Fréttatíminn - 24.07.2015, Qupperneq 4
GRJÓNAGRAUTUR
alveg mátulegur
Nú einnig í litlum umbúðum– fullkominn skammtur fyrir einn
TILBÚINN TIL NEYSLU
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-1
3
9
7
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Norðlæg átt, eN hafgola S-til. Skyjað og
dálítl væta a-laNdS eN Skúrir v-til.
höfuðborgarSvæðið: Norðaustlæg átt
og bjartviðri. Milt í veðri.
hæg breytileg átt. Skýjað með köflum
og SíðdegiSSkúrir Sv-laNdS.
höfuðborgarSvæðið: Hafgola og
bjart Með köfluM. áfraM Milt.
NorðauStaNátt og léttSkýjað víða
v-laNdS. Skýjað eN þurrt a-laNdS
höfuðborgarSvæðið: NorðaN gola
og bjartviðri.
hægviðri
og síðdegisskúrir
Það eru engar stórkostlegar breytingar
á veðurlagi í nánd, en þó eru vísbend-
ingar um að aðeins taki að draga úr
vætu og kulda á austanverðu landinu
næstu viku., útlit er fyrir norðangolu
eða hafgolu, síðdegis-
skúri um landið sunnan
og vestanvert, en jafnvel
brotnar skýjahulan upp
og hleypir sólargeislum í
gegn um landið austan-
vert. Hitatölurnar eru
enn í lægri kantinum, 8
til 15 stig yfir hádaginn.
15
7 7
8
13
13
8 9
8
12
15
7 8
9
13
elín björk jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
12 mílur í land
Færeyska fiskveiðiskipið Næraberg var
stöðvað við tólf sjómílna línuna í vikunni
og meinað að halda til hafnar á íslandi.
sigla átti skipinu hingað til að sækja tólf
grænlenska sjómenn áður en haldið yrði
á veiðar. tæpt ár er liðið síðan meina átti
skipinu að kaupa vistir og olíu í íslenskri
höfn.
Seðlum rignir yfir
blatter
blaðamannafundur sepps blatter forseta
alþjóða knattspyrnusambandsins, tók
óvænta stefnu áður en fundurinn sjálfur
hófst í höfuðstöðvum fifa í Zürich. í þann
mund sem blatter ætlaði að hefja fundinn
stormaði enski grínleikarinn simon
brodkin, í hlutverki lee Nelson, upp að
blatter.
Þegar blatter óskaði eftir því að öryggis-
verðir fjarlægðu leikarann, grýtti brodkin
seðlabúnti fullu af eftirlíkingu dollara, yfir
blatter. blatter brást ókvæða við og töf
varð á fundinum vegna uppákomunnar.
Dunkin’ Donuts eldaðir
í klettagörðum
rekstraraðili Dunkin’ Donuts á íslandi
ætlar að reka eldhús í klettagörðum 6 þar
sem kleinuhringirnir verða gerðir tilbúnir
til sölu á veitingahúsum fyrirtækisins.
Þetta herma öruggar heimildir viðskipta-
blaðsins. Á dögunum var sótt um leyfi hjá
borgaryfirvöldum til að breyta innra skipu-
lagi hússins þannig að matarframleiðsla
geti farið þar fram. beiðnin var samþykkt.
93.226 manns
í vikunni áttust við knattspyrnuliðin
Barcelona og L.A. Galaxy í æfingaleik í
bandaríkjunum. aðsóknarmet var slegið
á leiknum, en 93.226 fylgdust með viður-
eigninni.
Maður
elskar að
hata strætó
og hatar að
elska hann.
neytendamál námsmönnum mismunað
Nemakort Strætó
eingöngu gild innan
höfuðborgarsvæðisins
Námsmenn sem búsettir eru
á landsbyggðinni en stunda
nám í höfuðborginni eiga
eingöngu kost á að kaupa
almenn kort en ekki sérstök
nemakort þar sem þau gilda
eingöngu á gjaldsvæði innan
höfuðborgarsvæðisins. Nemi
í Hí sem er búsettur í borgar-
nesi segir það stóran bita að
þurfa að greiða almennt verð,
tæpar 230.000 krónur, fyrir
9 mánaða strætókort. fulltrúi
hjá strætó segir það vera al-
farið í höndum sveitarfélaga
að semja um sérstök kjör fyrir
námsmenn sem búsettir eru
innan viðkomandi sveitarfé-
lags.
J ón Sigurður Snorri Bergsson stundar nám í hagfræði við Háskóla Íslands. Kærastan
hans er að hefja nám í Landbúnað-
arháskólanum á Hvanneyri í haust.
Saman eiga þau eins árs gamla
dóttur og ákváðu þau að setjast að
í Borgarnesi. „Það hentar okkur
best að búa í Borgarnesi upp á stað-
setningu skólanna okkar, leigu og
barnapössun að gera.“ Þegar Jón
Sigurður kynnti sér verð á strætó-
kortum komst hann að því að engin
sérkjör eru í boði fyrir námsmenn
sem búsettir eru á landsbyggðinni
en stunda nám í Reykjavík. Þar sem
Jón Sigurður þarf að ferðast milli
gjaldsvæða þarf hann að greiða
227.600 krónur fyrir 9 mánaða kort,
á meðan nemakortið kostar 46.700
krónur, en það gildir eingöngu inn-
an höfuðborgarsvæðisins. „Það er
vissulega stór biti að greiða tæpar
230.000 krónur í heilu lagi fyrir
strætókort, en þetta er alltaf ódýr-
ara en að keyra,“ segir Jón Sigurður.
Hann segir það þó óásættanlegt að
nemar á landsbyggðinni hafi ekki
möguleika á að kaupa kort á ódýr-
ari kjörum. „Maður elskar að hata
strætó og hatar að elska hann. En
við sitjum uppi með þetta fyrirtæki
og ég verð bara að kaupa kortið.
Þetta er samt dýrt og grautfúlt,“
segir Jón Sigurður, sem vonast eftir
að gefin verði út sérstök nemakort
fyrir námsmenn búsetta á lands-
byggðinni.
Strandar hjá sveitarfélögunum
Samkvæmt upplýsingum frá þjón-
ustuveri Strætó er það í höndum
sveitarfélaganna að koma til móts
við nemendur sem eru búsettir
innan viðkomandi sveitarfélags en
stunda nám á höfuðborgarsvæðinu.
Þjónustufulltrúi Strætó segir þó að
fyrirtækið sé opið fyrir samstarfi
við sveitarfélög þegar kemur að
sérkjörum fyrir nemendur. Dæmi
um slíkt samstarf sé nemakort fyr-
ir nemendur búsetta á Suðurnesj-
um. Strætó framleiðir kortin en öll
greiðsla fer fram í gegnum Sam-
band sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Það hafi hins vegar ekki komið til
tals að bjóða upp á nemakort sem
gilda á fleiri en einu gjaldsvæði.
erla maría markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Nemakort strætó gilda einungis innan höfuðborgarsvæðisins og nýtast því ekki
nemendum sem eru búsettir á landsbyggðinni en stunda nám í höfuðborginni. ekki
stendur til hjá Strætó bs að gefa út nemakort sem ná yfir fleiri en eitt gjaldsvæði.
Mynd/Getty
Nemakort: höfuðborgarsvæðið
Nemakort 18 + 46.700 kr.*
Nemakort 12-17 ára 19.900 kr.*
* gilda í eitt ár frá útgáfu
almenn kort: höfuðborgarsvæðið
1 mánuður (græna kortið) 10.900 kr.
3 mánuðir (rauða kortið) 23.900 kr.
9 mánuðir (bláa kortið) 56.900 kr.
almenn kort: akranes/borgarnes
1 mánuður (græna kortið) 21.800kr. / 43.600 kr.
3 mánuðir (rauða kortið) 47.800 kr. / 95.600 kr.
9 mánuðir (bláa kortið) 113.800 kr. / 227.600 kr.
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum:
Nemakort: 82.000 kr. önnin.
kortið er aðgengilegt nemendum búsettum á reykjanessvæðinu og
gildir innan svæðis og á höfuðborgarsvæðinu.
borgarbyggð:
ekki er boðið upp á sérstök nemakort sem tengja saman borgarbyggð
og höfuðborgarsvæðið. Hins vegar er boðið upp á tómstundaferðir
innan sveitarfélagsins.
akranes:
ekki er boðið upp á sérstök nemakort sem tengja saman akranes
og höfuðborgarsvæðið, en strætóferðir innan bæjarfélagsins eru
gjaldfrjálsar. ferðir á milli akraneskaupstaðar og höfuðborgarinnar
eru samkvæmt verðskrá strætó bs en niðurgreiðsla á ársgrundvelli
af hálfu akraneskaupstaðar er um 13 milljónir króna. ekki eru sérstök
afsláttarkjör fyrir námsmenn umfram þessa niðurgreiðslu.
árborg:
Námsmenn, með lögheimili í sveitarfélaginu árborg, sem skráðir eru
í nám við háskóla eða framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu fá 15%
afslátt af fargjöldum með strætó, kaupi þeir persónubundin íbúakort.
aðgangur námsmanna að strætókortum eftir búsetu:
4 fréttir Helgin 24.-26. júlí 2015