Fréttablaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 20
FÓLK| Una, Halla og Haukur Már hönnuðu innréttingarnar og veit- ingarnar frá grunni: „Með ótrú- lega góðri hjálp margra,“ segir Una og bætir við: „Og á ótrú- lega stuttum tíma. Við byrjuð- um um páskana í fyrra, við tók stanslaus vinna í mánuð og svo opnað í byrjun maí.“ Fjármagn var af skornum skammti og húsið nánast til- búið undir tréverk svo það var ekki leitað langt yfir skammt að efni í innréttingar. Stiginn er úr gömlum brettum og barinn úr gömlum lestarlúgum úr fiskiskipinu Vestra BA. „Og tunnuna, sem nú er vínskápur, kom bílstjóri hjá flutningafyrir- tækinu hér, hann Palli Líndal, með færandi hendi.“ segir Una. Hún tekur einnig fram að Pat- reksfirðingar hafi tekið mikinn þátt í því að koma staðnum á legg. „Það voru allir svo til í að hjálpa til og leggja eitthvað fram sem passaði hérna inn. Ég verð að minnast sérstaklega á Árna Magnússon sem lumaði á alls konar fjársjóðum og ófáum tugum klukkustunda í vinnu sem og Paolo Gomes sem vann sleitulaust með okkur við að innrétta.“ STAÐUR Í ÞRÓUN „Una hafði sterkustu sýnina um hvernig þetta ætti allt að líta út, tréverkið og litir í bland. Una til dæmis hannaði þessi sandborð sem túristunum finn- ast mjög skemmtileg með sandi frá mismunandi stöðum hér í kring,“ segir Halla. Halla bætir við að fleiri sand- borð séu í vinnslu enda vantar borð á efri hæðina. „Staður- inn er enn í þróun, okkur tókst ekki að klára nærri því allt áður en við opnuðum en hlaupum í verkefnin þegar tími vinnst til. Og við erum líka að þróa matseðlana sem fara svo líka eftir því hvaða hráefni fæst hverju sinni.“ FÖNG ÚR GULLKISTUNNI BREIÐAFIRÐI Á Heimsenda er bæði hægt að fá fínni à la carte-seðil með kjöt- og fiskréttum en líka plokkfisk og veglega ham- borgara. „Það var ekki endi- lega hugmyndin að vera með hamborgarastað,“ segir Una. „En það þarf líka að þjónusta fjölskyldur á ferð sem eru að koma saman út að borða. Við- skiptavinirnir eru að lang- mestu leyti ferðamenn, bæði innlendir og erlendir og það komast um sjötíu manns í mat í einu.“ Haukur, pabbi Unu, hefur þróað flestar uppskrift- irnar og Una lært af honum. Draumurinn er að matseðillinn verði innan fimm ára alfarið úr hráefni sem finna má í og við gullkistuna Breiðafjörð. „Við erum niðri á höfn svo við fáum fiskinn spriklandi á tröppurnar á morgnana og það ræðst af því hvaða fisk er verið að veiða hvaða fiskur er á matseðl- inum. Nautakjötið í borgarana kemur frá bænum Hvammi á Barðaströnd og silungurinn frá Tungusilungi í Tálknafirði.“ Una samsinnir því en bætir við að lambakjöt verði líkast til ekki hægt að fá að öllu leyti frá nágrenni Patró. „En vonandi allt annað.“ TÓNLEIKAR OG SITTHVAÐ UM AÐ VERA Heimsendi er ekki kaffihús heldur aðeins veitingahús og svo með vínveitingaleyfi „Eld- húsið er opið frá fjögur til tíu og staðurinn svo til hálfellefu. Við erum með vínveitinga- leyfi og öðru hverju reynum við að hafa tónleika og eitt- hvað um að vera, bæði fyrir heimafólk og aðra,“ segir Una og Halla bætir við: „Það er líka mjög flott kaffihús hér á Patró, Stúkuhúsið, sem er með fínan seðil og gott kaffi sem er opnað fyrr á daginn.“ Una bætir við:„Ég held að allir séu bara ánægðir með að allir séu til og við þurfum hvert á öðru að halda.“ Opið verður á Heimsenda til 24. ágúst. Halla og Una hverfa til vetrarstarfanna, Una til náms í mannfræði og kynja- fræði við Háskóla Íslands og Halla að fylgja eftir nýjustu heimildarmynd sinni, Hvað er svona merkilegt við það? Næsta vor opnast svo dyrn- BARINN ÚR LEST- INNI Barinn er smíðaður úr lestar- hlerum af fiskiskipinu Vestra BA. SETUR SKEMMTILEGAN SVIP Stiginn milli hæða er smíðaður úr flutningabrettum. FALLEGUR OG GÓÐUR Maturinn er fallega fram reiddur og leitast er við að nota hráefni sem finna má í og við gullkistuna Breiðafjörð. HEIMSENDABORGARINN Heimsendi býður bæði à la carte-matseðil og girnilega hamborgara og gómsætar franskar. Vertu vinur okkar á Facebook VERÐHRUNIÐ ER HAFIÐ! 60% Vandaður þýskur fatnaður og leðurskór Stærðir 36-52 Útsölulok! 70% MATUR 0 4 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :4 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 A 2 -6 0 1 C 1 5 A 2 -5 E E 0 1 5 A 2 -5 D A 4 1 5 A 2 -5 C 6 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 4 0 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.