Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.07.2015, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 24.07.2015, Qupperneq 22
2 • LÍFIÐ 24. JÚLÍ 2015 ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Umsjón Friðrika Hjördís Geirsdóttir rikka@365.is ● Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir erlabjorg@365.is ● Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ● Forsíðumynd Stefán Karlsson Lífi ð www.visir.is/lifid LÍFIÐ MÆLIR MEÐ NÁTTÚRULEGUM LAUSNUM Náttúran er rík af jurtum og fræjum sem hægt er að nota til að lina hin ýmsu vandkvæði. Það þarf því oft ekki að leita langt yfir skammt til að nýta náttúruna og bæta heilsuna. Það þarf ekki að leita langt út fyrir borg eða bæ til að finna jurtir eins og hvönn, blóðberg, hundasúrur eða jafnvel bara fífla til að malla seyði eða gera úr áburð. Í samfélagsmiðlunum á öftustu síðu blaðs- ins má finna ýmsar vefsíður sem kynna þér hvern- ig nýta megi náttúruna til heilsueflingar. Nú er tím- inn þegar allt er í blóma til að hugsa fram á við og vera búinn að tína og þurrka áður en fer að kólna. Eftir langan vinnudag og mikið áreiti er stundum fátt betra en að vera einn með sjálfum sér, svona allavega rétt á meðan maður er að gíra sig niður. Mér finnst óskaplega gott að vera ein með sjálfri mér, stundum finnst mér það jafnvel einum of notalegt. Það er þó alltaf notalegt þegar húsið fyllist á ný af fjölskyldumeðlimum og vinum. Margir líta á einveruna sem einhvers konar tómarúm og verða eirðarlausir í slíkum aðstæðum, líður jafnvel illa. Gjarnan fara dagarnir í að fylla upp í þetta tómarúm, þeir raða verkefnum hverju á eftir öðru svo að aldrei eða sjaldan sé laus stund eða rými fyrir tómið. Margir finna jafnvel fyrir snert af samviskubiti ef stór- ar eyður er að finna í dagatal- inu og finnst þeir þurfa að gera eitthvað við tímann sem sífellt líður hraðar. Svo er það nú líka þannig að okkur mannfólkinu þykir gaman að segja frá ann- ríki og fjölbreyttum uppátækj- um, jafnvel í óspurðum fréttum. Það er ekkert spennandi við að gera ekki neitt, eða hvað? Vanmetið fyrirbæri Segja mætti að í nútímaþjóðfélagi væri þetta tómarúm vanmetið fyrirbæri því ef ekki væri fyrir það hefði efnið varla mikinn til- gang. Kyrrðin, friðurinn, rými til að velta hlutum fyrir okkur og vinna okkar verk liggur í tómarúm- inu. Við höfum gott af því að vera stundum ein svo að við njótum frekar og kunnum að meta félags- skap annarra og aðra tilbreyt- ingu í lífinu. Lífið á ekki að vera eins og rússíbani alla daga, allan ársins hring. Stundum þarf að staldra við, hugsa um það hvernig okkur líður núna, gera alls ekki neitt í smátíma heldur leyfa sér að sleppa takinu á tímanum og njóta tómarúmsins. Fyrir flest- alla sem ég þekki og sjálfa mig líka er þetta hrein og bein áskor- un sem vert er að taka, allavega endrum og eins. ÁSKORUNIN AÐ VERA EINN Flestum leiðist að vera einir með sjálfum sér og finna fyrir eirðarleysi og tómarúmi sem svo er fyllt upp í með skammtímagleði eða öðrum uppfyllingum. Við höfum öll gott af því að vera ein svona endrum og eins. Friðrika Hjördís Geirsdóttir umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga kl . 11–18 Opið laugardaga k l. 11-15 Nýtt kortatímabil SIGGA ER LÉTT Í LUND Sigga Lund fjölmiðlakvendi sem er þekkt fyrir hressleika í útvarpinu hefur nú gerst stór- bóndi en það breytir ekki því að hægt er að hafa rífandi stuð í fjárhúsinu. Þegar Siggu langar að dilla sér þá hefur hún þessa hressu tóna með í för. LOVE ON THE TOP BEYONCÉ ALL ABOUT THAT BASS SCOTT BRADLEE‘S POST- MODERN JUKEBOX I CAN‘T GIVE YOU ANYTHING BUT LOVE LADY GAGA COME FLY WITH ME MICHAEL BUBLE STARSHIPS NICKI MINAJ ON THE FLOOR JENNIFER LOPEZ BOOTY DESTINY‘S CHILD I KNOW WHAT YOU WANT BUSTA RHYMES, MARIAH CAREY WORTH IT FIFTH HARMONY, KID INC TIME OF OUR LIVE PITBULL, NE-YO Heilsuvísir 2 3 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 8 D -6 B 8 4 1 5 8 D -6 A 4 8 1 5 8 D -6 9 0 C 1 5 8 D -6 7 D 0 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.