Ský - 01.06.2007, Síða 43

Ský - 01.06.2007, Síða 43
stutt og laggott sk‡ 3 Nafn: Páll Berg­þórsson. Fæðingardagur: 13. ág­úst 1923. Stjörnumerki: Ég­ er ljón og­ játa þann barnaskap að­ lesa stundum bull um það­ í blöð­um. Gæludýr: Eng­in, nema ef vera skyldi músarrindillinn milli trjánna og­ máríátlan trítlandi með­ hausinn tifandi fram og­ aftur fyrir utan húsið­, eð­a svang­ir eftirleg­uþrestir á vetrardeg­i. Uppáhaldsmatur: Allt sem að­ kjafti kemur. Uppáhaldsdrykkur: Silfurtært og­ svalandi lindarvatn. Mottó: Hvers veg­na ekki? Les í kort í stað nótna Páll Bergþórsson segist vera glaður og undrandi í hvert sinn sem hann vaknar og fær að sjá morgunsólina einu sinni enn. Gamla viðfangsefnið hans, veðurfræðin, lætur hann ekki alveg í friði og stundum á andvökunóttum reikar hugur hans langt norður á hafísslóðir þar sem hann þykist finna lykil að ýmsum leyndardómum loftslagsins um gervalla jörðina. Páll segist eiga erfitt með að lýsa sér sem barni en vitnar í atvik frá því hann var níu ára gamall drengur; „Það vill svo til að ég á bréf sem ég skrifaði Helga Hjörvar útvarpsmanni og vonandi segir bréfið ekki ósatt um piltinn. Pabbi, sem áður hafði fengist við kennslu, lét okkur systkinin endursegja og skrifa sögurnar sem sagðar voru í barnatímunum. Helgi var gamall skólabróðir hans, svo að ég sendi honum eina endursögnina, söguna um Rósina frá Ríó en Helgi sendi mér um hæl bréf og myndir úr útvarpssal. Síðar varð hann mér hollur ráðgjafi þegar ég fór að flytja útvarpserindi um veður mánaðarins. Helgi geymdi bréfið frá mér en þegar hann fann feigðina nálgast rúmum 30 árum síðar kom hann því til mín ásamt gamalli dagbók hans norðan úr Víðidal þar sem hann kenndi frænku minni ungur maður,“ útskýrir Páll. Kröfuharður á sjálfan sig Bergþór er þriðja og jafnframt yngsta barn Páls og Huldu Baldursdóttur. Páll segist hafa fyllst hrifningu og undrun þegar Bergþór kom í heiminn líkt og með hin börnin. „Barnið var vel lukkað, með tíu fingur og tíu tær. Hann var afar elskulegt barn en um leið var dálítið erfitt hvað hann vildi hafa góðan frágang á öllu sem hann gerði, teikningum, skrift eða öðru handverki. Nærmynd af feðgum Bergþór, Páll og Bragi texti: Erla Gunnarsdóttir • mynd: Fjölskyldualbú­m

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.