Ský - 01.06.2007, Blaðsíða 14
1 sk‡
Pétur Ben
kennara í gegnum tíðina. Sumir hafa verið tónlistarkennararnir
mínir, aðrir ágætlega þekktir gítarleikarar og svo hafa vinir
mínir kennt mér margt. Sjálfum finnst mér ég ekkert sérstakur
gítarleikari. Ég er öruggur í mínu en þegar ég er beðinn að spila
eitthvað annað er ég fljótur að missa jafnvægið. Enda lít frekar á
mig sem lagahöfund en gítarleikara“
Nú er Garðabær þekktari fyrir íþróttafélagið Stjörnuna
en mikla gerjun í tónlist, hvernig var að alast upp þar?
„Ég var svolítið félagslega utanveltu á unglingsárunum en það
sem bjargaði mér var að vera ung gítarhetja. Þannig komst ég inn
í aðra hópa og kynntist hljómsveitarliðinu í Kópavogi. Til dæmis
var ég í dauðarokkshljómsveit með Arnari í Leaves og Vinyl bræður
voru með mér í hljómsveit sem hét Charles Gissur. Á þessum tíma
komst ég líka í kynni stelpurnar í Kolrössu, Emilíönu Torrini og
fleira tónlistarfólk.“
Er mikil tónlist í fjölskyldunni þinni?
„Nei, ég get ekki sagt það. Mamma lét sér nægja að hlusta á
Abba og Billy Joel en pabbi var meira í Led Zeppelin. Ég fékk samt
alltaf mikla hvatningu heima. Eftir að tónlistaráhugi minn kom í
ljós fór pabbi til dæmis að ýta að mér klassískri tónlist með þeim
afleiðingum að 16 ára hlustaði ég bara á Beethoven.“
Trúin
Í textum þínum er mjög víða að finna trúarlegar
skírskotanir og á MySpace síðunni þinni er Guð fremstur
á lista yfir helstu áhrifavalda. Á sama lista eru reyndar
líka nöfn Michael Jackson og Dostojevskí og PJ Harvey.
En hversu trúaður ertu?
„Ég vil líta á mig sem trúaðan mann og var sunnudagaskólakennari
í mörg ár í Áskirkju og Kópavogskirkju. Þar spilaði ég á kassagítar og
kenndi krökkunum lög eins og Ó Jesú bróðir besti. Þessi bræðingur
af ljósi og tónlist sem er sumsstaðar að finna í kirkjustarfinu hefur
alltaf heillað mig. Og sem textahöfundur tek ég gjarnan viðmið og
gildi úr kristinni trú og yfirfæri á sjálfan mig. Reyndar var það ekki
fyrr en ég gerði tónlistina við Börn að ég áttaði mig á að það væri
hægt að segja „ég“ í texta án þess að þurfa að vera ævisögulegur. En
ég vinn stöðugt að því að verða betri textahöfundur. Þegar ég er
ekki að lesa um græjur og míkrófóna skoða ég höfunda sem ég tel
mig geta lært af.“
Hvað ertu að lesa núna?
„Norwegian Wood eftir Haruki Murakami. Ég hef aldrei lesið
hann áður og mér finnast flottar stemningar í þessari bók. Ég
var líka að kaupa mér útlent ljóðasafn með ljóðum eftir hina og
þessa.“
Aginn og Cave
Þegar Vesturport setti upp leikritið Woyzeck í
Borgarleikhúsinu og Nick Cave tók að sér að semja
tónlist við sýninguna varstu fenginn til að vera sérstakur
tónlistarstjóri leikritsins hér heima. Hvernig gekk
samstarfið við Nick Cave?
„Ég ætlaði nú ekki að vilja vera með í þessu fyrst þar sem
ég var mjög upptekinn sjálfur. En leikstjóri sýningarinnar, Gísli
Örn Garðarsson, sannfærði mig um að fljúga með sér út til
London þar sem Nick Cave var að taka upp tónlist fyrir leikritið
ásamt fiðluleikaranum Warren Ellis og smækkaðri útgáfu af
hljómsveitinni Bad Seeds. Það var mjög áhugavert að fylgjast með
þessum mönnum vinna. Þeir gerðu þetta allt á fjórum dögum og
það var rosalega gaman hjá þeim. Þeir voru að frá 10 á morgnana
til miðnættis og það eiginlega án þess að taka sér pásu. Ég hef
aldrei séð mann borða jafn hratt og Nick Cave. Hann gleypti heilu
samlokurnar. Á þessum fjórum dögum gerði ég mest lítið annað en
horfa á hann vinna og spyrja hann að öllu sem brann á mér. Þegar
svo heim var komið útsetti ég tónlistina hans fyrir kór sem stóð á
sviðinu í leikhúsinu. Í því fólst samstarf mitt við Nick Cave. Þegar
hann kom hingað heim til að sjá sýninguna spurði ég hann varlega
hvort hann væri sáttur við útsetningarnar og hann reyndist mjög
ánægður. Ég var í skýjunum yfir því í marga daga.“
Ertu jafn agaður til vinnu og Cave?
„Nei, því miður. Ég get verið mjög kaotískur. Á móti kemur
að ég er alltaf í vinnunni. Ég vildi óska að ég gæti unnið sleitulaust
í 10-12 tíma á dag og svo bara hætt en það er ekki þannig. Það
ruglar líka rútínunni að vera að spila á tónleikum seint á kvöldin.
En trúarskoðanir mínir hjálpa mér samt við að vera rólegri í eigin
skinni og gagnvart amstri dagsins. Og svo er ég viss um að ég hefði
ekki klárað nokkurn skapaðan hlut ef ég ætti ekki fjölskyldu,“ segir
Pétur Ben að lokum. sky
,
Ég hef aldrei séð mann borða jafn hratt og nick Cave.
hann gleypti heilu samlokurnar. á þessum fjórum dögum gerði ég mest lítið
annað en horfa á hann vinna og spyrja hann að öllu sem brann á mér.