Ský - 01.06.2007, Page 34
3 sk‡
Magnús Þorlákur stundar nám við
Eðlisfræðideild II í MR en í sumar starfar
hann hjá Jafningjafræðslu Hins hússins.
Hann er fæddur og uppalinn í Vesturbænum
og rekur ættir sínar á suðvesturhorn
landsins. Huldar Breiðfjörð hringdi í
Magnús Þorlák og fékk að leggja fyrir hann
fáeinar spurningar til viðbótar.
- Hvaðan kemur öll þessi vitneskja?
Ég er fréttafíkill og skoða alla fjölmiðla
oft á dag. En ég les líka töluvert og það að
hafa verið í Gettu betur liði MR var auðvitað
góð þjálfun. Mest af þessu kemur þó bara
einhvers staðar frá og án þess að ég geti
sérstaklega hent reiður á því.
- Um hvaða svið ertu fróðastur?
Ég er sterkur í íþróttum, dægurmenningu,
stjórnmálum og málefnum líðandi stundar.
Mannkynssaga tuttugustu aldar er líka svið
sem ég stúderaði svolítið fyrir MR-liðið
og þykist nokkuð fróður um. En ég er
veikari þegar kemur að gamalli Íslandssögu
og klassískri tónlist og þeim sviðum sem 18
ára unglingar eru yfirleitt ekki mikið að láta
sig varða.
- Hvað heitir asninn í Shrek og hver
talar fyrir hann?
Ég man ekki hvað asninn heitir en Eddie
Murphy talar fyrir hann í ensku útgáfunni.
(Rétt svar er Donkey og Eddie Murphy
talar fyrir hann)
- Eru vinirnir ekki alveg hættir að
þora að efast um það sem þú segir?
Jú, ætli það ekki. Að vísu ákvað einn
vinur minn að veðja við mig 5000 krónum
um hvenær Lenín dó en ég reyndist hafa
rétt fyrir mér. Daginn eftir sendi hann mér
SMS skilaboð og sagði að ártalið hefði verið
vitlaust í bókinni sem hann hafði verið
að stúdera. Ég lét hann ekki borga mér
peninginn, bara gefa mér einn bjór.
- Hver er barnsfaðir Kryddpíunnar
Mel B?
Eddie Murphy.
(Rétt svar er Eddie Murphy)
-Var munur á því hvernig þú
undirbjóst þig fyrir Gettu betur og
Meistarann?
Í Gettu betur keppninni er maður hluti
af ákveðinni liðsheild og á keppnisdag
fengum við frí í skólanum. Þá einbeittum
við okkur að því að ná upp góðri stemningu
í hópnum, fórum í sund og tókum
því rólega. En ég undirbjó mig ekkert
sérstaklega fyrir Meistarann. Enda var ég
ekki með neinar væntingar um að fara
langt í þeirri keppni þótt það yrði frábært
að græða kannski 100-200 þúsund kall. Ég
bara mætti í einhverjum fínum fötum og
svaraði þeim spurningum sem fyrir mig voru
lagðar. Eitt sinn fór upptakan á þættinum
fram á sama tíma og leikur Manchester
United og AC Milan og þá stóð ég sjálfan
mig að því að vera með áhyggjur af leiknum
í miðjum þætti. Reyndar held ég að það sé
minni styrkur í svona keppnum að verða
ekki stressaður.
- Hver lék aðalhlutverkið í
kvikmyndinni Norbit?
Það var líka Eddie Murphy.
(Rétt svar er Eddie Murphy.)
- Hvað ætlarðu að gera eftir MR?
Ætli það sé ekki þetta týpíska, að ferðast
og fara í háskóla. En hvert ég fer og hvað
ég læri á algerlega eftir að koma í ljós.
Mitt vandamál þegar kemur að því að velja
háskólanám er að ég hef áhuga á svo mörgu.
Ég er svolítið heitur fyrir að fara í hagfræði
eða eitthvað sem sameinar raungreinar og
félagsvísindi en er samt mjög óákveðinn
ennþá.
- Hver eru helstu áhugamálin?
Ég æfði fótbolta upp yngri flokka KR
og mæti á flesta leiki liðsins. Jafnframt
hef ég gaman af tónlist og málefnum
líðandi stundar. Ég hef líka mikinn áhuga
á stjórnmálum og félagsmálum. Til dæmis
Það er líklega óhætt að fullyrða að hinn 18 ára magnús Þorlákur lúðvíksson sé manna
fróðastur á Íslandi um þessar mundir. allavega virtist hann fara frekar létt með það síðastliðið
vor að sigra í tveimur erfiðustu spurningakeppnunum sem haldnar eru hér á landi. á milli þess
sem hann tók þátt í sigurgöngu liðs mr í Gettu betur keppninni lagði hann hvern andstæðinginn
af öðrum í meistaranum á stöð 2. Og stóð uppi sem sigurvegari í báðum keppnum.
Meistarinn
getur betur
texti: Huldar Breiðfjörð • mynd: Páll Kjartansson