Ský - 01.06.2007, Síða 59

Ský - 01.06.2007, Síða 59
 sk‡ 5 var Bobby gallharður, það ætti bara að ráðast með hörku á Kúbu en skipti um skoðun. Forsetinn fór samningaleiðina og á þrettán dögum náðist að vinda ofan af ástandi sem sagnfræðingurinn Arthur Schlesinger kallaði „hættulegasta andartak sögunnar“. Þessi misseri einkenndust af hörðum og mannskæðum kynþáttaátökum í Bandaríkjunum. Bræðurnir unnu vel saman og þegar leið á árið 1963 voru þeir ákaft að undirbúa endurframboð Johns. Bobby átti afmæli 20. nóvember og á afmælinu hans kom forsetinn aðeins við til að óska bróður sínum til hamingju, var á leiðinni til Dallas. Þeir bræður hittust ekki aftur - John var skotinn þegar hann ók um götur Dallas tveimur dögum síðar með Jackie sér við hlið. Í sætinu fyrir framan þau sátu John Connolly ríkisstjóri Texas sem særðist líka og Nellie kona hans. Einn banamaður, ein kú­la - eða flókin flétta? Bobby var í losti næstu mánuðina og þeir sem þekktu hann segja að hann hafi aldrei náð sér eftir bróðurmissinn. Hann gekk iðulega í jakka af bróður sínum - og eins og einn vina hans lýsti því var hann alltaf að týna jakkanum rétt eins og hann bæði vildi halda í arf bróður síns en þætti líka erfitt að axla hann. Það gerði honum enn erfiðar fyrir að á milli hans og Lyndon Johnsons varaforseta sem tók við af John ríkti gagnkvæm fyrirlitning. Hann féllst á að gegna embætti áfram en hætti níu mánuðum síðar til að bjóða sig fram til öldungadeildarinnar. Viku eftir morðið skipaði Johnson rannsóknarnefnd sem kennd var við Earl Warren hæstaréttardómara formann hennar. Niðurstaða nefndarinnar tæpu ári síðar var að Oswald hefði verið einn að verki. Þeir sem trúa á samsæri hallast yfirleitt að því að öfl innan CIA hafi aldrei getað fyrirgefið forsetanum linkuna við stjórn Castros sem á þessum tíma hafði í hugum margra Bandaríkjamanna, ekki síst í CIA, svipað yfirbragð og Osama bin Laden nú á dögum. Aðrir benda á Mafíuna sem hafi ekki geðjast að hvað forsetinn og dómsmálaráðherrann voru áfram um að rannsaka anga hennar í bandarísku þjóðlífi. Hinn 24 ára Oswald var handtekinn sama dag. Þegar leiða átti hann í réttarsal tveimur dögum síðar birtist Jack Ruby og Bobby hafði ekki sömu náttúrulegu hæfileikana til að koma fram. Honum tókst oft vel upp í ræðum sínum en samstarfsmenn hans sáu hann skjálfa af taugaóstyrk. Þegar hann kom á einn kosningafundinn sagði blaðamaður honum að Martin Luther King hefði verið skotinn. Ó­undirbúinn hélt Bobby þá eina af eftirminnilegri ræðum sínum og honum óx ásmegin með hverjum deginum. Hann hafði á orði að núna loksins þætti sér hann vera að komast út úr skugga bróður síns. Kosningafundi á Ambassador-hótelinu í Los Angeles lauk hann með því að segja að aðstoðarmenn sínir hefðu sagt sér að hann væri orðinn of seinn. Hann vatt sér úr salnum í gegnum eldhúsið þar sem 24 ára gamall Palestínumaður, Sirhan Sirhan, skaut hann í höfuðið. Bobby lést daginn eftir. Sirhan sagðist vera að hefna þjóðar sinnar en Bobby hafði aldrei sýnt andúð í garð Palestínumanna. Sirhan hefur síðan haldið fram að hann hafi verið dáleiddur. Þegar Bobby tilkynnti Jackie að hann sæktist eftir að verða forseti svaraði hún að þá myndu „þeir“ gera það sama við hann og „þeir“ gerðu við mann hennar. Skoðanakannanir sýna að um 70 prósent Bandaríkjamanna telja að um samsæri hafi verið að ræða. skaut hann. Ruby var næturklúbbseigandi með undirheimatengsl sem sagðist hafa skotið Oswald af vorkunn við Kennedy- fjölskylduna. Ruby dó í fangelsi 1969. Það eru mörg atriði sem ýta undir samsæriskenningarnar en eitt það veigamesta er hversu mörgum skotum hafi verið skotið að forsetanum og hvort þau hafi öll komið úr sömu átt. Warren-nefndin áleit sama skotið hafa drepið forsetann og slasaði Connolly. Í skýrslu bandarískrar þingnefndar 1979 er niðurstaðan að líklega hefðu morðingjarnir verið tveir og líklega væri um samsæri að ræða en annars ekkert áþreifanlegt í þessa átt. Eldheitur hugsjónamaður Ýmsir höfðu álasað Bobby fyrir frama án þess að hafa verið kosinn. Sumarið eftir morðið tilkynnti hann, enn með svart hálsbindi sem hann hafði borið frá því John var skotinn, að hann hygðist bjóða sig fram til öldungadeildarinnar og náði kjöri. Þegar forsetakosningabaráttan fór á skrið veturinn 1967-68 hélt Bobby lengi fast við að bjóða sig ekki fram. Um miðjan mars hafði hann skipt um skoðun og var nú eins og stormsveipur. Fimmtán dögum síðar kom Johnson öllum á óvart, einkum Bobby, með að draga framboð sitt til baka og og lýsa yfir stuðningi við Bobby. kennedy sky , Robert og Jackie Kennedy við ú­tför Johns.

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.