Fréttablaðið - 09.10.2015, Síða 31
Hver er upplifun þín af því að kynnast starfsemi borgarinnar og taka þátt í stjórnun
hennar?
Upplifunin er mjög góð, meiri
hlutasamstarfið gengur vel og fólk
er opið og hreinskilið þó það sé ekki
alltaf sammála. Fyrir utan póli
tíkina hef ég auðvitað mest verið
í samskiptum við velferðarsviðið
og sú reynsla hefur verið mjög já
kvæð. Ég vissi ekki við hverju ég
átti að búast því ég byrjaði sam
starfið á því að dæma sviðstjór
ann, Stefán Eiríksson, í annað sæti
í söngvakeppni Reykjavíkurborg
ar en það voru bara þrír keppend
ur. Það hefur ekki verið notað gegn
mér hingað til.
En að öllu gamni slepptu þá finn
ég fyrir miklum krafti hjá þeim
sem starfa í þessum málaflokki og
nánast undantekningalaust brenn
ur fólk af ástríðu fyrir vinnu sinni.
Þetta finn ég líka þegar ég heim
sæki starfsstöðvar velferðarsviðs.
Þó stundum gæti óánægju þá er
eldmóður í fólki. Þetta finnst mér
mikilvægt að komi fram í dagsljós
ið, umfjöllun um velferðarmál er
oft mjög neikvæð og það dregur úr
fólki.
Við verðum líka að benda á það
sem vel er gert, það eykur skilning
og umburðarlyndi sem mun koma
okkur upp á næsta stig í velferðar
þjónustu.
Hvaða snertingu hefur þú við
málefni fólks með geðraskanir/geð
fötlun persónulega?
Ég hef aldrei starfað beint við
þennan málaflokk en eins og kemur
fram í skáldsögu Einars Más, Engl
um alheimsins, þá er „Kleppur víða,
ekki aðeins spítali, ekki aðeins höll
heldur mynstur ofið úr þráðum svo
fínum að enginn greinir þá, hvorki
keisarinn né börnin, hvorki ég né
þú.“
Með hvaða hætti fylgir vel ferðar
ráð stefnumálum sínum eftir og
reynir að stuðla að því að starf á
vettvangi fylgi stefnu þess?
Velferðarráð fylgir stefnumálum
sínum eftir á ýmsan hátt. Stefnum
er fylgt eftir með aðgerðaráætlun
um og reglubundnu stöðumati. Deild
gæða og rannsókna á velferðarsviði
stendur fyrir rannsóknum og könn
unum á þjónustu og gæðum þjón
ustunnar t.d. í samráði við háskóla
samfélagið og hagsmunasamtök.
Einnig eru gerðar úttektir á starf
seminni, oft á grundvelli kröfu
lýsinga og niðurstöðum þeirra er
fylgt eftir með aðgerðaráætlunum.
Reglubundnar lykiltölur velferðar
sviðs skipta miklu máli en þar eru
einstakir þjónustuþættir greindir
niður. Enn fremur rýnir velferðar
ráð notendakannanir sem eru mik
ilvæg vísbending um gæði þjónust
unnar.
Hvernig gengur vinna við að losa
stíflur í búsetuúrræðum, t.a.m. að
útvega útskrifuðum sjúklingum af
Kleppi húsnæði?
Vinna við að útvega útskrifuðum
sjúklingum á Kleppi húsnæði hefur
gengið mjög vel og hefur nær alveg
náðst að koma til móts við búsetu
þarfir þeirra einstaklinga.
Hver eru framtíðaráform
Reykjavíkurborgar í búsetu og
þjónustumálum geðfatlaðra?
Framtíðarsýn Reykjavíkurborg
ar í þjónustu við geðfatlaða kemur
fram í stefnu Reykjavíkurborgar í
þjónustu við fatlað fólk á heimilum
sínum 2013–2023 en unnið er að að
gerðaráætlun við stefnuna. Í stefn
unni er áhersla á að þjónusta skuli
vera einstaklingsmiðuð, heildstæð
og sveigjanleg. Henni er ætlað að
styðja við sjálfstætt og innihalds
ríkt líf fatlaðs fólks, á heimili og í
tómstundum. Í Reykjavík eru í dag
17 sértæk húsnæðisúrræði (15 bú
setukjarnar og tvö endurhæfingar
heimili fyrir geðfatlaða). Í búsetu
kjörnum búa einstaklingar í sér
íbúðum og fá viðeigandi stuðning.
Í samræmi við stefnuna hefur vel
ferðarsvið boðið fötluðum einstak
lingum sem þurfa sértækan stuðn
ing við búsetu svokallaða utan
kjarnaþjónustu sem stendur til
boða óháð eignarhaldi á húsnæði. Í
utankjarnaþjónustu felst að einstak
lingar fá þjónustu frá íbúðakjarna í
hverfi sínu sem hefur sérþekkingu
á fötlun viðkomandi. Reykjavík
urborg telur auk þess mikilvægt
að framtíðaráform í þjónustumál
um borgarinnar taki mið af þeim
áherslum sem fram koma í drögum
velferðarráðuneytisins um geðheil
brigðisstefnu og aðgerðaráætlun.
Hvernig snýr fyrirhugað átak í
atvinnumálum fatlaðra að geðfötl
uðum?
Reykjavíkurborg hefur skip
að atvinnumálahóp sem hefur það
verkefni að marka stefnu í atvinnu
málum fatlaðs fólks. Á grundvelli
þeirrar stefnumótunar verður gerð
aðgerðaráætlun sem nær til allra
starfsstöðva borgarinnar. Þar sem
aðgerðaráætlunin hefur verið lögð
fram hefur velferðarráð falið vel
ferðarsviði að rýna í hvar hægt sé
að ráða inn fólk með fötlun. Í því
sambandi er mikilvægt að leiðbeina
þeim sem taka ákvörðun um slíkar
ráðningar svo hægt sé að vinna bug
á mögulegum ótta og fordómum
til að hægt sé að forðast árekstra.
Reynsla velferðarsviðs af ráðning
um fólks með geðfötlun í störf er já
kvæð enda mikilvægt að starfsstað
ir hafi á að skipa fjölbreyttum hópi
starfsfólks með margs konar mennt
un og reynslu.
Hver verður framtíð geðheilsu
stöðvarinnar í Breiðholti? Hefur
borgin á prjónunum að stofna fleiri
slíkar stöðvar til að tryggja jafn
ræði, ef ekki, af hverju ekki?
Geðheilsumiðstöðin í Breiðholti
mun starfa áfram. Borgin telur mik
ilvægt að stofna fleiri slíkar stöðv
ar í samstarfi við heilsugæslu höf
uðborgarinnar og ríkið. Í drögum
að þingsályktun um geðheilbrigðis
stefnu og aðgerðaráætlun er fjallað
um stofnun geðheilsuteyma og
hefur borgin sagt sig reiðubúna til
að koma að slíku samstarfi.
Hvenær er von á aðgerðaráætlun
við stefnu borgarinnar um þjónustu
við fatlað fólk á heimilum sínum?
Von er á að aðgerðaráætlun við
stefnu borgarinnar um þjónustu við
fatlað fólk á heimilum sínum verði
kynnt í lok í október nk.
Hefur Reykjavíkurborg kynnt
sér drög velferðarráðuneytisins að
þingsályktun um geðheilbrigðis
stefnu og aðgerðaráætlun? Ef svo
er – hver er afstaða hennar til stefn
unnar og/eða einstakra verkefna?
Já, Reykjavíkurborg hefur
kynnt sér drög velferðarráðuneyt
isins og lýsir ánægju með skýr og
vel mælan leg markmið í langflest
um tilvikum. Sérstaklega er ánægja
með að í drögum að stefnunni sé
lögð til lagasetning um samstarfs
samning um útfærslu samþættr
ar þjónustu milli ríkis og sveitarfé
laga. Einnig telur borgin að stofnun
geðheilsuteyma sé mjög uppbyggi
legt verkefni og tengist vel þeim
áherslum sem Geðheilsustöðin í
Breiðholti hefur starfað eftir.
Hvernig ætlar borgin að stuðla
að því að draga úr fordómum gagn
vart geðfötluðum?
Borgin hefur sett sér mannrétt
indastefnu þar sem m.a. kemur
fram að vinna skuli að fordóma
lausu andrúmslofti á vinnustöð
um þar sem fatlað fólk og ófatl
að vinni saman á jafnréttisgrunni.
Velferðar svið hefur á undanförnum
árum lagt metnað í að fræða starfs
menn um geðsjúkdóma og geðrækt
með áherslu á styrkleika einstak
linga óháð fötlun og stöðu.
Hvert telur borgin eiga að
vera hlutverk frjálsra félagasam
taka eins og Geðhjálpar gagnvart
sveitar félögum eins og borginni?
Reykjavíkurborg telur frjáls
félagasamtök gegna mikilvægu
hlutverki. Gerðir hafa verið sam
starfssamningar á grundvelli styrk
veitinga við frjáls félagasamtök
eins og Geðhjálp, Klúbbinn Geysi,
Vin, athvarf fyrir fólk með geðfötl
un, Hlutverkasetur og Hugarafl.
Samstarfssamningarnir eru gerð
ir á grundvelli ýmissa verkefna
t.d. starfsendurhæfingar og not
endasamráðs. Í samstarfi við Hlut
verkasetur hefur t.d. áhersla verið
á að raddir notenda fái að heyrast
í framkvæmd þjónustunnar. Hlut
verkasetur hefur einnig tekið þátt
í að fræða íbúa og fagfólk í búsetu
úrræðum um nálgun í valdeflingu.
Frjáls félagasamtök eru mikilvægir
samstarfsfélagar, eru talsmenn not
enda þjónustunnar og búa yfir upp
lýsingum sem mikilvægar eru fyrir
mótun stefnu og framkvæmdar
þjónustu borgarinnar.
Frjáls félagasamtök
mikilvægir samstarfsfélagar
Ilmur Kristjánsdóttir er formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Henni hefur komið ánægjulega á óvart hversu mikill kraftur og eldmóður einkennir þá sem
starfa að málaflokknum. Ilmur svarar hér nokkrum aðkallandi spurningum sem snerta málefni og framtíð fólks með geðræn vandamál.
Ilmur stendur hér með notendum Vinjar, sem er athvarf fyrir fólk með geðraskanir, rekið af Rauða krossinum í Reykjavík. Mynd/VilhelM
Eins og kemur
fram í skáldsögu
Einars Más, Englum
alheimsins, þá er
„Kleppur víða, ekki
aðeins spítali, ekki
aðeins höll heldur
mynstur ofið úr
þráðum svo fínum að
enginn greinir þá.“
FÖSTUDAGUR 9. okTóbeR 2015 3Geðhjálp l
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
2
-3
6
2
0
1
6
C
2
-3
4
E
4
1
6
C
2
-3
3
A
8
1
6
C
2
-3
2
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K