Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.07.2015, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 23.07.2015, Qupperneq 36
23. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 28 „Þetta er lúmsk líkamsrækt. Ég er komin með rosalegar harðsperr- ur enda búin að taka einhverjar þúsund hnébeygjur,“ segir Þór- dís Erla Zoëga myndlistarmaður glaðlega þar sem hún er að ljúka við að mála listaverk á stétt milli menningarhúsanna á Kópavogs- hæð. „Hún Kristín Dagmar, við- burðastjóri í Gerðarsafni, bað mig að fegra útisvæðið,“ útskýrir listakonan en kveðst ekki vita til hversu mikillar frambúðar verk- ið verði. „Ég ætla að bara að sjá hvernig það veðrast. Ég nota úti- málningu eins og er á sumargöt- unum og held að hún dugi alveg í nokkra mánuði.“ Þórdís kveðst aldrei hafa málað svona beint á jörðina. Athygli vekur að það gerir hún fríhendis. „Ég tel að flæðið sé betra í mynd- inni ef ég geri hana fríhendis en ef ég væri alltaf að kíkja á eitthvert blað og skoða næsta skref. Byrjaði bara á ferningi og svo leiddi eitt af öðru.“ Spurð hvort hún hafi lært þessa aðferð í akademíunni sem hún var í í Amsterdam svarar hún: „Nei, ég byrjaði að þróa aðferð- ina þegar ég bjó úti í Berlín eftir útskrift. Ég tengi svona teppi við heimilislíf og held að ég hafi bara verið með svona mikla heimþrá. Svo er vinnuferlið viss hugleiðsla, eins og mantra, endurtekning og jafnvægi.“ Undirlag listaverksins í Kópa- vogi var bílastæði en er nú orðið kósí plan. Þórdís segir marga staldra þar við og lýsa yfir ánægju með breytingarnar. En er hún búin með verkið? „Ég veit það eiginlega ekki,“ svarar hún hlæj- andi. „Ég gæti eiginlega endalaust haldið áfram, það er visst vanda- mál!“ Afhjúpun listaverksins fer fram klukkan 17 í dag. Boðið verður upp á sumardrykk og aðrar léttar veitingar og Sven Møller, plötu- snúður í Skapandi sumarstörfum í Kópavogi, mun spila. Sýningin Birting verður líka opin meðan á samkomunni stendur og aðgangur er ókeypis. gun@frettabladid.is Tengi við heimilislíf Útilistaverk eft ir Þórdísi Erlu Zoëga verður afh júpað milli Salarins og Gerðar- safns í Kópavogi í dag. Við trufl uðum listakonuna aðeins við gerð þess í gær. LISTAKONAN „Ég tel að flæðið sé betra í myndinni ef ég geri hana fríhendis en ef ég væri alltaf að kíkja á eitthvert blað og skoða næsta skref,“ segir Þórdís Erla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ TÓNLIST ★★★★ ★ Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju Hörður Áskelsson flutti verk eftir Guilain, Bach, Franck, Karlsen og Boëllmann. SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ Hörður Áskelsson organisti sýndi það á sunnudaginn að hann kann að steppa. Svona þannig séð. Hann kom fram á tónleikaröð sem nefnist Alþjóðlegt orgels- umar í Hallgrímskirkju og lék meðal annars verk eftir Kjell Mørk Karlsen. Það heitir Sin- foniae arctandriae, þ.e. Sinfónía norðurpólsins. Karlsen sendi fyrsta kafla sinfóníunnar í alþjóðlega orgel- tónsmíðakeppni sem var haldin þegar Klais-orgelið í Hallgríms- kirkju var vígt á sínum tíma. Hann sigraði í keppninni. Þetta er frábært verk, svipsterkt og hugvitsamlegt, dálítið hrjóstr- ugt, með kvikum tónahlaupum sem krefjast mikillar fingrafimi. Upphafið samanstendur þó fyrst og fremst af gríðarlega hröðu spili á fótstigið. Það var þar sem stepp-hæfileikar Harðar komu að góðum notum. Ekki var að heyra eina einustu feilnótu. Hörður lék tvo kafla úr sinfóní- unni og flutningurinn var frábær. Kröftug túlkunin einkenndist af hrynrænni skerpu og næmri til- finningu fyrir framvindu og upp- byggingu tónlistarinnar. Almennt talað voru þetta skemmtilegir tónleikar. Verkið eftir Karlsen var síðast, voldug- ur lokahnykkur. Fyrstu tónarnir á efnisskránni voru hins vegar eftir Jean-Adam Guilain, sem var þýskur organisti en starfaði lengst af í Frakklandi. Tónlistin hans var falleg en hefði e.t.v. mátt vera rytmískari og meira blátt áfram í meðförum Harðar. Pre- lúdía og fúga í h-moll BWV 544 eftir Bach var aftur á móti falleg, túlkunin var fremur lágstemmd og innhverf, en full af andakt. Næst á dagskrá var Kórall nr. 3 eftir Cesar Franck, ein magnað- asta tónsmíð meistarans. Tónlistin er gegnsýrð kaþólskri trúarvímu. Hún hefst líflega, eilítið í ætt við Tokkötu og fúgu í d-moll eftir Bach. Því næst tekur við sálmalag sem smám saman hnígur niður í einskonar hugleiðingu. Svo rís hún upp í ærandi hápunkt eftir mark- vissa stígandi. Hörður útfærði þetta allt af aðdáunarverðri fag- mennsku. Veikari hlutar tónlist- arinnar voru blæbrigðaríkir og fallega yfirvegaðir. Stigmögnun- in var sömuleiðis þétt og spennu- þrungin, og endirinn var sérlega áhrifamikill. Erbarm dich mein, o Herre Gott (hafðu miskunn með mér, Drottinn Guð) eftir Bach var líka hrífandi. Það var fallega raddsett af Herði, meginlaglínan var dásamlega lit- rík; þokukennt undirspilið mynd- aði um það fullkominn ramma. Sem aukalag lék Hörður Priere de Notre Dame eftir Leon Boëll- mann. Það á að vera mjög hægt, en gekk frekar greiðlega hér, sem var alls ekki miður. Þvert á móti var tónlistin glaðleg; bæn þarf ekki alltaf að vera eitthvert væl! Þetta voru skemmtilegir tón- leikar og enn ein skrautfjöðrin í hatt eins fremsta tónlistarmanns þjóðarinnar. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Flottir tónleikar með frábærum organista. Fótafimur organisti á harðaspretti ORGAN- ISTI Hörður Áskelsson fór á kostum á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Viltu vita hvað eignin þín hefur hækkað í verði ? 510 7900 Þórunn Gísladóttir Löggiltur fasteignasali. Kristján Þ. Hauksson Sölufulltrúi. 696 1122 kristjan@fastlind.is www.fastlind.is Hlíðasmára 6 201 Kópavogur www.FASTLIND.is/ / Frítt verðmat og framúrskarandi þjónusta í þína þágu. Reykholtshátíð er með eldri og virtari tónlistarhátíðum lands- ins þrátt fyrir að eiga sér nú ekki lengri sögu en frá 1997. Að vanda er hátíðin haldin síðustu helgina í júlí að Reykholti í Borgarfirði og er dagskráin fjölbreytt og spenn- andi fyrir alla unnendur klassískr- ar tónlistar. Sigurgeir Agnarsson er list- rænn stjórnandi Reykholtshátíð- ar og hefur sinnt því hlutverki frá 2013 og hann segir að það sé svo sannarlega boðið upp á breiða dag- skrá í ár. „Við byrjum á föstudagskvöld- inu með tónleikum Karlakórsins Heimis úr Skagafirði sem hefur lengi verið í fararbroddi íslenskra karlakóra og því tilhlökkunarefni að bjóða kórinn velkominn á Reyk- holtshátíð. Þóra Einarsdóttir sópran og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari halda síðdegistónleika á laugardeginum undir yfirskrift- inni Báran. Á laugardagskvöldið verður lágfiðlan í aðalhlutverki en sérstakur gestur hátíðarinnar í ár er finnski lágfiðluleikarinn Atte Kilpeläinen. Lokatónleikarnir á sunnudagskvöldið verða svo fjöl- breyttir að vanda og um að gera fyrir áhugasama að kynna sér dag- skrána nánar á heimasíðu hátíðar- innar, reykholtshatid.is. Málið er að það er alltaf dálítið sérstakt að upplifa alla þessa tón- list í þessu fallega umhverfi. Þessi upplifun er líka aðeins önnur fyrir okkur tónlistarfólkið, ólík svona þessum hefðbundnu tónleikum á sunnudagskvöldum í Reykjavík, enda tökum við svona vikuna í þetta og höfum gaman af. Að auki erum við að spila í einu af betur hljómandi húsum landsins þannig að öll þessi fjölbreytta tónlist ætti að njóta sín vel.“ Skálholtshátíð hefur alla tíð verið vel sótt og Sigurgeir segir að tónleikagestir komi víða að. „Það er alltaf talsvert um að heima- fólk í Borgarfirði komi og svo er líka heilmikil sumarhúsabyggð á svæðinu. Að auki þá er þetta nú ekki nema ríflega klukkustundar akstur þannig að það er mikið um að fólk taki bíltúr, kaffi og tónleika um þessa helgi.“ Sigurgeir bendir einnig á að á laugardaginn sé tilvalið að skella sér fyrst á fróðlegan og skemmti- legan fyrirlestur kl. 13 á vegum Snorrastofu hjá Páli Bergþórssyni. En þar mun Páll skoða betur bak- grunn Vínlandssagnanna. „Eftir fyrirlesturinn er gott að fara í smá kaffihlé og skella sér svo á tónleika klukkan fjögur og jafn- vel aftur um kvöldið.“ magnus@frettabladid.is Hér nýtur tónlistin sín afar vel Fjölbreytt og vönduð dagskrá um helgina á Reykholtshátíð í Borgarfi rði. LISTAMENN OG HUNDUR Ari Þór Vilhjálmsson og Dídí, Steinunn Birna Ragnars- dóttir, Þóra Einarsdóttir, Atte Kilpeläinen og Sigurgeir Agnarsson æfðu stíft í vikunni fyrir Reykholtshátíð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MENNING 2 2 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 8 A -0 4 0 C 1 5 8 A -0 2 D 0 1 5 8 A -0 1 9 4 1 5 8 A -0 0 5 8 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.