Ský - 01.06.2007, Qupperneq 11
sk‡ 11
„Verðmatið byggist á tilfininningu og innsæi sem verður til
þegar maður er búinn að eyða mörgum sólardeginum í dimmum
fornbókabúðum í London, París og Róm,“ svarar Eiríkur Ágúst.
„Þó er engin bók meira virði en það sem kaupandinn vill borga fyrir
hana. En það er svo margt sem spilar inn í verð gamalla bóka, jafnvel
fasteignamarkaðurinn. Undanfarið hafa verið miklir flutningar og oft
virðast bækur það fyrsta sem fólk losar sig við. Þannig er misjafnt hvað
telst raritet hverju sinni.“
Ari Gísli bætir við. „Nú er aldamótakynslóðin að falla og fók hefur
verið að koma með bækur foreldra sinna. Því er ágætt úrval af því sem
aldamótakynslóðin átti í hillunum hjá okkur.“
Hvor er dýrari í þessum gömlu útgáfum, Laxness eða Þórbergur?
„Þórbergur er sennilega dýrari,“ svarar Eiríkur Ágúst. „Upprunaleg
útgáfa af Bréfi til Láru í umslaginu er mjög dýr. Verðið á Spaks manns
spjörum og öðrum ljóðabókum hans getur líka slagað hátt upp í góða
húsaleigu. En fyrstu útgáfur Laxness geta svosem kostað sitt líka,
sérstaklega ef þær eru áritaðar.“
Auðfræði og Nýhil
Ari Gísli bætir við að hann verði líka var við tíðarandasveiflur á
fornbókamarkaðinum og stundum komist einstaka bækur í tísku.
„Til dæmis er bókin Auðfræði sem kom út árið 1899 og er eftir
Arnljót Ólafsson mjög eftirsótt þessa dagana. Ég gat þó útvegað tvö
feðgar
eintök af henni um daginn. Kaupandinn gaf þekktum auðmanni
annað eintakið og hélt hinu fyrir sig. Í þessari bók lærirðu líka
hvernig þú átt að fara að þessu.“
„Ljóðabók Bjarkar Guðmundsdóttur er önnur mjög
eftirsóknarverð bók,“ bætir Eiríkur við. „Þetta er bók sem hún
myndskreytti sjálf á sínum tíma. Útlendingar eru tilbúnir til að
borga þúsundir dollara fyrir þessa bók en við höfum ekki enn
fundið eiganda sem getur hugsað sér að láta eintakið sitt.“
„Og svo eru svona fjársjóðir í þessu,“ segir Ari. „Jónsbók frá
1578 er enn ófundin. Um daginn var seljandi í útlöndum sem taldi
sig vera með þá bók undir höndum og var kominn með kaupanda
sem vildi borga 5 milljónir fyrir hana. Síðar kom í ljós að eintak
seljandans var ekki umrædd Jónsbók. Hinsvegar á að vera til eintak
af henni einhversstaðar. Það væri gaman ef hún kæmi upp úr
einhverjum kassanum.“
Hverju mynduð þið ráðleggja fólki að byrja að safna í dag ef það
vill byggja upp varasjóð?
„Ég myndi fara í ljóðin,“ svarar Eiríkur. „Beint í ungu
höfundana sem eru að gefa út í dag. Menn eins og Kristian
Guttesen og Nýhil hópinn. Eins myndi ég kaupa Bjarna Bernharð
komplett og auðvitað fá allt áritað.“
„Já, ég færi líka í ljóðin,“ segir Ari Gísli. „En ég færi nú líklega
í eldri skáldin. Menn eins og Stein Steinarr.“ sky
,
Það er heilmikið um að menn leiti ráða í persónulegum málefnum.