði á höfuðborgar-
svæðinu og Austur-Indíafélagið
einn. Guðmundur Karl Björnsson
á allt hlutafé Austur-Indíafélags-
ins og 75 prósent í Austurlanda-
hraðlestinni á móti Miroslav
Manojlovic sem á 25 prósenta hlut.
Eignir félaganna nema 258
milljónum króna, skuldir 194
milljónum króna og eigið fé 64
milljónum króna. - ih
Hagnaður Austur-Indíasamstæðunnar var 25 milljónir króna í fyrra:
Hálfs milljarðs sala
á indverskum mat
HARÐLESTIN Austurlandahraðlestin rekur fjóra veitingastaði, þar á meðal við Hverfisgötu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Það þarf heppni til þess að ná
að byggja upp tengsl erlendis,“
segir Guðmundur R. Einarsson
hjá Bókun. Hann mun halda fram-
sögu fyrir hönd fyrirtækisins síns
á ráðstefnunni Startup Færeyjar
sem fram fer um helgina.
Bókun er fyrirtæki sem fram-
leiðir hugbúnað sem gerir aðilum
í ferðaþjónustu kleift að tengjast
og vinna saman á einfaldan hátt.
Til dæmis geta þeir selt vörur hver
annars, haldið utan um útistand-
andi kröfur sín á milli, samein-
að eigin vörur við vörur annarra
og selt sem þriðju vöruna, allt í
rauntíma. Fyrirtækið var valið
startup ársins í Íslandshluta Nord-
ic Startup Awards á dögunum.
Guðmundur segir að Færeyingar
líti til Íslendinga þegar kemur að
atvinnusköpun.
„ Ég er að
fara að tala um
hvernig er að
vera Íslendingur
að stofna fyrir-
tæki í minna
umhverfi
en þekkist
erlendis,
hvernig er
hægt að
byggja upp og mynda sambönd,“
segir Guðmundur í samtali við
Markaðinn.
Guðmundur segir að í litlum
samfélögum verði menn að hjálp-
ast að við markaðssetningu. Það
nægi ekki að hver og einn horfi á
sjálfan sig. „Þegar kúnninn kemur
til Íslands geti hann keypt fl eira
heldur en bara það sem fæst á
áfangastaðnum sem hann fer á,“
segir Guðmundur og bendir á að
Hestaleigan Laxnesi sé til dæmis
farin að selja fjórhjólaferðir.
„Við verðum að deila kúnn-
anum. Kúnninn er ekki bara að
koma til Íslands til þess að fara í
Bláa lónið. Hann kemur hingað og
vill vera hérna í einhvern tíma,“
segir Guðmundur. Þess vegna sé
Bókun mikið að horfa á samfélagið
í heildina. jonhakon@frettabladid.is
Íslendingar hjálpist
að í markaðssetningu
Hugmyndafræði Bókunar byggist á því að í litlum samfélögum
hjálpist menn að við markaðssetningu. Starfsmaður fyrirtækisins
kynnir hugmyndafræðina á Startup Færeyjar á laugardaginn.
Í REIÐTÚR Guðmundur segir mikilvægt að fyrirtæki selji vöru hvers annars. Í dag selur
Hestaleigan Laxnesi fjórhjólaferðir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
B
6
-F
9
5
C
1
5
B
6
-F
8
2
0
1
5
B
6
-F
6
E
4
1
5
B
6
-F
5
A
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K