Fréttablaðið - 21.08.2015, Qupperneq 34
Nanna Árnadóttir
íþróttafræðingur
Ég loka hliðinu að leikskólalóð-
inni og andvarpa eða dæsi. Af
létti.
Frjáls eins og fuglinn til
klukkan fjögur. Svo er ég kýld í
magann.
Hvernig dettur þér í hug að
hugsa svona? Elskarðu ekki
börnin þín? Af hverju varstu að
eignast börn ef þú getur ekki
einu sinni séð um þau á daginn
og þarft að setja þau í geymslu
til annars fólks?
Á hverjum einasta morgni
fer ég í gegnum þessar hugs-
anir. Ég fæ nagandi mömmu-
samviskubit yfir því að eyða
ekki dýrmætum tíma með þess-
um elskum og hugsanirnar um
eigin takmarkanir, langanir og
þrár rista stundum eins og djúp-
ar klær þvert yfir hjartað. Þetta
andskotans samviskubit alltaf
hreint.
Er leikskóli geymsla?
Staðreynd málsins er sú að leik-
skólinn er frábær staður fyrir
börn til að læra á heiminn. Þar
læra börnin mín miklu meira
heldur en ég get gefið þeim ef
ég væri heima allan daginn með
þau ein fyrir augunum.
Fyrir utan að ég myndi sturl-
ast því staðreynd málsins er
líka sú að ég elska vinnuna
mína og smá einveru. Það er
kannski smá tabú að játa það
en stundum finnst mér ofsa-
lega gott að vera bara aðeins
ein heima. Ég set græjurnar í
botn, helli mér upp á rótsterkan
kaffibolla og fæ mér súkkulaði í
morgunmat. Smá spari áður en
formlegur vinnudagur hefst (nú
eða ég reyni að laumast heim
áður en ég sæki þau til að eiga
rólega stund bara með mér, ein
heima).
Yfir daginn hleð ég mann-
eskjubatteríin mín svo að þegar
ég sæki litlu elskurnar klukk-
an fjögur þá er ég róleg, glöð
í hjartanu og full tilhlökkunar
að eyða með þeim tíma þar sem
hvorki tölva né sími truflar.
En þetta er svo skrítið.
Hver þarf deit?
Sama er uppi á teningnum þegar
við eiginmaðurinn förum á
stefnumót.
Fyrstu tíu mínúturnar fara í
að tala um hversu nauðsynlegt
það er að eiga smá stund saman
en svo förum við að tala um börn-
in og jafnvel sakna þeirra. Ekki
einu sinni láta mig byrja að tala
um utan landsferðir! Í hvert sinn
sem eiginmaðurinn stingur upp á
helgarferð þar sem við erum bara
tvö fer ég að hafa áhyggjur af því
að við munum deyja í flugvélinni
og skilja börnin eftir foreldralaus.
Nú, eða bara að ég sé að svíkja
þau um tækifæri til að ferðast og
sjá framandi menningu. Eða bara
heimsækja dýragarð og hlusta á
útlensku. Niðurstaða mín í þessu
máli er eiginlega bara ein. Ég
held að ég sé háðari börnunum
heldur en þau mér.
Má fara í flug án barna?
Svo gerðist það. Ég þaggaði
niður í hugsununum með skyn-
samlegri tækni sálfræðinn-
ar og bókaði helgarferð. Bara
við tvö. Heila fjóra daga. Og
veistu hvað? Ég er að pissa í
mig af spenningi! Staðreyndin
er nefnilega sú að börn þurfa
hamingjusama uppalendur
sem elska hvort annað og slíkt
þarf að rækta. Ástin kemur
ekki af sjálfu sér. Ég get nú
samt ekki neitað því að inn á
milli þess að skoða sögufræg-
ar byggingar mun ég laumast
inn í verslanir og kaupa gjaf-
ir handa litlu elskunum. Bara
svo því sé haldið til haga að
auðvitað elskar þessi mamma
börnin sín, þó að hún eyði ekki
öllum vökutíma með þeim.
KÝLD AF MÖMMU-
SAMVISKUBITI
Ef þú hefur spurningu um
kynlíf þá getur þú sent
Siggu Dögg póst og
spurningin þín gæti birst í
Fréttablaðinu.
sigga@siggadogg.is
VILTU SPYRJA UM KYNLÍF?
Hvert sem ég lít þessa dagana sé
ég fólk úti að hlaupa. Mér finnst
það stórkostlegt og það er fátt
sem toppar tilfinninguna sem
maður fær eftir gott hlaup. Lung-
un fyllast af fersku lofti, blóð-
flæðið í líkamanum er í full-
um gangi og vellíðunartilfinn-
ing leikur um líkamann, þó svo
að hlaupið hafi verið alveg drullu-
erfitt. Maður er alltaf ánægður
með að hafa farið út og látið slag
standa.
Það geta flestir hlaupið
Hlaup er líkamsrækt sem nánast
hver sem er getur stundað, hafi
maður heilsu til. Hlaupin eru svo
til ókeypis, maður þarf einungis
að eiga góða skó og þá eru manni
allir vegir færir. Maður getur
hlaupið hvar sem er og hvenær
sem er og maður getur byrjað
hvenær sem er. Þó svo að maður
sé kominn yfir fimmtugt þýðir
það ekkert að maður geti ekki
byrjað að hlaupa. Maður þarf
bara að byrja rólega, passa sig
að fara sér ekki of hratt og vera
þolinmóður, þá kemur þetta. Ég
held að þetta sé ein af ástæðun-
um fyrir því að svo margir kjósa
hlaupin sem líkamsrækt, og er
það engin furða.
Uppskeruhátíð hins
almenna hlaupara
Mér finnst frábært að sjá hversu
margir taka þátt í Reykjavíkur-
maraþoninu á hverju ári og alltaf
bætist í hópinn. Ungir sem aldnir
eru með og njóta þess að hlaupa
um götur borgarinnar með bros
á vör. Ég tók þátt í Reykjavíkur-
maraþoninu í fyrsta skipti í fyrra
og hljóp 10 kílómetra, eitthvað
sem ég hafði aldrei gert áður
og hafði aðeins stefnt að frá því
um byrjun sumars. Mér fannst
allt við þetta markmið mitt erf-
itt. Mér fannst æfingarnar erf-
iðar, mér fannst oft erfitt að rífa
mig af stað og fara að hlaupa og
mér fannst sjálft keppnishlaup-
ið erfitt. En aldrei hefði ég getað
trúað því hversu skemmtilegt
það var. Eftir hverja einustu æf-
ingu var ég ánægð, ég var alltaf
að bæta mig og mér leið vel í lík-
amanum. Sjálft hlaupið var líka
eitt af því skemmtilegasta sem
ég hef gert. Mannmergðin, gleðin
og hvatningin sem maður fékk á
leiðinni var mögnuð, og þá verð
ég sérstaklega að hrósa mínum
bæjarbúum á Seltjarnarnesi, vá
hvað það var gaman að hlaupa
niður Lindarbrautina! Það sem
mér fannst þó standa upp úr var
að hlaupa fram hjá Hringskonum
þegar það var minna en kílómetri
eftir og fá hvatningu frá þeim,
en ég ákvað einmitt að styrkja
Hringinn. Þvílík orkusprauta
sem það var.
Munið að njóta
Margir taka þátt í hlaupinu með
það að markmiði að ná einhverj-
um sérstökum tíma og er það að
sjálfsögðu gott og vel. Það er þó
aðeins eitt ráð sem ég hef fyrir
ykkur sem eruð að taka þátt,
og þá sérstaklega ykkur sem
eruð að gera það í fyrsta skipti.
Munið að njóta. Takið inn þessa
vellíðunar tilfinningu sem þið
fáið þegar þið eruð alveg að nálg-
ast markið og þegar þið eruð
loksins búin með hlaupið. Ég get
því miður ekki tekið þátt þetta
árið vegna ýmissa líkamlegra
kvilla og ég gæti farið að gráta
við tilhugsunina. Ég skal þó
hundur heita ef ég tek ekki þátt
á næsta ári og er strax farin að
hlakka til. Góða skemmtun!
HLAUPIÐ UM GÖTURNAR
Heilsuvísir%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%
BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16
ÚTSALA
30%
AFSLÁTTUR
ÁĐUR 22.500
ÁĐUR 91.600
ÁĐUR 99.900
ÁĐUR 16900
20-25%
20%
AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR
ÁĐUR 179.800
ÁĐUR 151.300
ÁĐUR 199.800
ÁĐUR 17.700
NÚ 14.160
ÁĐUR 93.800
NÚ 75.000
ÁĐUR 184.900
Fáðu þér áskrift í síma 1817 eða á 365.is
ENDALAUST TAL OG
10 GB Á 3.990 KR.*
Færðu farsímann yfir til 365 og fáðu
frábært sjónvarpsefni á fáránlega
góðu verði.
Allt það besta hjá 365
*Gildir fyrir áskrifendur í tilboðspökkum 365
4 • LÍFIÐ 21. ÁGÚST 2015
2
0
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:5
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
D
5
-D
E
0
0
1
5
D
5
-D
C
C
4
1
5
D
5
-D
B
8
8
1
5
D
5
-D
A
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K