Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 38
12. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 22
Frá því að Kjartan Hreinsson fékk sér
myndavél fyrir tveimur árum hefur hann
ekki hætt að taka myndir. Hann gaf út blöð-
ung eða „zine“ á dögunum sem heitir P3
og er samsafn af myndum sem hann hefur
tekið upp á síðkastið. Á myndunum hans
skín í gegn dálæti á Olís, skipum og göml-
um bílum. Hann leikstýrði einnig báðum
tónlistarmyndböndum Sturlu Atlas. Kjart-
an er ekki lærður en þrátt fyrir það hafa
myndir hans vakið mikla athygli og styrkti
66°Norður nýlega verkefni eftir hann.
„Ég er búinn að vera með myndavélina
á mér frá því að ég fékk hana. Ég er allt-
af að taka myndir en vissi aldrei hvað ég
ætti að gera við þær, hef bara verið að setja
þær á Instagram. Svo ákvað ég að gera lít-
inn bækling og ég skemmti mér við að setja
þetta upp. Nú eru komnar þrjár útgáfur,“
segir Kjartan en í þetta skiptið er bækling-
urinn 80 blaðsíður sem er næstum því eins
og bók og var prentaður í 40 eintökum. „Ég
er ýmist að gefa þá eða að selja. Það eru
margir sem vilja kaupa hann og þá sel ég
hann á lágu verði og næ þannig að borga
upp prentkostnaðinn.“
Myndirnar eru ýmist persónulegar af vin-
unum eða frá verkefnum sem hann hefur
tekið að sér eins og þegar hann vann að tón-
listarmyndbandinu við lagið Brennum allt
með Úlfur Úlfur. „Ég hef mikinn áhuga á
að fylgjast með skipum og bílum en ég get
verið mjög pikkí þegar kemur að þeim. Það
halda líka margir að ég hafi verið að vinna
fyrir Olís en þetta er bara della sem ég hef
tekið upp á. Það var útgerðarmaður á Vest-
fjörðum í fréttunum með Olís-derhúfu og
eftir það varð ekki aftur snúið.“ Hann segist
einnig vera heillaður af Olís-merkinu en það
er hannað af Þresti Magnússyni sem gerði
íslensku myntina.
Kjartan leikstýrði myndböndum Sturlu
Atlas en þeir eru góðir vinir. „Myndbönd-
in voru bæði frekar óplönuð og tekin upp
á litlu myndavélina mína. Þetta er í fyrsta
skipti sem ég geri eitthvað í líkingu við
þetta. Svo tókum við vinirnir nokkrar
myndir og fengum síðan styrk frá 66°Norð-
ur eftir að myndirnar voru tilbúnar. Ekkert
af þessu var planað.“
Ég er búinn að vera með
myndavélina á mér frá því að ég
fékk hana. Ég er alltaf að taka
myndir en vissi aldrei hvað ég
ætti að gera við þær.
Gunnhildur Jónsdóttir
gunnhildur@frettabladid.is
Það ætti að gleðja
landann að það verður
vel séð að klæðast öllu
svörtu í vetur. Þegar öll
fötin eru svört getur
verið auðveldara að
finna samsetningar og
þau fara alltaf aftur
í tísku í stað þess að
eiga flíkur í litum sem
teljast aðeins flott í
eina árstíð á ári.
TREND
ALLT SVART
GIVENCHY Riccardo
Tisci hélt glæsilega
tískusýningu þar
sem nánast öll
fötin voru
svört.
ALEXANDER
MCQUEEN
Breska
tískuhúsið er
alltaf með jafn
einstakar tísku-
sýningar.
RICK OWENS
Ef það er
ekki hvítt
hjá Rick
þá er það
svart.
ALEXANDER WANG Wang lét hafa eftir sér að
viðskiptavinir hans vildu hafa allt svart og hann
færi aðeins eftir óskum þeirra. MYNDIR/GETTY
TOM FORD
Ameríski
hönnuður inn er
með puttann á
púls inum fyrir
veturinn.
Gefur út þriðja ljósmyndabæklinginn
Kjartan Hreinsson áhugaljósmyndari hefur vakið athygli fyrir skemmtilegar og persónulegar myndir sem hann gefur út í bæklingi.
MYNDAR Í TÍMA OG ÓTÍMA Kjartan fékk myndavél fyrir tveimur árum og hefur verið með hana á sér
síðan þá. MYND/AÐSEND
OPNA ÚR P3 Kjart-
an birti myndir af
öllum síðum bæk-
lingsins á netinu en
hann hefur slegið
í gegn.
SKIPABLÆTI Það fær ekki hvaða skip sem er pláss í P3. MYNDIR/KJARTAN HREINSSONÝMIS VERKEFNI Kjartan tók ljósmyndir bak við tjöldin við tökur á myndbandi Úlfur Úlfur, Brennum allt.
LÍFIÐ
1
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
B
6
-C
C
E
C
1
5
B
6
-C
B
B
0
1
5
B
6
-C
A
7
4
1
5
B
6
-C
9
3
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K