Ský - 01.06.2007, Side 61
sk‡ 61
Michelle Pfeiffer, sem þó ótrúlegt sé,
verður fimmtug á næsta ári í hlutverki
sínu I Could Never Be Your Woman.
Gæti aldrei orðið konan þín
Miklar hasarmyndir eru oftar en ekki
eingöngu fyrir karlmenn enda karlleikarar
í öllum bitastæðustu hlutverkunum.
Á móti eru rómantískar kvikmyndir oft
sagðar konumyndir. I Could Never Be Your
Woman, sem frumsýnd verður í haust er ein
slík kvikmynd, rómantísk gamanmynd um
konur, gerð af konum. Í aðalhlutverkinu
er Michelle Pfeiffer, en fimm ár eru síðan
hún sást síðast í aðalhlutverki, í White
Oleander þar sem hún lék móður sem lendir
í fangelsi. Í I Could Never Be Your Woman
er hún enn í móðurhlutverkinu. Leikur hún
þekkta sjónvarpskonu sem fellur fyrir ungum
leikara. Á sama tíma kynnist ung dóttir
hennar ástinni í fyrsta sinn. Helsti mótleikari
Pfeiffer er Tracey Ullman sem leikur Móður
náttúru og er hún ekki sátt við hvernig málin
þróast hjá þeim mæðgum. Leikstjóri og
handritshöfundur er Amy Heckerling, sem
þekktust er fyrir Clueless.
Lindsay Lohan leikur unga stúlku sem
tapar minninu í I Know Who Killed Me.
Ég veit hver drap mig
Lindsay Lohan hefur verið í fréttum út af allt
öðru en leik í kvikmyndum. Stúlkugreyið
á víst erfitt með að stilla sína strengi í
einkalífinu og ræður þar mestu djamm
og dópneysla. Nýjustu fréttir af henni
eru að hún sé í „alvöru“ meðferð og ætli
að sjá að sér. Hvað varðar leikferilinn þá
er aldrei að vita nema sakamálamyndin
I Know Who Killed Me, sem frumsýnd
verður síðar í sumar bjargi henni. Leikur
hún Audrey Fleming, unga stúlku sem kvöld
eitt hverfur. Tveimur vikum síðar finnst
hún meðvitundarlaus úti í skógi. Kemur í
ljós að henni hefur verið misþyrmt og nú
telur hún sig vera allt aðra persónu, persónu
sem Audrey skapaði í smásögu sem hún
hafði samið. Mótleikarar Lohan eru Julia
Ormond og Neal McDonough.
Nicole Kidman og Daniel Craig hafa
þurft að vinna fyrir launum sínum í
vandræðamyndinni The Invasion.
Innrásin
The Invasion er enn ein endurgerðin af
Invasion of The Body Snatchers, eða kannski
er best að segja að hún hafi átt að vera
það. Mikill vandræðagangur hefur verið við
gerð myndarinnar og er víst lítið orðið eftir
af upprunalegu sögunni. Þýski leikstjórinn
Oliver Hirschbiegel (Downfall) var fenginn
til að leikstýra myndinni og lauk sinni útgáfu.
Í höfuðstöðvum Warners í Hollywood, sem
kostar myndina, voru menn mjög óánægðir
og fengu Wachowski-bræður (Matrix) til að
gera nýjan endi á myndina. Þessi ákvörðun
varð til þess að handritið var endurskrifað að
mestu. Þeir bræður voru í leiðinni að gera
sína eigin mynd, Speed Racer, og máttu ekki
vera að því að klára verkið og var því fenginn
til þess James McTeigue (V for Vendetta).
Óvíst er hverjir verða titlaðir leikstjórar í
lokin en myndin verður frumsýnd vestan hafs
í ágúst. Ekki fylgir sögunni hvernig stjörnur
myndarinnar Nicole Kidman og Daniel Craig
tóku öllum þessum endurtökum en sjálfsagt
hafa þau fengið vel borgað.
Transformers, sem frumsýnd var á
þjóðhátíðardaginn . júlí í Bandaríkjunum,
virðist ætla að verða ein af allra vinsælustu
kvikmyndum ársins, ef ekki sú vinsælasta.
Transformers, sem er ævintýramynd og
gerist í framtíðinni, er byggð á þekktri
teiknimyndaseríu sem notið hefur vinsælda
auk þess sem leikföng eftir persónum
hafa verið mjög vinsæl. Transformers er
framleidd meðal annarra af Steven Spiel-
berg og leikstýrt af Michael Bay, sem á
nokkrar vinsælar stórmyndir að baki. Má
þar nefna
Armageddon, Bad Boys 1 og 2 og Pearl
Harbour. Engar stórstjörnur leika í
Transformers, en aðalhlutverk er í höndum
Josh Duhamels, sem er á myndinni og
margir þekkja úr sjónvarpsseríunni Las
Vegas. Transformers verður frumsýnd hér
á landi 10. Ágúst.
Bíófréttir