Fréttablaðið - 12.08.2015, Blaðsíða 46
12. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 30
SUMARLAGIÐ
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Fyrir þínar
bestu stundir
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
Þú finnur
bæklinginn á dorma.is
MEIRA Á
dorma.is
JACKPOT
tungusófi
Aðeins 99.900 KR.
Slitsterkt áklæði, grátt eða antrasite.
Hægri og vinstri tunga.
Fullt verð: 119.900
JACKPOT
horntungusófi
Aðeins 129.900 KR.
Slitsterkt áklæði, grátt eða antrasite.
Hægri eða vinstri tunga.
Fullt verð: 159.900
JACKPOT
U-sófi
Aðeins 149.900 kr.
Slitsterkt áklæði, grátt eða antrasite.
Hægri eða vinstri tunga.
Fullt verð: 189.900 kr.
20
3
cm
276 cm
197 cm
23
0
c
m
208 cm
15
0
c
m
„Það fyrsta sem kemur upp í huga
minn er lagið Everybody Loves the
Sunshine eftir Roy Ayers.“
Margeir Steinar Ingólfsson tónlistarmaður
Hin 75 ára gamla listakona Bergljót Gunnarsdóttir
situr ekki auðum höndum því á meðal áhugamála
hennar er að smíða dúkkuhús. Hún hefur nú lokið við
smíði tveggja glæsilegra dúkkuhúsa. Um er að ræða
stærðarinnar dúkkuhús sem eru sjaldséð hér á landi.
„Ég bjó til dúkkuhúsin fyrir langömmubörnin. Ég hef
fengið mikið hól og börnin eru mjög ánægð með þau,“
segir Bergljót. Hún hefur alla tíð verið flink í hönd-
unum og til að mynda unnið við mósaík og gler og
ýmislegt annað í gegnum árin.
Hún segist hafa byrjað á að kaupa grind en hafi
svo breytt öllu sem hægt var að breyta. „Ég byrjaði
á að kaupa eitthvað sem kallað er grind. Ég klæddi
húsið að utan og breytti líka innréttingunum svolítið.
Ég breytti veggjunum og herbergjaskipan, ásamt því
að flísaleggja og teppaleggja gólfin,“ útskýrir Berg-
ljót. Hún notaði svokallaða grind þegar hún hóf að
smíða eldra húsið en nýrra húsið smíðaði hún alveg
frá grunni. Hún hóf smíðina eftir jólin og segir verk-
ið taka nokkrar vikur.
„Ég var í nokkrar vikur að gera þetta, líklega
svona fjórar til sex vikur. Stundum fékk ég köst
þegar ég var að þessu og byrjaði kannski á kvöldin
og gat verið að alveg til morguns,“ segir Bergljót en
hún smíðar einnig flest húsgögn og innviði húss-
ins. „Ég byrjaði að smíða mublur í húsið í kjölfarið .
Ég hef til dæmis verið að smíða alls kyns hluti inn í
húsið eins og arin, snyrtiborð, klósettrúllur, spegla
og kremdollur,“ bætir Bergljót við.
Hún hefur einnig málað málverk á veggina í hús-
inu sem minna á Kjarval og Þorvald Skúlason og
fleiri. Þá eru einnig plaköt á veggjum í húsinu. „Ung-
lingaherbergið í nýja húsinu hefur fengið talsverða
athygli, það er veggfóðrað með Bob Marley-plakötum
og stóru Elvis Presley-plakati,“ bætir Bergljót við.
Hvaða hlut hefur verið erfiðast að smíða? „Pílár-
arnir í ruggustólnum stóðu svolítið út í allar áttir
áður en mér tókst að hemja þá.“
Innblásturinn að hönnun húsanna sækir hún bara í
sinn eigin huga og sækir ekki hugmyndir á veraldar-
vefinn eða annað. „Mig hefur alltaf langað í dúkku-
hús en ég eignaðist aldrei svoleiðis. Ég hef alltaf haft
mikinn áhuga á svona húsum.“
Bæði húsin eru hugsuð fyrir börn fimm ára og
eldri og eru nú í eigu langömmubarna Bergljótar, en
langar hana ekki að búa til fleiri hús og selja jafnvel?
„Ég held að fólk mundi ekki borga yfir hundrað þús-
und krónur fyrir dúkkuhús, og þó,“ segir Bergljót og
hlær. „Ég veit ekki alveg hvað dúkkuhús kosta en ég
veit að þau eru rándýr sem ég hef séð úti í Englandi
til dæmis. Efnið í mín hús kostar svona fjörutíu til
fimmtíu þúsund og svo er vinnan,“ segir Bergljót.
gunnarleo@frettabladid.is
Bob Marley og Elvis
í unglingaherberginu
Listakonan Bergljót Gunnarsdóttir hefur lokið við að smíða tvö stærðarinnar
dúkkuhús fyrir langömmubörnin. Mynd af Bob Marley prýðir einn vegg hússins.
SÁTT OG SÆL Bergljót Gunnarsdóttir er hér fyrir framan annað af dúkkuhúsunum sem hún hefur smíðað fyrir
langömmubörnin sín. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
UNGLINGAHERBERGIÐ Í risi hússins er unglingaherbergið
þar sem Bob Marley og Elvis Presley eru á veggjum.
„Ég fór á Eistnaflug árið 2008 í fyrsta
sinn og varð svo heillaður af þessu
að ég fór að hugsa, hvar eru mynda-
vélarnar til að taka þetta upp? og þá
kviknaði hugmyndin um að taka upp
tónleikana,“ segir tónlistarunnandinn
Siggi Jensson.
Hann heillaðist af hátíðinni og vildi
deila upplifun sinni en gekk með hug-
myndina um nokkurt skeið. „Ég ræddi
svo við Stefán Magnússon, skipuleggj-
anda hátíðarinnar, og við ákváðum að
hjóla í þetta árið 2014, þegar hátíðin
var haldin í tíunda skiptið og gáfum
þetta út í ár þegar hátíðin átti tíu ára
afmæli.“
Tónleikarnir eru nú komnir út, en
um er að ræða fjögurra diska dvd-
pakka með 46 hljómsveitum sem
komu fram á hátíðinni og pakkinn
inniheldur einnig heimildarmynd
um hátíðina. „Ég er framleiðandinn,
Hallur Örn Árnason er leikstjóri og
meðframleiðandi myndarinnar er
Grímur Hákonarson. Ég fékk fyrir-
tæki til þess að koma og taka upp tón-
leikana,“ segir Siggi. Verkefnið var
að stórum hluta styrkt af fyrirtækj-
um í Fjarðabyggð. Hann hefur komið
að kvikmyndatöku í Los Angeles og
þekkir því til kvikmyndagerðar sem
þessarar.
Heimildarmyndin um hátíðina
var m.a. opnunarmynd á Reykjavik
Shorts&Docs hátíðinni í Bíói Paradís.
Þessi framleiðsla Sigga hefur fengið
mikið lof og verður myndapakkinn til
umfjöllunar í merku erlendu rokktón-
listartímariti. „Ég má því miður ekki
nefna titil tímaritsins en það er svaka-
lega mikill heiður að þeir ætli að fjalla
um þetta.“ - glp
Vildi deila upplifun sinni og tók upp vélina
Tónlistarunnandinn Siggi Jensson stendur fyrir útgáfu á tónleikamynddiski af Eistnafl ugshátíðinni.
ÚTGÁFA Siggi Jensson er framleiðandi
tónleikamyndar frá Eistnaflugi sem
komin er út. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
B
6
-D
B
B
C
1
5
B
6
-D
A
8
0
1
5
B
6
-D
9
4
4
1
5
B
6
-D
8
0
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K