Ský - 01.06.2007, Page 71
sk‡ 71
vel um hvað hún lætur ofan í sig ætli hún að halda kjörþyngd.
Winslet þótti því ekki beint efniviður í kvikmyndastjörnu á unga
aldri. Ekki hafði það áhrif á hana og 15 ára gömul er hún farin
að leika í hinum ýmsu sjónvarpsseríum fyrir BBC og þótti standa
sig vel. Peter Jackson, sem þá var óþekktur leikstjóri, sá hana
einmitt í einni slíkri seríu og valdi hana í aðalhlutverkið í Heavenly
Creatures þegar hún var nítján ára. Lék hún hugmyndaríka stúlku
sem hjálpar vinkonu sinni að myrða móður sína sem hafði neitað
vinkonunum um að vera saman. Myndin sló í gegn og Jackson
hóf sinn frægðarferil sem ekki sér fyrir endann á. Leikur Winslet
hafði það mikil áhrif á Emmu Thompson að hún heimtaði að
hún léki systur sína í Sense and Sensibility, en Thompson skrifaði
handritið að þeirri mynd. Síðan komu gæðamyndirnar Jude, sem
Michael Winterbottom leikstýrði og Hamlet í leikstjórn Kenneth
Brannaghs þar sem hún lék Ófelíu. Þessar fjórar myndir hefðu
sjálfsagt dugað til að koma henni í úrvalsflokk leikkvenna, en
Titanic breytti öllu og Winslet skaust á einni nóttu í efstu hæðir á
stjörnuhimninum.
Þegar litið er á feril Kate Winslet í framhaldi af Titanic er óhætt
að segja að hún hafi engin mistök gert þó stundum hafi litið út
fyrir annað, sérstaklega þar sem næstu þrjár kvikmyndir hennar,
Hideous Kinky, Holy Smoke og Quills, fengu litla aðsókn þrátt
fyrir góða gagnrýni. Ferill hennar tók aftur kipp þegar hún lék Iris
Það er ekki ofsögum sagt að Kate Winslet sé í uppáhaldi hjá
gagnrýnendum sem og allri alþýðu. Látlaust líferni hennar sem
heimspressan hefur aðeins einu sinni séð ástæðu til að fjalla um
í slúðurdálkum, þegar hún skildi við fyrri eiginmann sinn, Jim
Threapleton, hefur aflað henni vinsælda hjá öllum aldurshópum
og gagnrýnendur hafa nánast hælt henni fyrir hvert einasta
kvikmyndahlutverk sem hún hefur leikið. Sjálf hefur hún verið óspör
á að gagnrýna slúðurblöð og glanstímarit fyrir yfirborðskenndar
greinar og falsanir og þegar tímaritið GO birti forsíðumynd af henni,
sem hafði verið löguð til í Photoshop húðskammaði hún ritstjórann
og sagðist vera mjög ánægð með útlit sitt og engu þyrfti að breyta í
myndum af henni. Varð úr þessu heilmikið fjölmiðlafár og varð GO
að biðjast afsökunar í næsta blaði.
Leikarafjölskylda
Kate Winslet fæddist 5. október 1975 í Reading á Englandi og
eru foreldrar hennar Roger Winslet og Sally Bridges, bæði leikarar.
Móðurafi hennar, Oliver Bridges og amma hennar Linda Bridges
eru einnig leikarar sem og frændi hennar, Robert Bridges, og
systur hennar tvær, Beth og Anna Winslet. Fleiri leikarar eru í
stórfjölskyldunni en Kate er sú eina sem hefur náð heimsfrægð.
Í æsku átti Kate Winslet við offituvandamál að stríða sem margir
vilja meina að hrjái hana enn í dag og sagt er að hún þurfi að hugsa
Kate Winslet
Yngsta leikkonan sem fengið hefur fimm Óskarstilnefningar
kate Winslet
Leonardo DiCaprio og Kate Winslet í hlutverkum Jack Dawsons og Rose DeWitt Bukater í Titanic.