Fréttablaðið - 12.08.2015, Page 40
12. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24
Í byrjun mánaðarins birtist grein
á vefsíðu Forbes um breska merkið
Galvan sem segir það vera á góðri
leið með að verða eitt stærsta
merkið í gala-fatnaði. Sóla Kára-
dóttir er listrænn stjórnandi
merkisins en það var stofnað fyrir
aðeins einu og hálfu ári og hefur
vaxið á miklum hraða síðan þá. Í
dag eru aðeins fjórir starfsmenn
en Sóla segir að fyrirtækið þurfi
bráðum að stækka við sig. Stjörn-
ur á borð við Siennu Miller, Jenni-
fer Lawrence, Elizabeth Olsen og
Rihönnu hafa klæðst kjólum frá
Galvan.
„Ég flýg mikið á milli London
og Los Angeles vegna vinnunnar.
Úti í LA er ég aðallega að vinna að
„celebrity dressing“ en skrifstofan
okkar er í London. Við erum hver á
sínum staðnum og erum mikið að
vinna í gegnum Skype. Það hefur
gengið mjög vel hingað til og það
sem við græðum mest á því eru
sambönd um allan heim sem við
getum nýtt okkur,“ segir Sóla.
Í grein Forbes segir að Galvan
fylli upp í ákveðið gat í markaðn-
um þar sem konur geta keypt sér
mínímalíska kjóla sem eru í góðum
gæðum og eru ekki á sama verðbili
og öll lúxusmerkin þar sem kjól-
arnir eru yfirleitt of mikið skreytt-
ir og kosta annan handlegginn.
„Okkur hefur gengið vel að koma
þessu inn í búðir og margir segja
að þetta sé akkúrat það sem þeir
hafa verið að leita að.“ Þær ætla
að halda lengur áfram að einblína
á þá stefnu sem þær hafa mark-
að sér en eru opnar fyrir að bæta
við vörulínum í framtíðinni þegar
merkið er búið að skjóta almenni-
legum rótum á tískumarkaðnum.
Þessa dagana er Sóla stödd á
Íslandi en fer fljótt út aftur þar
sem tískumánuðurinn nálgast
óðfluga en þá verður keyrsla allan
september. „Við höfum aðallega
verið að koma þessu sjálfar inn í
búðir og ekki verið með mikið af
sýningum. Við erum kannski fáar
í fyrirtækinu en við erum mjög
„hands on“. Ásamt því að tísku-
vikurnar eru að byrja þá erum
við líka komnar langt á leið með
sumar línuna fyrir næsta ár og
erum byrjaðar að vinna í haust-
línunni fyrir 2016.“
Margar stórar stjörnur hafa
klæðst Galvan en Rihanna sem
er ein frægasta söngkonan um
þessar myndir fór sjálf í Opening
Ceremony-verslun og keypti þar
tvo kjóla. „Hún klæddist öðrum
kjólnum í afmælinu sínu og svo
hinum í fyrirpartíi fyrir Grammy-
verðlaunin. Það gerði mikið fyrir
vörumerkið okkar enda skipt-
ir máli að fá góða ímynd. Sienna
Miller hefur líka klæðst tveimur
flíkum frá okkur og hún hefur
áhuga á að fá okkur til þess að
hanna fyrir sig.“
gunnhildur@frettabladid.is
Forbes fj allar ítarlega um Galvan
Sóla Káradóttir er listrænn stjórnandi tískumerkisins Galvan en hún fl ýgur á milli London og Los Angeles vegna vinnunnar.
LISTRÆNN STJÓRNANDI Sóla flýgur á milli heimsálfa í vinnunni en það hefur
gengið vel hingað til. MYND/AÐSEND
JENNIFER
LAWRENCE
Stórstjarnan
klæddist þess-
um fallega kjól
í eftirpartíi
eftir Met Gala.
MYNDIR/GETTY
SIENNA MILLER Leikkonan hefur
klæðst tveimur flíkum frá Galvan.
ELIZABETH OLSEN Avengers-leikkonan
er glæsileg í flottum kjól frá Galvan.
RUTH WILSON Breska leikkonan lét sig
ekki vanta á Galvan-lestina.
Okkur hefur gengið
vel að koma þessu inn í
búðir og margir segja að
þetta sé akkúrat það
sem þeir hafa verið að
leita að.
KRINGLUNNI
AKUREYRIKEFLAVÍK
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
bio. siSAM
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR AVENGERS
OG GUARDIANS OF THE GALAXY
EMPIRE
TOTAL FILM
VARIETY
HITFIX
THE HOLLYWOOD REPORTER
VARIETY
Það muna allir eftir ógleymanlegu grínmyndunum um
Griswold fjölskylduna. Nú er komið að syninum að fara með
sína fjölskyldu í frí!
MATT SULLIVAN - IN TOUCH
“BRJÁLÆÐISLEGA FYNDIÐ
FRAMHALD”
JAMES OSTER - JOBLO
“VACATION ER FYNDNASTA
MYND ÁRSINS”
DAVE KARGER - FANDANGO
“ÉG HEF EKKI HLEGIÐ SVONA
OFT UPPHÁTT Í LANGAN TÍMA”
VACATION 3:50, 5:50, 8, 10:10
THE GIFT 8, 10:20
FRUMMAÐURINN 2D 3:40, 5:50
TRAINWRECK 8, 10:35
SKÓSVEINARNIR 2D 3:50
MINIONS - ENS TAL 2D 6
1
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
B
6
-E
0
A
C
1
5
B
6
-D
F
7
0
1
5
B
6
-D
E
3
4
1
5
B
6
-D
C
F
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K