Fréttablaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 8
5. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
kílómetra hraða á klukkustund, þar
sem hann ferðast að mestu á plani
ofan á vatninu en sker það nógu mikið svo
hann skelli ekki á ölduna
Það er
ansi mikil
upplifun að
fara út á
þessum bát.
Hann er bara
ósköp mjúkur
í sjó.
Össur Kristinsson,
stofnandi Rafnars.
LANDHELGI Rafnar ehf. afhenti
Landhelgisgæslunni nýjan tíu metra
strandgæslubát, Óðin, í gær en
framkvæmdastjóri Rafnars, Björn
Jónsson, segir bátinn byltingar-
kennda smíði sem marki tímamót á
þessu sviði.
Össur Kristinsson, stofnandi
Rafnars og Össurar, útskýrði hönn-
un bátsins fyrir Fréttablaðinu. Hann
segir í aðalatriðum tvenns konar
bátsskrokka vera til. Annars vegar
eru það rúmmálsbátar sem ryðja
frá sér vatni þegar siglt er. Þegar
þeir gera það myndast bógöldur sem
siglt er inn í. Þá myndast sog sem
tekur skutinn niður og þá þýðir ekk-
ert að bæta við vélaraflið því skipið
nær ekki meiri hraða.
Össur segir hina tegundina vera
planandi báta, sem eru léttir og
kraftmiklir og skauta á vatninu.
Þeir bátar skella hins vegar á öld-
unum og þykja óþægilegir.
„Þessir bátar, sem við köllum OK
Hull, eru í rauninni rúmmálsbátar
sem eru á plani þegar þeir leggja
af stað. Hins vegar myndast engin
bógalda heldur myndast þrýsting-
ur í vatni fyrir framan kjölinn sem
er tekinn til baka fyrir aftan kjöl.
Þessi bátur, sem er tíu metra rúm-
málsbátur, ætti að ferðast á um tíu
hnúta hraða en getur farið upp í
fjörutíu og gæti enn meira ef hann
hefði meira vélarafl,“ segir Össur,
en tíu hnúta hraði er um tuttugu
kílómetrar á klukkustund.
„Svo er nú annar stór kostur.
Báturinn lyftir sér aldrei og lemur
eins og planandi bátur heldur sker
hann vatnið. Þægindin um borð í
bátnum eru allt önnur en í planandi
bát,“ bætir Össur við og segir: „Það
er ansi mikil upplifun að fara út á
þessum bát. Hann er bara ósköp
mjúkur í sjó.“
„Báturinn eykur meðal annars
stórlega möguleika Landhelgis-
gæslunnar til öryggis- og löggæslu
á grunnslóð. Þá eru kostir bátsins
miklir þegar kemur að æfingum
með þyrluáhöfnum Landhelgisgæsl-
unnar sem og varðskipum og öðrum
björgunareiningum,“ segir Georg
Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgis-
gæslunnar. thorgnyr@frettabladid.is
Byltingarkenndur
bátur fyrir gæsluna
Rafnar ehf. afhenti Landhelgisgæslunni nýjan strandgæslubát. Framkvæmda-
stjóri Rafnars segir bátinn byltingarkennda smíði sem marki tímamót. Báturinn er
mjúkur í sjó og kemst á mikinn hraða sem léttir Landhelgisgæslunni lífið.
VEL BÚINN Össur Kristinsson, stofnandi Rafnars, afhendir Georg Kr. Lárussyni, forstjóra Landhelgisgæslunnar, Óðin, sem kemst
á mikinn hraða auk þess að vera þægilegur á siglingu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
● Byltingarkenndur kjölur sem sameinar kosti planandi báta og rúmmálsbáta
● Nýi kjölurinn gerir siglingar sem þægilegastar fyrir áhöfn því báturinn erfir
þann eiginleika rúmmálsbáta að skera vatnið og skella ekki á öldum
● Hitamyndavél sem gerir áhöfn kleift að sjá menn eða báta úr mikilli fjarlægð
● „Side-scan“ sónar sem gerir áhöfn kleift að sjá undir yfirborð sjávar
Óðinn vel búinn
TVÆR
250
hestafl a vélar
utanborðs
BÁTURINN FERÐAST HRATT, Á ALLT AÐ
75
NICOTINELL FRUIT
Ódýrasta Nicotinell
lyfjatyggigúmmíið!
Nicotinell Fruit lyfjatyggigúmmí, inniheldur 2 eða 4 mg nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim
sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Ekki má nota Nicotinell Fruit ef þú reykir ekki eða ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefna lyfsins. Ráðlagður skammtur fer eftir því hversu háð/-ur þú ert reykingum.
Þú skalt nota Nicotinell Fruit 4 mg ef þú ert með mikla nikótínþörf, reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring eða ef þér hefur ekki tekist að hætta að reykja með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Annars skaltu nota Nicotinell Fruit 2 mg ef reykt er
minna en 20 sígarettur á sólarhring. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins skaltu íhuga minni skammt í staðinn. Tyggið hægt þar til finnst sterkt bragð, látið tyggigúmmíið hvíla á milli kinnar og tannholds, tyggið aftur þegar
bragðið dofnar, endurtakið í um 30 mínútur. Ekki má kyngja lyfjatyggigúmmíinu. Í upphafi meðferðar skaltu venjulega nota eitt stk á 1-2 klst. fresti þegar þú finnur fyrir reykingaþörf. Venjuleg notkun er 8-12 stk í á sólarhring. Þú mátt ekki nota
fleiri en 25 af 2 mg eða meira en 15 af 4 mg lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Lengd meðferðar er einstaklingsbundin en varir yfirleitt í a.m.k. 3 mánuði, þá skal draga úr fjölda stk. smám saman. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í
1-2 stk á sólarhring og er ekki mælt með notkun lengur en í 1 ár. Sumt reykingafólk gæti þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Leitaðu faglegrar ráðgjafar hjá lækni eða lyfjafræðingi ef þú getur ekki hætt að nota lyfið
eftir eitt ár eða ef þér tekst ekki að fækka fjölda reyktra sígaretta eftir 6 vikur. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er tilbúinn til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta
reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing áður en þú notar Nicotinell því ekki er víst þú megir nota lyfið ef þú: hefur fengið einhverja hjarta eða æðasjúkdóma, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, ert með
alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi, með magasár, gervitennur, barn á brjósti eða ert á meðgöngu. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn
hvorki ná til né sjá. Lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Grøn Balance
fæst í Krónu
nni
Hafðu það grænt
og njóttu lífsins
0
4
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
2
-7
3
D
C
1
5
A
2
-7
2
A
0
1
5
A
2
-7
1
6
4
1
5
A
2
-7
0
2
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K