Fréttablaðið - 21.08.2015, Blaðsíða 12
Ef þetta er stað-
reyndin þarf að rýna
í það hvað er að klikka. Er
þetta hreinlega skandall eða
þarf að lesa betur í niður-
stöður?
Soffía
Vagnsdóttir,
fræðslustjóri á
Akureyri
Nú eru tilboðsdagar hjá okkur í fullum gangi.
Framúrskarandi Bosch heimilistæki og falleg gjafavara.
Opið virka daga frá kl. 11 – 18
og á laugardögum frá kl. 11- 16.Þvottavél
Tilboðsverð:
99.900 kr.
Fullt verð: 149.900 kr.
WAP28397SN
Tekur mest 7 kg. Vindur upp í
1400 sn./mín. Hljóðlátur,
kolalaus mótor með 10 ára
ábyrgð. Orkuflokkur A+++.
Ryksuga
Tilboðsverð:
29.900 kr.
Fullt verð: 39.900 kr.
BGL 4SIL69A
Orkuflokkkur A. Útblástur A.
Parkett og flísar, flokkur A.
Þvottavél
Tilboðsverð:
99.900 kr.
Fullt verð: 149.900 kr.
WTW 86197SN
Tekur mest 7 kg.
Sjálfhreinsandi rakaþéttir.
Orkuflokkur A++.
„Það hafa ekki verið gerðar erlendar
rannsóknir á Byrjendalæsi en það
eru margar erlendar rannsóknir sem
stuðst var við þegar byrjendalæsið
var sett saman,“ segir Rósa Eggerts
dóttir, sú sem leiddi þróun kennsluað
ferðarinnar Byrjendalæsis við Mið
stöð skólaþróunar við Háskólann á
Akureyri, þegar hún var innt eftir því í
hvaða rannsóknir væri vitnað í frétta
tilkynningu sem Miðstöðin sendi frá
sér í gær. Þar kom fram að Byrjenda
læsi væri byggt á erlendum rann
sóknum.
Birna María Sveinbjarnardóttir, for
stöðumaður Miðstöðvar skólaþróun
ar, segir hins vegar rannsókn á vegum
Háskólans á Akureyri og Háskóla
Íslands nú standa yfir á árangri Byrj
endalæsis sem kennsluaðferð. Niður
stöður þeirrar rannsóknar liggja ekki
fyrir og því er ljóst að kennsluaðferð
sem innleidd var í um helming grunn
skóla landsins hefur ekki verið prófuð
eða nægilega vel rannsökuð.
Í gær birti Menntamálastofnun ný
gögn þess efnis að nemendur kæmu
verr út en áður í íslensku, lesskilningi
og stærðfræði eftir að Byrjendalæsi var
innleitt í skólana.
„Ráðherra talar um raunprófaðar
aðferðir. Ef hann ætlar að gera það þá
þarf að loka öllum skólum landsins því
það er ekkert raunprófað hér á landi,“
segir Rósa.
Hún segist hins vegar taka undir
með ráðherra um að efla þurfi læsi
ungmenna. „Akkillesarhællinn að
mínu mati er á miðstigi og unglinga
stigi og þá er löngu hætt að kenna
lestur. Í raungreinum þarf oft að
umorða bækur því krakkarnir eru ekki
tilbúnir í flókinn texta,“ útskýrir Rósa.
„Ráðherra er búinn að stofna Mennta
málastofnun og virðist ætla að fara að
skella einni aðferð að ofan og segja
grunnskólum að einungis ein aðferð
verði kennd, gamla hljóðaðferðin.“
Aðrir þættir gætu haft áhrif
Arnór Guðmundsson er forstöðu
maður Menntamálastofnunar, sem gaf
út gögnin sem hleyptu umræðunum af
stað. „Ég er ekki að segja að Byrjenda
læsi valdi þessu falli. Við erum að segja
að við hefðum ætlað að Byrjendalæsi
skilaði sér í bættum árangri nemenda í
lestri og það virðist ekki vera,“ útskýrir
hann. „Það geta verið aðrir þættir
sem hafa áhrif á þetta fall almennt.
Þessi samanburður sem við leggjum
áherslu á er samanburður áður en
þeir hafa verið í Byrjendalæsi og síðan
eftir fjögur ár í Byrjendalæsi. Það er
ekkert einhlítt,“ segir Arnór og bætir
við að Menntamálastofnun geri kröfu
um að Miðstöð skólaþróunar við HA
rannsaki sjálf árangur aðferðarinnar.
„Við viljum ræða þetta á grundvelli
gagna. Það er frábært ef þau geta sýnt
fram á það með gögnum að Byrjenda
læsi virki.“
Aðferðirnar verða að virka
„Við erum að tala um möguleika
barna í námi,“ segir Illugi Gunnarsson
menntamálaráðherra. „Það segir sig
sjálft að það getur aldrei orðið þann
ig að í hverju einasta fagi sé aðferða
fræðin prófuð og rannsökuð til hlítar.
En þegar um er að ræða grundvallar
fögin, eins og til dæmis lestur og
stærðfræði, þá hljótum við að gera
þá kröfu að hægt sé að færa fyrir
því þung rök þegar innleiða á nýjar
aðferðir. Þessi grundvallaratriði verða
að vera í lagi, ef þau eru ekki í lagi þá
er svo margt annað sem klikkar. Auð
vitað er það þannig að það er ekki ein
aðferð til við það að kenna lestur. Við
vitum það að það eru margar aðferðir
af því að börnin eru ólík. Þær aðferðir
sem við notum, þær þurfa allavega að
virka.“
Illugi segir mikilvægt að setja sér
markmið um árangur fyrirfram og
ákveða hvernig skuli meta aðferðir
sem séu innleiddar. „Það eru engin rök
að vegna þess að við séum ekki vön að
mæla, eða að það sé erfitt að mæla að
þá eigi ekki að mæla neitt. Við verðum
að setja þá kröfu á háskólana og aðra
að svona mikilvægar ákvarðanir eins
og kennsluaðferðir í lestri séu mjög
vel rannsakaðar áður en þær eru inn
leiddar.“
Kallar eftir fræðilegum skýringum HA
„Við tökum þetta mjög alvarlega,“
segir Soffía Vagnsdóttir, fræðslustjóri
á Akureyri. Hún var nýbúin að fá í
hendurnar greininguna frá Mennta
málastofnun. Miðstöð skóla þróunar
við Háskólann á Akureyri segir töl
fræðina frá Menntamálastofnun ekki
standast.
„Mig langar að heyra fræðilegar
skýringar Háskólans á Akureyri. Hvort
þetta geti staðist.“ Soffía segist slegin
yfir því sem fram hefur komið í fjöl
miðlum. „Ef þetta er staðreyndin, að
þessir skólar eru þetta lægri, þá verð
um við að rýna í það hvað er að klikka.
Er þetta hreinlega skandall eða þarf að
lesa betur í niðurstöður?“
Soffía segist ekki ætla að segja upp
samningi í tengslum við Byrjenda
læsi við Háskólann á Akureyri að svo
stöddu. „En ég á eftir að hitta fólkið þar
og taka samræðuna.“
En hver er munurinn á fagmanni og
áhugamanni ef aðferðirnar eru ekki
prófaðar áður en þær eru innleiddar?
„Þau verða að svara fyrir það í Háskól
anum á Akureyri. Maður treystir
háskólasamfélaginu til að vera með
traustan fræðilegan grunn.“
Vilji ráðherrans þýði lokun skólanna
Ljóst að kennsluaðferðin Byrjendalæsi hefur ekki verið nægilega vel rannsökuð. Ráðherra segir möguleika barna til náms í húfi.
Í HA. Menntamálaráðherra segir að um möguleika barna til náms sé að ræða. Mynd/Háskólinn á Akureyri
Ólöf Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Sveinn
Arnarsson
sveinn@frettabladid.is
Við verðum að setja
þá kröfu á háskólana
og aðra að svona mikilvægar
ákvarðanir eins og kennsluað-
ferðir í lestri séu mjög vel
rannsakaðar áður
en þær eru inn-
leiddar.
Illugi Gunnarsson,
menntamálaráð-
herra
Ráðherra talar um
raunprófaðar að-
ferðir. Ef hann ætlar að gera
það þá þarf að loka öllum
skólum landsins því það er
ekkert raunprófað
hér á landi.
Rósa Eggertsdóttir,
forystukona í
innleiðingu
Byrjendalæsis
2 1 . á g ú s t 2 0 1 5 F Ö s t U D A g U R1 0 F R é t t i R ∙ F R é t t A B L A ð i ð
2
0
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:5
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
D
5
-F
B
A
0
1
5
D
5
-F
A
6
4
1
5
D
5
-F
9
2
8
1
5
D
5
-F
7
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K