Ský - 01.06.2007, Side 33
sk‡ 33
magnus Öen Carlsen fæddist árið 1990 í Tönsberg í Noregi. Faðir hans kenndi honum mannganginn
en hann tefldi á sínu fyrsta stórmóti átta ára
gamall. Þar kom norski stórmeistarinn Simen
Agdestein auga á hæfileika Magnusar og tók
hann að sér sem nemanda. Í framhaldinu
fékk Carlsen ársfrí frá skóla og við tóku
skákæfingar hjá Agdestein sem síðar áttu
eftir að skila Magnusi stórmeistaratitli á
methraða.
Á Corus 2004 skákmótinu í Wijk aan
Zee, birtist Magnus Carlsen eins og þruma
úr heiðskíru lofti og lagði hvern stórmeistann
af öðrum. Skákheimurinn fylgdist undrandi
með þessum ljóshærða þrettán ára pilti
brillera á mótinu og tryggja sér smám saman
fyrsta áfanga að stórmeistaratitli. Í lok móts
stóðu skákskýrendur á öndinni og voru
farnir að tala um Magnus Carlsen sem
“Mozart skáklistarinnar” og hefur sú lýsing
loðað við hann síðan.
Aðeins nokkrum vikum seinna
tryggði Magnus sér svo annan áfanga að
stórmeistaratitli á skákmóti í Moskvu.
Mánuði síðar kom hann hingað heim til
að tefla á Reykjavik Rapid skákmótinu þar
sem fyrrverandi heimsmeistarinn, Anatoly
Karpov, laut í lægra haldi fyrir honum. Á sama
móti var Carlsen á góðri leið með að leggja
sjálfan Kasparov þegar heimsmeistarinn sá
leið til að bjarga naumlega í jafntefli og
endaði reyndar á að vinna mótið. Þrátt
fyrir frábæra frammistöðu var hinn 13 ára
Carlsen ekki sáttur við taflmennsku sína
gegn Kasparov og sagði í viðtali skömmu
síðar: “Ég hefði átt að gera betur. Ég tefldi
eins og barn.”
En tæpum mánuði eftir heimsóknina
till Íslands náði Magnus Carlsen þriðja og
síðasta áfangannum að stórmeistaratitli í
Dubai. Hann var aðeins 13 ára og 4 mánaða
og yngsti stórmeistari heims á þeim tíma.
(Til samanburðar má benda á að Bobby
Fischer var 15 ára og 6 mánaða þegar hann
varð stórmeistari og Kasparov var orðinn 17
ára.) Aldursmet Magnusar var svo reyndar
slegið skömmu síðar af Armeníumanninum
Sergey Karjakin sem var 12 ára og 7 mánaða
þegar hann tryggði sér stórmeistaratitil.
Vandaður drengur
Magnus Carlsen þykir mjög skapandi
skákmaður og getur teflt djarft. Hann nýtur
sín vel í opnum stöðum, er óvenju fljótur
að reikna sig í gegnum fléttur og þykir hafa
einstakt minni. Það gerir svo að verkum að
hann ræður yfir óvenju mörgum byrjunum
og afbrigðum. Magnus hefur fyrir þónokkru
síðan tekið fram úr lærimeistaranum Simen
Agdestein en hann þótti einnig óvenju
bráðþroska skákmaður á sínum tíma og var
spáð miklum frama þrátt fyrir að það hafi
ekki alveg gengið eftir. Sjálfur hefur Agdestein
sagt að Magnus sé mikið mun sterkari en
hann var sjálfur á sama aldri. Hinsvegar eru
menn ekki á einu máli um framtíð Carlsen.
Til að mynda hefur Kasparov sagt að Carlsen
tefli á of mörgum skákmótum en stúderi
ekki nóg. Því eigi hann á hættu að helstu
keppinautar hans um heimsmeistaratitilinn,
Úkraínumaðurinn Sergey Karjakin (f. 1990)
og Azerbaijanmaðurinn Teimour Radjabov
(f. 1987), sigli fram úr honum eftir fáein
ár. En þeir Karjakin og Radjabov munu
fylgja mun strangara æfingaplani en Magnus
Carlsen. Sagan segir að Kasparov hafi reyndar
búið til sérstakt æfingaplan fyrir Carlsen en
hann hafi hafnað því og kosið að halda sig
áfram við sitt plan. Fyrir utan að tefla spilar
Magnus Carlsen fótbolta og rennir sér á
skíðum eins og margir góðir Norðmenn.
Helgi Ólafsson, stórmeistari hefur fylgst
með Magnusi Carlsen í gegnum tíðina og
skrifað um skákir hans í Morgunblaðið.
Hvaða líkur telur Helgi á því að Carlsen
hampi heimsmeistaratitli í framtíðinni?
“Hann er mikill talent og mér virðist hann
frekar að treysta stöðu sína sem skákmaður.
Hann getur sýnt geysilega hörku gegn
stigahæstu mönnum og einn hans helsti
kostur er hvað hann hefur góða einbeitni.
Auk þess er hann vandaður drengur og
nýtur mikils stuðnings frá sínu fólki en
þetta tvennt skiptir miklu máli. Tíminn
vinnur líka með Carlsen. Skákmenn eins og
Kramnik, Anand og Topalov eru farnir að
halla í fertugt. Ég gef Magnusi Carlsen því
alla möguleika á því að ná alla leið. Engu að
síður getur þetta verið fljótt að breytast. Í
kringum 1953 vissi enginn hver Tal var en
Spassky var óskabarnið. Stuttu síðar var Tal
á allra vörum. En svo breyttist það enn aftur
og Spassky varð heimsmeistari,” segir Helgi
Ólafsson.
Á þeim þremur árum sem liðin eru frá
því að Carlsen tryggði sér stórmeistaratitil
hefur gustað af honum á skákmótum
víðsvegar um heiminn. Árið 2004 varð hann
yngsti skákmaður sögunnar til að tefla um
rétt til að skora FIDE heimsmeistarann á
hólm. En laut á endanum í lægra haldi fyrir
Armenanum Levon Aronian sem er átta
árum eldri og í fimmta sæti á styrkleikalista
FIDE. Árið 2006 varð Magnus Carlsen
Noregsmeistari í skák eftir að hafa sigrað
lærimeistarann Agdestein í úrslitaeiginvígi.
Magnus heimsótti Ísland öðru sinni á síðasta
ári og tefldi þá á Glitnismótinu sem haldið
var til minningar um Harald Blöndal,
hæstaréttarlögmann. Þar sló hann sjálfan
heimsmeistarann í hraðskák, Vishy Anand,
úr keppni og sigraði svo Hannes Hlífar
Stefánsson í úrslitaaeinvígi mótsins. Í síðasta
mánuði telfdi hann svo aftur við Levon
Aronian um rétt til að skora heimsmeistarann
á hólm. Aftur hafði Aronian sigur en ekki
fyrr en í bráðabana og eftir mun harðari
baráttu en í einvígi þeirra árið 2004.
Ný kynslóð
Hinn sextán ára gamli Magnus Carlsen
tilheyrir nýrri kynslóð geysisterkra
skákmanna sem berst mjög hart á leið sinni
að heimsmeistaratitlinum. Áður hafa verið
nefndir þeir Radjabov og Sergey Karjakin
sem Magnus hefur sagt vera sinn helsta
keppinaut. Eins mætti nefna skákmenn
eins og Peter Leko, Etienne Bacrot og Bu
Xiangzhi en allir urðu þeir stórmeistarar
í kringum 13-14 ára aldurinn. En af
hverju er stórmeistaraaldurinn að lækka?
Helgi Ólafsson: “Það er einfaldlega komin
fram ný kynslóð sem hefur alist upp við
tölvutæknina og á auðvelt með að taka inn
nýjar upplýsingar. Hinsvegar veit ég ekki
hvort það er rétt að kalla þessa ungu stráka
undrabörn. Þeir eru ekki að brjóta neinar
hefðir eins og til dæmis Fischer gerði á
sínum tíma og þá nánast upp á eigin spýtur.
Hann kom eins og bomba inn í skákheiminn
en ungu strákarnir í dag eru fyrst og fremst
þrautþjálfaðir og njóta góðs af tölvutækninni.
En af þessum ungu skákmönnum er Carlsen
enn fremstur.” Það verður því áhugavert að
sjá hvernig Magnus Carlsen notar árin sem
hann hefur á andstæðinga sína þangað til
aftur verður teflt um rétt til að skora sitjandi
FIDE heimsmeistara á hólm. sky
,