Fréttablaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 40
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
WOWAIR.IS
DUBLIN f rá
9.999 kr.
T í m a b i l : s e p t e m b e r - 1 4 . d e s . 2 0 1 5
KATRÍNARTÚN 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
BÓKAÐU NÚNA
Á WOWAIR.IS
ERTU Í GÍR FYRIR ÍRA?
Verð miðast við flug aðra leið með sköttum, bókunargjald (999 kr.) og töskugjald ekki innifalið.
GUINNESS,
GOLF &
BÚÐARÁP
Dublin
Allt sem þú þarft ...
Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á
tölublað 18–49 ára. Prentmiðlakönnun
Gallup, jan.– mar. 2015
YFIRBURÐIR
Fréttablaðsins staðfestir
53,7%
19,6%
FB
L
M
BL
Selkópur sleppur á ævintýralegan hátt úr selalauginni í Húsdýra-
garðinum. Í skjóli nætur flýr hann
úr lauginni, kannski vegna þess að
hann veit að innan örfárra daga eru
dagar hans taldir. Litli selkópur-
inn tekur því til sinna eigin ráða og
ákveður að stinga af. Hann finnur
lítið gat á lauginni, kemst út um það,
hoppar í átt að grindverki dýra-
garðsins þar sem hann finnur aðra
litla smugu til að komast út. Hann er
kominn út í frelsið! Áfram hopp-
ar hann þar til hann finnur lítinn
læk. Þar rennur hann ljúflega niður
lækinn, frelsinu feginn enda hefur
hann aldrei séð síka fegurð áður.
Þegar lækinn þrýtur hoppar hann í
átt að tjöldum við tjaldstæði. Hann
er kominn út í heiminn, úr pínulitlu
selalauginni og er að kynnast heim-
inum.
ÞETTA hljómar eins og fyrri hluti
hugljúfrar Disney-myndar. En þetta
er sönn saga selkóps úr Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum í Reykjavík.
Saga sem hreyfði við landsmönn-
um. Saga sem verður vafalaust sögð
aftur og aftur. Sagan af hugrakka
selkópnum sem vildi kanna heiminn.
Kópurinn litli, sem heitir ekki neitt því yfirleitt fá kópar garðs-
ins ekki að lifa lengur en til hausts-
ins þar sem þeir enda sem refafóð-
ur vegna plássleysis og fá því ekki
nafn, var færður aftur í garðinn.
Þar var hlegið að flóttatilraunum hans, sem höfðu svo sannarlega
vakið athygli landsmanna á garð-
inum. Og hvað var gert? Hann var
drepinn. Frægasti kópur landsins
drepinn daginn eftir rosalegustu
flóttatilraun dýrs á Íslandi.
Ég skil vel að það geti ekki öll dýr lifað. Ég skil gang lífsins í „sveit-
inni“ en halló.
Ef yfirmenn Húsdýragarðsins hefðu eitthvað markaðsvit þá
hefðu þeir hlíft lífsglaða selkópnum
og nýtt sér frægð hans til þess að fá
fleiri gesti í garðinn. Hver einasta
manneskja sem ég hitti í gær var
að ræða kópinn og fólk var forvitið
að fara að sjá þessa hetju. Var ekki
allavega hægt að leyfa honum að lifa
út sumarið? Börn landsins gráta nú í
kór yfir örlögum hugrakka selskóps-
ins. Þetta eru furðuleg vinnubrögð
og satt best að segja langar mig lítið
til þess að heimsækja garðinn í bráð.
Dauði hugrakka
selkópsins
BAKÞANKAR
Viktoríu
Hermansdóttur
0
4
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
A
2
-2
9
C
C
1
5
A
2
-2
8
9
0
1
5
A
2
-2
7
5
4
1
5
A
2
-2
6
1
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K