Ský - 01.06.2007, Blaðsíða 18

Ský - 01.06.2007, Blaðsíða 18
íslenskar fyrirsætur 18 sk‡ allt orkar tvímælis þá gjört er. Þessi setning, sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins hafði svo oft yfir og var um margt leiðarstef hans, hafa oft verið tekin sem dæmi um þekkingu og visku Bjarna og hvernig hann hagaði málum í stjórnmálastarfi sínu. Kjarni þessara orða er einfaldlega sá að öll mál hafi fleiri en eina hlið og fyrir vikið geti menn aldrei verið vissir um að sú leið sem þeir velja sé endilega sú rétta. „Ég er sannfærður um að fáir hafa yfirleitt í stjórnmálum gert meira ógagn heldur en þeir sem ætíð telja sig hafa allsherjarúrræði við öllu, þykjast hafa örugga sannfæringu ... um kenningar sem eiga að hafa allsherjarlausn þjóðfélagsvandamálsins í sér fólgnar. Slíkir menn, þó að þeir vilji vel, verða yfirleitt til mikils tjóns,“ sagði Bjarni í þingræðu haustið 1967. En þrátt fyrir þessa efahyggju var Bjarni Benediktsson staðfastur stjórnmálamaður. Jafnvel svo að mörgum þótti nóg um. Almennt sagt valdi hann fremur frelsi en hafnaði ríkisafskiptum og höftum væri um tvennt að velja. Talaði með þunga og skýrum röksemdum fyrir því að stofnað yrði lýðveldi á Íslandi og þegar blikur kalda stríðsins dró á loft - með ógnarspennu milli austurs og vesturs - varð hann sem utanríkisráðherra eindreginn stuðningsmaður vestrænnar samvinnu og að Íslendingar tækju þátt í stofnun Atlantshafsbandalagsins. „Leyndust ekki kostir mannsins“ Bjarni Benediktsson fæddist í Reykjavík 30. apríl 1908 og var sá þriðji af sjö börnum Benedikts Sveinssonar þingforseta og Guðrúnar Pétursdóttur. „Hann var snemma bráðger og svipmikill,“ segir Ó­löf systir hans í bókinni Bjarni Benediktsson í aug­um samtíð­armanna. Nefnir þar að bróðir sinn hafi verið talinn talinn alvarlegur og fáskiptinn í bernsku, seintekinn en einstaklega samviskusamur og skyldurækinn. Það síðastnefnda sést raunar best á því hve ágætur námsmaður Bjarni var. Stúdentsprófi frá MR lauk hann 1926 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands fjórum árum síðar. Í framhaldinu fór hann til framhaldsnáms í stjórnlagafræðum í Berlín og heimkominn 1932 var hann, þá 24 ára, skipaður prófessor við lagadeild HÍ. Um það svipað leyti hófst stjórnmálaafskipti Bjarna af alvöru. Árið 1934 var hann kjörinn í bæjarstjórn Reykjavíkur hvar hann sat með hléum til 1949 og var borgarstjóri frá 1940 til 1947. Borgarstjóratíð Bjarna var umbrotatími. Lengst af þann tíma geisaði heimsstyrjöldin síðari og landið var setið af erlendum her, sem fylgdu ýmis vandamál svo sem verðbólga og húsnæðisskortur enda fluttu margir úr sveitum landsins á mölina til að komast í uppgripavinnu hjá hernum. Því fylgdu á móti miklar tekjur til borgarinnar, sem voru meðal annars nýttar til aðgerða í húsnæðismálum, uppbyggingu hafnarinnar, eflingar atvinnu, byggingar skólahúsnæðis og til að bæta ýmsa félagslega aðstöðu. Í minningarorðum um Bjarna segir Eðvarð Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar, að þegar hann valdist í forsvar fyrir verkamenn hafi Bjarni nýlega verið tekinn við embætti borgarstjóra. Hafi fyrstu kynni þeirra ekki verið neinir vinafundir, þar sem báðir hefðu tekið þátt í hinum hörðu stéttaátökum kreppuáranna, og verið hvor sínum megin víglínunnar. „Vissir fordómar og tortryggni mótuðu því samskipti. Þótt mér virtist hann þá harður viðskiptis og stundum fráhrindandi í viðmóti leyndust ekki kostir mannsins: hann kynnti sér málin, var raunsær í ályktunum, afgreiddi mál vafningalaus og treysta mátti orðum hans,“ segir Eðvarð. Arkitekt utanríkisstefnu Bjarni Benediktsson var kjörinn til setu á Alþingi 1942 og átti þar sæti til dauðadags. Öllum heimildum ber saman um að Bjarni Hæfileikinn til þess að leiða mál til lykta Bjarni Benediktsson varð prófessor 24 ára, borgarstjóri, ritstjóri morgunblaðsins og ráðherra lengur en nokkur annar Íslendingur texti: Sigurður Bogi Sævarsson • mynd: Mbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.