Ský - 01.06.2007, Blaðsíða 38

Ský - 01.06.2007, Blaðsíða 38
 38 sk‡ skjólið „Hvers vegna vildu blöðin ekki skrifa um þetta? Það verður einhver að svara til ábyrgðar. Menn verða að bera ábyrgð á sínum málum.“ „Þau skrifa um það núna,“ sagði ég. „Þau skrifa um það núna, þau skrifa um það núna já.“ Hann kinkaði ótt og títt kolli. Smám saman lognuðust samræðurnar út af. Júlli hélt áfram að beita rakvélinni á hnakkann á mér. Bara rakvélin í hnakkanum, annars ekkert og brátt var ég búinn að sitja meira en korter í stólnum. Sagnfræðingurinn las áfram í bókinni sinni en gaut af og til augunum til okkar. Loks herti ég upp hugann. „Heyrðu, Júlli. Ég held að þetta gangi bara ekki lengur svona. Þú ert ekki í standi til að vinna núna. Ég held ég verði bara að koma seinna.“ Sagnfræðingurinn rauk á fætur. „Já, heyrðu, ég er að hugsa um að koma mér bara núna - og kíkja aftur seinna.“ „Ég var með 39 stiga hita í morgun,“ sagði Júlli. „Maður á ekki að vinna þegar maður er svona veikur,“ sagði ég. Sagnfræðingurinn flýtti sér út. „Veistu. Ég er sammála þér.“ Loks slökkti hann á rakvélinni. „Ég ætlaði að keyra þetta niður á lyfjum. Ég held að það hafi ekki tekist.“ „Þú þarft að loka stofunni núna og hvíla þig í dag. Farðu heim og leggðu þig.“ „Mér þykir þetta ægilega leiðinlegt, Kristján minn.“ Júlli hafði aldrei áður ávarpað mig með nafni. Hann hlammaði sér niður á ljósgráan sófa úti í horni. Hann horfði ráðleysislega út í loftið. Mig grunaði að hann hefði ekki rænu á að loka heldur myndi bara sitja þarna þar til næsti viðskiptavinur birtist. IV. Ég vissi af fjölmannaðri hárgreiðslustofu ekki langt frá, þar sem ekki þurfti að panta tíma fyrirfram. Ég arkaði þangað. Það var sólbjart en ísköld norðangola beit í kinnarnar. Ég hljóp síðasta spölinn og svitnaði undir þykkum ullarfrakkanum þrátt fyrir kuldann. Það var óþægilegt og ég hugsaði með mér að þetta mætti ekki verða einn af þeim dögum þegar allt fer úrskeiðis, ekki daginn sem maður ákveður að bjóða fallegri stúlku á stefnumót. Ljóshærð feitlagin kona um fimmtugt tók á móti mér. Flestir stólar voru auðir og hún vísaði mér til sætis út við glugga. Ég skýrði henni frá hremmingum mínum án þess að nafngreina Júlla. „Það væri betra að vita hver þetta er, svona orðrómur er mjög vondur fyrir stéttina.“ Ég svaraði þessu engu og hún gekk ekki frekar á eftir nafninu. „Sko, ég er ekki að segja að ég geti ekki lagað þetta, en ég vil samt að þú sjáir ósköpin áður en ég byrja, svo þú sért með á hreinu hvað við erum að eiga við.“ Hún bar handspegil að hnakkanum sem speglaði hann í rakaraspeglinum. Þetta minnti mig á gamla mynd með Martin Sheen sem ég hafði séð á Stöð 2 fyrir langalöngu, líklega fyrir 1990. Þar lék hann drykkfelldan heimilisföður sem sló garðinn sinn dauðadrukkinn um miðja nótt. Ummerkin blöstu við áhorfendum í morgunbirtunni og þeim líktist hnakkinn á mér helst núna. Ég saup hveljur. „Ég yrði ofboðslega þakklátur ef þú gætir bjargað þessu. Er það einhver möguleiki?“ Konan brosti, dálítið yfirlætislega, en samt hughreystandi. „Við skulum nú sjá hvað við getum gert. Það má nú ýmislegt reyna en ég verð að raka þig ansi snöggt í hnakkann, það er ljóst.“ Það var róandi að finna fyrir fingrum hennar í hárinu. Allar hreyfingar hennar voru markvissar og ég fann enn betur en áður hvað Júlli hafði verið fálmkenndur. Rafmagnsrakvélin fór í löngum og jöfnum strokum um hnakkann og ég sá fyrir mér fyrrverandi nágranna minn slá blettinn sinn bláedrú um hábjartan dag. Það var þungur ilmvatnsfnykur af henni, ekki góður en samt var eitthvað viðkunnanlegt við hann. Ljósgult hárið var greinilega litað og konan var alls ekki fríð og líklega eldri en mér hafði virst í fyrstu. En mér leið vel nálægt henni og hún vakti mér öryggiskennd. „Mikið verður nú gaman þegar fer að vora,“ sagði hún. „Já, þú verður að láta þér nægja gluggaveðrið eitthvað áfram,“ sagði ég. „Já, það er dásamlegt þegar sólin skín.“ Hún hljómaði eins og kona full af þrá eftir fegurð. Hún færði sig þétt upp að mér og byrjaði að klippa á mér kollinn með skærum. Ég fann skaut hennar nuddast við olnbogann. Fiðringur fór um mig og ég fann fyrir holdrisi. „Og við hvað starfar herrann?“ Ég sagði henni frá því, reyndi að gera starfið áhugaverðara en mér fannst það vera í rauninni. „Mjög intressant. Ég sé oft skemmtilegar auglýsingar í sjónvarpinu en svo eru aðrar óttaleg della.“ „Þú hlýtur að hitta alls konar fólk hérna?“ „Já, biddu fyrir þér, alls konar týpur koma hingað, fólk úr öllum þjóðfélagsstigum.“ Hún spurði út í fjölskylduhagi og ég sagðist vera fráskilinn, búa einn í miðbænum. Hún var líka fráskilin og bjó ein í gamla Vesturbænum. Hann fannst gaman að labba eftir Eiðsfjörunni en verst hvað sjávarrokið gat verið kalt. Hún bar handspegilinn aftur að hnakkanum. „Sjáðu, hér er dálítill blettur en það vex yfir þetta á einni til tveimur vikum.“ Mér virtist klippingin vera fín. Henni hafði alveg tekist að bjarga hnakkanum, fyrir utan þennan blett sem ég sá varla sjálfur. Hún lét mig fá nafnspjaldið sitt áður en við kvöddumst. „Það er ekki verra að hringja á undan sér, jafnvel daginn áður svo ég sé örugglega laus.“ Ég leit á spjaldið. Hún kallaði sig einfaldlega Jonnu. Gefinn var upp síminn á stofunni og gsm-númer. „Ég kem örugglega eftir sirka tvo mánuði.“ „Já, þá kemurðu með vorið með þér,“ sagði Jonna og brosti. V. Klukkan var að nálgast tvö þegar ég kom aftur í vinnuna. Ég var allt of seinn. Tölvupósthólfið mitt var troðfullt af áríðandi skilaboðum og það voru 7 missed calls á gemsanum. Ég átti að mæta á fund um kex og morgunkorn eftir klukkutíma. Ég sökkti mér niður í vinnuna. Upp úr fjögur fór að róast. Ég skoðaði klippinguna í speglinum. Hún var fín. Ég leit bara vel út, miklu betur en í morgun. Ég hafði enga afsökun fyrir að láta ekki til skarar skríða núna. Ég gerði mér ferð inn til Aðalheiðar. Brúna hárið hennar var óþægilega fallegt, brúnu augun hennar voru hættuleg, ilmvatnslyktin var mannskæð. Ég þornaði upp í munninum. Aðalheiður horfði stíft á skjáinn sinn og veitti mér enga athygli. „Varstu búin að finna lesara fyrir Bílaland - útvarpið?“ spurði ég. Mér kom það ekkert við. Ég var bara að reyna að brydda upp á samræðum. Hún horfði tómlega á mig. „Þeir vilja hugsa málið fram yfir helgi.“ Hún kommentaði ekki á klippinguna, virtist ekki taka eftir henni. „Voru komnar einhverjar verðhugmyndir?“ Síminn hringdi hjá Aðalheiði og hún bandaði ergilega frá sér með hendinni um leið og hún svaraði. Ég hafði greinilega ekki hitt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.