Fréttablaðið - 24.07.2015, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 24. júlí 2015 | SKOÐUN | 13
Frá upphafi skipulagðrar
heilbrigðisþjónustu hefur
hjúkrun verið lykilþáttur
í þeim góða árangri sem
náðst hefur í meðferð
sjúklinga. Góð hjúkrun
hefur bætt bæði líðan og
lífsgæði fólks og um leið
almenna hagsæld.
Öflug hjúkrun er þjóð-
félagslega hagkvæm og
þegar horft er til fram-
tíðar ætti að tryggja að
áhersla sé lögð á hjúkr-
un, bæði innan sjúkra-
húsanna og heilsugæsl-
unnar, eða hins opinbera, eins og
það kallast öllu jafna.
Mestur sparnaður næst fram
í heilbrigðiskerfinu með því að
fyrirbyggja að landsmenn þurfi á
heilbrigðisþjónustu að halda. Því
ætti að leggja meiri áherslu á for-
varnir og heilsueflingu en nú er
gert. Þetta eru þeir grunnþætt-
ir sem öll stefnumótun og skipu-
lagning í heilbrigðisþjónustunni
ætti að byggja á til framtíðar.
Hjúkrunarfræðingar hafa ætíð
lagt mikla áherslu á bæði heilsu-
eflingu og forvarnir og eru sú
heilbrigðisstétt sem einna mest
vinnur að eflingu þessara þátta.
Innan heilsugæslunnar vinna
skólahjúkrunarfræðingar ötul-
lega í grunnskólum landsins að
því að auka heilbrigði skólabarna
og fræða þau um mikilvægi þess
að hugsa vel um líkamlega og and-
lega heilsu. Þar auka hjúkr unar-
fræðingarnir þekkingu skóla-
barna á heilbrigði og forvörnum
með það að markmiði að þau geti
sjálf tekið ákvarðanir sem leiða
til aukins heilbrigðis. Með því að
tryggja framhaldsskólanemum
sömu þjónustu með áherslum sem
henta eldri hópi er unnt að taka
forvarnir á næsta stig. Þannig
væri hægt að vinna enn frekar
að fyrirbyggingu lífsstílstengdra
sjúkdóma s.s. offitu og hjartasjúk-
dóma, auk þess sem nemendur
gætu leitað til hjúkrunar fræðinga
vegna andlegrar vanlíðunar og
geðsjúkdóma.
Innan sjúkrahúsþjónustu vinna
hjúkrunarfræðingar mikið og öfl-
ugt starf. Rannsóknir hafa sýnt
fram á það að sjúklingum farn-
ast betur, fylgikvillum með-
ferða fækkar, legutími stytt-
ist og endurinnlögnum fækkar
þegar hjúkrun er veitt af hjúkr-
unarfræðingum, sem komast yfir
það starf sem þeim er ætlað að
sinna. Aukin áhersla á göngu-
deildarþjónustu þar sem hjúkr-
unarfræðingar fylgja eftir sjúk-
lingum með langvinna sjúkdóma
hefur skilað sér í því að endur-
innlögnum þeirra hefur fækk-
að verulega. Með þessum góða
árangri sem skapast hefur vegna
starfa hjúkrunarfræðinga hefur
sparast fjármagn fyrir ríkissjóð
og sjúklingunum farnast betur og
komast fyrr út í samfélagið þar
sem þeir taka þátt í verðmæta-
sköpun atvinnulífsins.
Það er því ljóst að hjúkrunar-
fræðingar og störf þeirra eru
samfélaginu hagkvæm auk þess
sem þjónusta þeirra bætir lífs-
gæði þeirra sem ekki læknast en
það er í raun og veru efni í annan
pistil.
Hjúkrun er
arðbær forvörn
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Ólafur G.
Skúlason
formaður Félags
íslenskra hjúkrunar-
fræðinga
Munið þið þegar það var ekkert
sjónvarp á fimmtudögum? Munið
þið þegar fólk drakk bjórlíki og
fékk bara M&M þegar einhver
fór til útlanda? Munið þið þegar
Miðbær Reykjavíkur var tómur
nema á Þorláksmessu og 17. júní?
Þetta voru dásamlegir tímar. Var
það ekki annars?
Í tilraun til að afneita gráu hár-
unum skráði ég mig um daginn
á Snapchat. Fyrir þau ykkar sem
ekki berjast gegn gangi tímans
með því að klæðast óviðeigandi
þröngum gallabuxum frá Tops-
hop og reynið að tileinka ykkur
tækni sem þið munuð aldrei ná
tökum á því hún er hönnuð fyrir
heila sem eru ekki deginum eldri
en tuttugu, þá er Snapchat forrit
sem maður setur á símann sinn
og notar til að senda öðru fólki
myndir: Ég að borða bollaköku
með gullslegnum glassúr eftir að
hafa hlaupið maraþon með tutt-
ugu af bestu vinum mínum; ég
að sóla mig á baðströnd með hár-
lausa leggi og fullkomlega lakk-
aðar tær #hamingja. Ég veit ekki
nákvæmlega til hvers forritið er
en mér sýnist helsti tilgangur
þess vera sá sami og annarra sam-
félagsmiðla, að vinna bug á sjálfs-
hatrinu eitt andar tak með því að
láta öðrum líða illa. Ha, ha, sjáðu
mig, ég er að gera eitthvað fárán-
lega skemmtilegt á meðan þú ert
að gera upp á milli þess að tækla
þvottafjallið eða skera þig á púls.
Ég gekk um London með
Snapchat á lofti og byggði sjálfa
mig upp með því að brjóta vini
mína niður – ég að borða ís fyrir
utan Buckingham Palace – þegar
ég steig skyndilega í hundaskít.
Volgur saurinn vall upp fyrir
sólann á hvítu sumarsandölunum
mínum og skorðaðist milli tánna
á mér. Ég gekk frá símanum. Það
var engin leið að sveipa þessa
lífsreynslu sviknum töfraljóma.
Þar sem ég stóð á öðrum fæti
og reyndi að þrífa skóinn með
ís-servíettunni varð mér óhjá-
kvæmilega hugsað til erlendra
ferðamanna á Íslandi sem skíta
eins og hundar um fjöll og firn-
indi, bakgarða og grafreiti þjóð-
skálda. „Bölvað pakk,“ muldraði
ég um leið og ég blótaði í sand og
ösku eiganda hundsins sem hafði
kostað mig sumarsandalana. Nú
skildi ég loks hvernig Íslending-
um leið.
Heimsmet í að firra sig sök
Af umræðum í fjölmiðlum að
dæma leggjast erlendir ferða-
menn nú á Ísland af jafnmiklum
eyðileggingarkrafti og engi-
sprettu faraldur. Það verður ekki
þverfótað fyrir þeim í miðbæn-
um, þeir míga og skíta upp um
alla veggi, kasta klinki í hvern
einasta poll á Þingvöllum í þeirri
trú að þeir séu óskabrunnar
og týnast svo uppi á hálendi og
heimta að þeim sé bjargað.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
sagði í viðtali við Fréttablaðið
fyrr í vikunni að salernisvand-
ræði ferðamanna væru „hegð-
unarvandamál“. Eins og erlend-
ir ferðamenn væru hundar sem
ekki væru húsvanir.
Íslenskir stjórnmálamenn eiga
eflaust heimsmet í að firra sig
sök. En að klína kúknum á ferða-
menn líkt og Ragnheiður Elín
gerir með málflutningi sínum er
dálítið langt gengið.
Þótt úrgangslosun megi skil-
greina sem hegðun er hún ekki
beint viljastýrð hegðun. Ekki
frekar en fólk hefur val um að
draga andann. Það þýðir ekki að
bjóða til landsins ferðamönnum
með markaðsherferðum, hirða
af þeim gjaldeyrinn með doll-
aramerki í augunum en segja
þeim svo að halda í sér þangað til
þeir koma aftur heim til sín. Það
er ekki hundinum að kenna sem
skeit í forgarð Englandsdrottn-
ingar að sumarsandalarnir mínir
enduðu í ruslinu. Það er eiganda
hundsins að kenna. Það var hans
að hirða skítinn. Að sama skapi er
það hlutverk Ragnheiðar Elínar
að sjá til þess að ferðamenn geti
gengið örna sinna.
En aftur að Snapchat.
Rónar og furðufuglar
„Fann varla Íslending í miðbæn-
um“ var fyrirsögn fréttar á RÚV
sem fór hátt í síðustu viku. Ég tók
þátt í samíslensku andvarpi yfir
þessari skelfilegu þróun – þang-
að til ég fékk senda ljósmynd
gegnum Snapchat. Myndin var af
samloku með hægelduðu svína-
kjöti, súrsuðum lauk og sinneps-
sósu. Ég var næstum búin að
keyra út á flugvöll og taka næstu
vél til Keflavíkur. Myndin var frá
matarmarkaði í Miðbæ Reykja-
víkur. Það var matarmarkaður í
miðbænum!
Þeir sem sakna þess tíma
þegar miðbærinn var tómur
fyrir utan nokkra róna og furðu-
fugla eru haldnir menningarlegu
minnisleysi. Nei, lífið var ekki
betra þegar ekkert var að gera í
bænum annað en að fá sér pulsu
á Bæjarins bestu. Ekki frekar en
það var betra þegar maður fékk
bara M&M þegar einhver fór til
útlanda og fólk drakk bjórlíki
yfir stillimyndinni í Sjónvarpinu
á fimmtudagskvöldum.
Kökusneið með rjóma
Eins og alræmt er orðið borga
ferðamenn 1.290 kr. fyrir skitna
kökusneið með rjóma. Þeir greiða
fyrir lunda-lyklakippur þúsund
sinnum það sem kostar að fram-
leiða þær í Kína. Þeir eru alveg
örugglega til í að borga fyrir að
komast á klósettið.
Vandamálið liggur hjá stjórn-
völdum. Hversu erfitt getur
verið að finna leið til að taka
sjálfsagt gjald af ferðamönn-
um til að byggja upp innviði
ferða þjónustunnar og tryggja
björgunarsveitunum fjármagn?
Hærri hótelskattur, hærri virð-
isaukaskattur, komugjald, nátt-
úrupassi. Það skiptir ekki öllu
máli. Fyrir mestu er að hætta að
karpa um þetta og einfaldlega
græja þetta.
Menningarlegt minnisleysi
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
Þeir sem sakna þess
tíma þegar mið-
bærinn var tómur fyrir utan
nokkra róna og furðufugla
eru haldnir menningarlegu
minnisleysi. Nei, lífið var
ekki betra þegar ekkert var
að gera í bænum annað en
að fá sér pulsu á Bæjarins
bestu.
Í þessari grein langar mig
fjalla um algengt viðkvæði:
Vandi Grikkja er bara þeim
sjálfum að kenna. Ég er
ósammála því.
Ekki misskilja mig:
Grikkir hafa vissulega
farið offari og tekið lán
umfram getu til að greiða
til baka. Grísk stjórnmál
hafa um áratugi verið ger-
spillt. Framgangur ríkis-
starfs manna í starfi hefur
nær alfarið ráðist af flokks-
tengslum. Skattkerfið er
lélegt og skattheimta handahófs-
kennd. Vildarvinir stjórnarflokks á
hverjum tíma hafa ekki verið rukk-
aðir og erfitt hefur verið að leggja á
skatta án þess að þeir legðust bara
á almenna launamenn, en ekki for-
réttindahópa. Þetta hefur skaðað
mjög möguleika Grikkja til að auka
ríkistekjur undan farin ár og aukið
á samfélagslega upplausn. Það er
ómögulegt þegar álögur leggjast
alltaf á sama hópinn og hefðarkett-
irnir eru stikkfrí.
Í Grikklandi hafa líka viðgengist
víðtækar hömlur á atvinnufrelsi,
sem ekki standast leikreglur hins
sameiginlega evrópska markað-
ar. Ísland gæti ekki sem aðili að
EES haft kvótakerfi á leyfum til að
keyra vörubíla svo dæmi sé tekið,
en slíkt hefur til þessa dags við-
gengist í Grikklandi. Meðal þess
sem grísk stjórnvöld hafa marg-
lofað skuldunautum sínum, en ekki
efnt, er að afnema hömlur af þess-
um toga.
Eins og Ísland 1975
Mér er það minnisstætt hversu
hissa starfsmenn AGS voru á skil-
virkni skattkerfisins á Íslandi á
árunum 2008-2011: Ef við sögð-
umst ætla að hækka ein-
hvern skatt þá skilaði hann
sér nákvæmlega eins og
við reiknuðum með. En
það er ekki áskapað Íslend-
ingum að búa við réttlátt
skattkerfi. Það er afleiðing
réttra pólitískra ákvarð-
ana fyrir tiltölulega stuttu
síðan.
Með nokkurri einföldun
má nefnilega segja að skatt-
kerfi Grikkja svipi til þess
sem var á Íslandi árið 1975:
Ef menn voru í réttum
flokki fengu þeir að borga skatta
á vaxtalausum víxlum í 60% verð-
bólgu og fyrirtæki sem skulduðu
vörsluskatta fengu óáreitt að stunda
rekstur áfram, ef þau nutu skjóls
hjá yfirvöldum. Skattkerfisbreyt-
ingar á Íslandi urðu á endanum
fyrir harðfylgi stjórnmálamanna
sem skynjuðu kall tímans. Fyrir-
myndir voru sóttar erlendis frá.
Flestar réttarbætur á sviði mann-
réttindamála hér á landi hafa orðið
vegna dóma Mannréttindadómstóls
Evrópu yfir íslenska ríkinu. Og með
aðildinni að EES-samningnum var
endi bundinn á lögverndaða einokun
eða fákeppni fulltrúa Framsóknar-
og Sjálfstæðisflokks í flestum þeim
atvinnugreinum sem sá samningur
tók til. Og í þeim atvinnugreinum
sem EES-samningurinn tekur ekki
til, er enn við lýði fákeppni rétt
tengdra afla. Staða Grikklands nú
er áminning um hvað getur gerst
ef ríkisvaldinu er beitt í þágu for-
réttindahópa og vildarvinum hlíft
við samkeppni, eins og hér gerðist
áratugum saman og nú gætir aftur
tilhneigingar til. Fordæmi Íslands
sýnir betur en flest annað að alþjóð-
legt samstarf er besta leiðin til að
vinna á slíku.
Skuld að gjalda?
Allir vita að Grikkir tóku lán
umfram það sem greiðslugeta
þeirra leyfði og fóru á svig við regl-
ur evrusamstarfsins um skuldsetn-
ingarhlutfall ríkja. Þeir nutu þess
að bankar lánuðu öllum evru ríkjum
á lítið hærri kjörum en Þýskaland
naut. En allir vissu eða máttu vita
að grískt efnahagslíf var ekki jafn
sterkt og það þýska og geta til
endur greiðslu ekki sambærileg.
Lánveitingarnar réttlættu bank-
arnir á þeirri væntingu að ríkis-
sjóðir annarra evruríkja myndu
hlaupa undir bagga með Grikkjum
ef harðnaði á dalnum, þótt hvergi
væri í evrusamstarfinu að finna
fyrirheit um slíkt. Hægt væri með
öðrum orðum að hengja byrðina um
háls skattborgara í öðrum ríkjum,
ef Grikki þryti afl til endurgreiðslu.
Stærsti hluti vandans er ekki
skuldsetning Grikkja heldur sið-
lausar lánveitingar banka, sem
reikna með því að forgangur fjár-
magns yfir fólki verði ávallt tryggð-
ur. Það var enginn sem píndi evr-
ópska banka til að lána Grikkjum
gríðarfé á áþekkum kjörum og
Þjóðverjum buðust. Af hverju
finnst okkur alltaf að bankar eigi
að fá allt sem þeir lána til baka og
að öllu sé fórnandi til að það takist?
Um það mun ég fjalla í næstu grein.
Er þetta ekki Grikkjum
að kenna? – um Grikkland
og vald fjármagns yfi r fólki➜ Mestur sparn-aður næst fram í heil-
brigðiskerfi nu með
því að fyrirbyggja að
landsmenn þurfi á
heilbrigðisþjónustu
að halda. Því ætti að
leggja meiri áherslu
á forvarnir og heilsu-
efl ingu en nú er gert.
UTANRÍKISMÁL
Árni Páll
Árnason
formaður
Sam fylkingarinnar
➜ Staða Grikklands nú er
áminning um hvað getur
gerst ef ríkisvaldinu er beitt
í þágu forréttindahópa og
vildarvinum hlíft við sam-
keppni, eins og hér gerðist
áratugum saman og nú
gætir aftur tilhneigingar til.
Er verið að leita að þér? radum.is
2
3
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
8
D
-5
7
C
4
1
5
8
D
-5
6
8
8
1
5
8
D
-5
5
4
C
1
5
8
D
-5
4
1
0
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K