Fréttablaðið - 21.08.2015, Blaðsíða 8
VINNUMARKAÐUR Fólk á íslenskum
vinnumarkaði finnur til mikillar tíma-
pressu í vinnu samkvæmt nýrri alþjóð-
legri rannsókn á vegum Vinnuverndar-
stofnunar Evrópu. Sjö af hverjum tíu
svarendum telja sig undir mikilli og
viðvarandi tímapressu í vinnu sinni.
„Það er til mikils að vinna að lág-
marka streituvalda í vinnuumhverfinu
eins og nokkur er kostur,“ segir Þröstur
Óskarsson, doktor í vinnusálfræði. „Við-
varandi streita getur haft áhrif á starfs-
mannaveltu og fjarvistir.“
Að meðaltali finna 43 prósent fyrir
álaginu í löndum ESB. Hlutfallið er
hæst hér meðal þeirra sem starfa í upp-
lýsingatækni, fjármála- og fasteigna-
þjónustu eða 84 prósent.
„Þó erfitt sé að alhæfa út frá þessari
rannsókn á allan íslenskan vinnu-
markað eru þær í takt við þá tilfinningu
okkar. Íslendingar eru margir hverjir
undir tímapressu í starfi sínu og það er
undir álagi og streitu sem óhöpp verða,“
segir Kristinn Tómasson, sérfræðingur
hjá Vinnueftirlitinu. – sa
Nicotinell, lyfjatyggigúmmí. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Hætta skal alfarið reykingum meðan á meðferð með Nicotinell stendur. Upphafsskammtur skal
ákvarðaður út frá því hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Verði vart við aukaverkanir þegar hærri styrkleiki er notaður skal íhuga að skipta yfir í lægri styrkleika. Meðferðarlengd er einstaklingsbundinn. Samtímis neysla á súrum drykkjum, eins og t.d. kaffi og sódavatni, getur minnkað frásog nikótíns í munni. Forðast skal þessa drykki í 15 mínútur fyrir notkun lyfjatyggigúmmís.
Tyggja skal eitt stykki Nicotinell lyfjatyggigúmmí við reykingaþörf. Venjuleg notkun er 8-12 stykki á sólarhring, þó ekki fleiri en 15 stykki af 4 mg lyfjatyggigúmmíi og 25 stykki af 2 mg lyfjatyggigúmmíi á sólarhring. Vegna eiginleika lyfjatyggigúmmís sem lyfjaforms getur nikótínþéttni í blóði verið mismunandi á milli einstaklinga. Því skal miða tíðni skammta við einstaklingsþörf, innan
uppgefinna hámarksskammta. Tyggja skal eitt lyfjatyggigúmmí þar til finnst sterkt bragð. Lyfjatyggigúmmíið skal því næst hvíla á milli kinnar og tannholds. Þegar sterka bragðið minnkar skal byrja að tyggja aftur. Þetta skal endurtaka í 30 mínútur. Í flestum tilfellum skal meðferðin standa í a.m.k. 3 mánuði. Eftir 3 mánuði skal draga smám saman úr notkun. Venjulega er ekki mælt
með notkun Nicotinell lyfjatyggigúmmís lengur en í eitt ár. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring eftir 6 vikur skal leita faglegrar ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúin til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Þeir sem reykja ekki og
þeir sem hafa ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna eiga ekki að nota Nicotinell. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing því ekki er víst að þú megir nota Nicotinell ef þú: ert þunguð, með barn á brjósti, hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp, ert með hjarta- eða æðasjúkdóm, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, magasár eða verulega skerta
nýrna- og/eða lifrarstarfsemi. Einstaklingar undir 18 ára aldri mega ekki nota Nicotinell nema að læknisráði. Nikótín sem er gleypt getur valdið versnun einkenna hjá sjúklingum sem eru með bólgu í vélinda, munni eða koki, magabólgu eða magasár. Einstaklingum með gervitennur, eiga við vandamál í liðamótum kjálka og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja tyggigúmmí er
ráðlagt að nota önnur lyfjaform en lyfjatyggigúmmí. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota lyfjatyggigúmmíið. Athuga ber að lyfjatyggigúmmíið og munnsogstöflurnar innihalda natríum og bútýlhýdroxýtólúen (E321) sem getur valdið staðbundinni ertingu slímhúðar en sumar bragðtegundir innihalda að auki sorbitól (E420), maltitól (E965) eða aspartam (E 951) sem ekki
allir mega taka. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Jafnvel lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
®
Ertu að hætta að reykja?
Veistu hvaða bragðtegund hentar þér?
Fæst í 6 bragðtegundum!
NICOTINELL
LYFJATYGGIGÚMMÍ
Nicotinell-6-bragdtegundir-5x10 copy.pdf 1 13/05/15 09:22
Nokkrir grísir vafra um matvöruverslun í bænum Sarlat í Suður-Frakklandi. Reiðir bændur slepptu dýrunum
lausum í tengslum við mótmælaaðgerðir. NordicPhotos/AFP
STJÓRNSÝSLA „Já, við höfum verið
að heyra af einstaka dæmum að
innheimtan hafi verið öðruvísi,
að menn hafi verið að taka við
seðlum og ekki veitt kvittun,“ segir
séra Kristján Björnsson, formaður
Prestafélags Íslands. Hann segir það
alvarlegt mál ef slík tilvik koma upp.
Dæmi eru um að prestar
og kirkjuverðir hafi tekið við
greiðslum á sína persónulegu
reikninga eða í reiðufé eftir athafnir
á borð við giftingar og fermingar en
gefi hvorki út reikning né kvittun.
Þá hafa komið upp tilfelli þar
sem prestar hafa tekið við hærri
greiðslum en gjaldskrá um auka-
verk presta innan Þjóðkirkjunnar
tilgreinir. Inni á Facebook-hópn-
um „Brúðkaups hugmyndir“ eiga
sér stað umræður um greiðslu til
presta fyrir athafnir og þar má sjá að
nokkrum einstaklingum þykir það
óeðlilegt að hafa greitt í reiðufé eða
ekki fengið afhentan reikning eða
kvittun fyrir vinnunni.
Kjararáð ákvarðar laun presta
og sömuleiðis gjaldskrá aukaverka.
Kristján segir dæmi um það að
prestar hafi farið fram á greiðslu
fyrir öðrum hlutum en akstri og
athafnastjórn en hafi getað gert
grein fyrir því sem bendir til þess
að ekki hafi verið um brot að ræða.
„Við höfum lagt áherslu á það við
presta að gjaldskráin er ekki við-
miðunarskrá heldur er þar fast gjald
og við eigum að taka það gjald og
ekkert annað. Við gefum félags-
mönnum upplýsingar um það hvað
er leyfilegt að taka.“
Greiðslur vegna aukaverkefna
presta eru ekki virðisaukaskatt-
skyldar sem veldur því að sumir gefi
ekki út kvittanir enda gagnast slíkt
lítið í bókhaldi. Þó segir Kristján
að allir prestar og kirkjuverðir geti
gefið út kvittanir og ættu að halda
sig við þau vinnubrögð.
Samkvæmt Ríkisskattstjóra á
að gefa út reikning fyrir alla veitta
þjónustu ef forðast á formbrot. Þó
að reikningur sé ekki gefinn út gæti
verið að haldið sé utan um tekjur en
ef tekjur eru ekki gefnar upp er um
skattalagabrot að ræða.
„Við höfum be t á að ganga þa nig
frá málunum að það sé gegnsætt. Eitt
Prestar gifta,
ferma og skíra
undir borðið
Dæmi eru um það að prestar og kirkjuverðir gefi
ekki út reikninga og þiggi reiðufé fyrir athafnir.
Formaður Prestafélags Íslands segir slík tilfelli fá
en þau eru litin alvarlegum augum.
Sjö af tíu undir tímapressu í vinnu
af því er til dæmis að borga í gegnum
banka og þá er það rekjanlegt.“
Komið hafa upp tilfelli þar sem
Biskupsstofa hefur kallað presta inn
á teppið vegna mála af þessum toga.
„Ég get ekki neitað því að biskup hefur
þurft að kalla presta fyrir. Þetta eru
ekki mörg tilvik. Ég man eftir einu
fyrir tveimur árum. Ef það kemur
kvörtun frá fólki þá kvartar það beint á
Biskupsstofu. Þetta er ekki eitthvað sem
við eigum að þurfa að hafa í lausu lofti.“
Kristján segir mikilvægt að
fólk leiti til Biskupsstofu til
að leita upplýsinga eða ef því
þykir fyrirkomulag greiðslu
vera með óeðlilegum hætti.
stefanrafn@frettabladid.is
Af Facebook-síðunni
Ég get ekki neitað
því að biskup
hefur þurft að kalla presta
fyrir.
Kristján Björnsson
formaður Presta-
félags Íslands
Íslendingar eru
margir hverjir
undir tímapressu í starfi
sínu og það er undir álagi
og streitu sem óhöpp verða.
Kristinn Tómasson,
geðlæknir og sér-
fræðingur
hjá Vinnueftirlitinu.
Svínarí í franskri matvöruverslun
2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 5 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
„Finnst svo skrítið að leggja inn á hans
persónulega reikning. Hefði haldið að
kirkjan væri með reikning.“
„En hvernig getur maður verið viss
um að þeir gefi þetta upp þegar þetta
er bara lagt inn á þeirra persónulega
reikning. Hélt líka að maður fengi
reikning fyrir þessu.“
„Mér finnst þetta mjög spes, sama
með fermingar, greitt inn á persónu-
legan reikning prestsins.“
„Svona er greiðsla fyrir fermingar
líka – peningar i umslagi og ekki séns
að millifæra hjá sumum – hef
alltaf fundist þessar greiðslur frekar
skrítnar. Að greiða presti beint.”
„Mér finnst mjöööööög undarlegt
ef prestar eru að taka við þessu í ein-
hverjum umslögum.“
„Við borguðum honum 10 þúsund.
Bara á æfingunni.“
2
0
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:5
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
D
5
-E
C
D
0
1
5
D
5
-E
B
9
4
1
5
D
5
-E
A
5
8
1
5
D
5
-E
9
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K