Fréttablaðið - 05.08.2015, Page 20
FÓLK|
Una, Halla og Haukur Már
hönnuðu innréttingarnar og veit-
ingarnar frá grunni: „Með ótrú-
lega góðri hjálp margra,“ segir
Una og bætir við: „Og á ótrú-
lega stuttum tíma. Við byrjuð-
um um páskana í fyrra, við tók
stanslaus vinna í mánuð og svo
opnað í byrjun maí.“
Fjármagn var af skornum
skammti og húsið nánast til-
búið undir tréverk svo það var
ekki leitað langt yfir skammt
að efni í innréttingar. Stiginn
er úr gömlum brettum og
barinn úr gömlum lestarlúgum
úr fiskiskipinu Vestra BA. „Og
tunnuna, sem nú er vínskápur,
kom bílstjóri hjá flutningafyrir-
tækinu hér, hann Palli Líndal,
með færandi hendi.“ segir Una.
Hún tekur einnig fram að Pat-
reksfirðingar hafi tekið mikinn
þátt í því að koma staðnum á
legg. „Það voru allir svo til í
að hjálpa til og leggja eitthvað
fram sem passaði hérna inn. Ég
verð að minnast sérstaklega á
Árna Magnússon sem lumaði á
alls konar fjársjóðum og ófáum
tugum klukkustunda í vinnu
sem og Paolo Gomes sem vann
sleitulaust með okkur við að
innrétta.“
STAÐUR Í ÞRÓUN
„Una hafði sterkustu sýnina um
hvernig þetta ætti allt að líta
út, tréverkið og litir í bland.
Una til dæmis hannaði þessi
sandborð sem túristunum finn-
ast mjög skemmtileg með sandi
frá mismunandi stöðum hér í
kring,“ segir Halla.
Halla bætir við að fleiri sand-
borð séu í vinnslu enda vantar
borð á efri hæðina. „Staður-
inn er enn í þróun, okkur
tókst ekki að klára nærri því
allt áður en við opnuðum en
hlaupum í verkefnin þegar tími
vinnst til. Og við erum líka að
þróa matseðlana sem fara svo
líka eftir því hvaða hráefni fæst
hverju sinni.“
FÖNG ÚR GULLKISTUNNI
BREIÐAFIRÐI
Á Heimsenda er bæði hægt að
fá fínni à la carte-seðil með
kjöt- og fiskréttum en líka
plokkfisk og veglega ham-
borgara. „Það var ekki endi-
lega hugmyndin að vera með
hamborgarastað,“ segir Una.
„En það þarf líka að þjónusta
fjölskyldur á ferð sem eru að
koma saman út að borða. Við-
skiptavinirnir eru að lang-
mestu leyti ferðamenn, bæði
innlendir og erlendir og það
komast um sjötíu manns í mat
í einu.“ Haukur, pabbi Unu,
hefur þróað flestar uppskrift-
irnar og Una lært af honum.
Draumurinn er að matseðillinn
verði innan fimm ára alfarið úr
hráefni sem finna má í og við
gullkistuna Breiðafjörð. „Við
erum niðri á höfn svo við fáum
fiskinn spriklandi á tröppurnar
á morgnana og það ræðst af
því hvaða fisk er verið að veiða
hvaða fiskur er á matseðl-
inum. Nautakjötið í borgarana
kemur frá bænum Hvammi á
Barðaströnd og silungurinn
frá Tungusilungi í Tálknafirði.“
Una samsinnir því en bætir við
að lambakjöt verði líkast til
ekki hægt að fá að öllu leyti frá
nágrenni Patró. „En vonandi
allt annað.“
TÓNLEIKAR OG SITTHVAÐ
UM AÐ VERA
Heimsendi er ekki kaffihús
heldur aðeins veitingahús og
svo með vínveitingaleyfi „Eld-
húsið er opið frá fjögur til tíu
og staðurinn svo til hálfellefu.
Við erum með vínveitinga-
leyfi og öðru hverju reynum
við að hafa tónleika og eitt-
hvað um að vera, bæði fyrir
heimafólk og aðra,“ segir Una
og Halla bætir við: „Það er
líka mjög flott kaffihús hér á
Patró, Stúkuhúsið, sem er með
fínan seðil og gott kaffi sem
er opnað fyrr á daginn.“ Una
bætir við:„Ég held að allir séu
bara ánægðir með að allir séu
til og við þurfum hvert á öðru
að halda.“
Opið verður á Heimsenda til
24. ágúst. Halla og Una hverfa
til vetrarstarfanna, Una til
náms í mannfræði og kynja-
fræði við Háskóla Íslands og
Halla að fylgja eftir nýjustu
heimildarmynd sinni, Hvað er
svona merkilegt við það?
Næsta vor opnast svo dyrn-
BARINN
ÚR LEST-
INNI
Barinn er
smíðaður úr
lestar-
hlerum af
fiskiskipinu
Vestra BA.
SETUR SKEMMTILEGAN SVIP
Stiginn milli hæða er smíðaður úr
flutningabrettum.
FALLEGUR OG GÓÐUR Maturinn er fallega fram
reiddur og leitast er við að nota hráefni sem finna má í
og við gullkistuna Breiðafjörð.
HEIMSENDABORGARINN Heimsendi býður bæði
à la carte-matseðil og girnilega hamborgara og
gómsætar franskar.
Vertu vinur okkar á Facebook
VERÐHRUNIÐ ER HAFIÐ!
60%
Vandaður þýskur fatnaður og leðurskór
Stærðir 36-52
Útsölulok!
70%
MATUR
0
4
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
2
-6
0
1
C
1
5
A
2
-5
E
E
0
1
5
A
2
-5
D
A
4
1
5
A
2
-5
C
6
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K