Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.07.2015, Síða 36

Fréttatíminn - 24.07.2015, Síða 36
36 matur & vín Helgin 24.-26. júlí 2015 -Toppurinn á ísnum FULLKOMINN FYRIR SÆLKERA með karamellufyllingu og ristuðum möndlum www.frittverdmat.is Ég vil vinna fyrir þig Hannes Steindórsson Löggiltur fasteignasali 699 5008 hannes@fastlind.is Heyrðu í mér og leyfðu mér að segja þér frá minni þjónustu. www.frittverdmat.is Ég vil vinna fyrir þig Hannes Steindórsson Löggiltur fasteignasali 699 5008 hannes@fastlind.is Heyrðu í mér og leyfðu mér að segja þér frá minni þjónustu.  Mintur blómstra bláum, fjólu­ bláum, bleikum og hvítum blómum. Þær sjást sjaldan í blóma. Blöðin geta verið ljós­ græn, dökkgræn, hrukkótt, ljósköntuð, oddmjó og bugðótt. Mintur eru einnig með dökkum brúnrauðleitum eða grænum stöngli.  Piparminta (Mentha piperita) og grænminta (Mentha spicata) eru algengastar. Mörg afbrigði eru komin út af þeim.  Mintur eru afskaplega lauslátar eins og áður kom fram, það ligg­ ur í sumum ættum plantna. Þær eiga auðvelt með að frjóvgast með ólíkum mintum af annarri tegund. T.d ef piparminta fjóvg­ ast með vatnamintu er ekki víst að fræin verði frjó.  Vatnaminta er villt og vex á Ís­ landi. Hún er mjög sjaldgæf og vex við hverasvæði á Vestfjörð­ um. Þegar hveragufan leggst yfir hana ilmar svæðið. Það er líklegt að ræktunarfólk hafi borið hana til landsins fyrir friðun hvera­ svæðanna.  Mintur eru notaðar á margvís­ legan hátt, þær eru kryddjurtir, lækningajurtir, notaðar í mat og drykki, ilmvötn, snyrtivörur, sælgæti, tannkrem og í tóbak.  Lækningaeiginleikar mintunnar felast í að hún hjálpar til við melt­ inguna, er notuð við hausverk og auðvitað notuð í munnskol.  Minta er tilvalin í te enda mikið notuð sem slík í arabískum lönd­ um. Hún er notuð í sósur eins og tzatziki og í kryddsmjör. Einnig til að marínera kjöt og fisk. Hún er tilvalin sem krydd í meðlæti eins og hrísgrjón, kuskus, kartöflur, salat og baunamauk ( t.d grænar baunir). Mintan er einnig fín í eftirrétti eins og piparmintuís og súkkulaðikonfekt. Hér eru nokkrar uppskriftir til að gefa þér hugmyndir um hvernig þú getur nýtt mintuna. Fengið af vefnum ibodinatturunnar.is Mintu í öll mál E r minta bara minta? Nei það eru til margar mismunandi mintur: piparminta, eplaminta, grænminta, ananasminta, basilíkuminta, jarðarberja­ minta, hrokkinminta, vatnaminta svo fáar séu nefndar. Að þekkja mis­ munandi mintur getur verið ansi flókið mál. Jafnvel fyrir grasafræðinga. Eina leiðin til vita hvort mintan er sú sem þú vilt rækta eða borða er að smakka á henni. Appelsínu-mintu- granatepla-salat með valhnetum 5-6 stórar appelsínur 1 stórt granatepli, fræin tekin úr og allur safi geymdur 2 msk ólívuolía 6 msk nýkreistur appelsínusafi svartur pipar 15 g mintulauf Handfylli af valhnetum - saxaðar Afhýðið appelsínurnar með beittum hníf. Skerið alveg inn að kjöti (allt hvítt í burtu). Skerið í sneiðar, þversum og geymið allan safann sem kemur úr appelsínunum. Raðið sneiðunum á stóran disk og stráið granateplafræjunum yfir. Hrærið ólívuolí- unni og appelsínusafanum - og granatepla- safanum sem kom þegar þið tókuð fræin úr - og kryddið eftir smekk. Hellið yfir salatið. Dreifið mintulaufunum yfir og loks valhnetunum og berið fram. Jómfrúar mojito ½ lime 1 msk sykur eða hrásykur 4 mintublöð (piparminta) ¼ lítri sódavatn Setjið limebátana í stórt glas ásamt sykrinum og pressið allan safa úr með pinna eða skeið. Hrærið vel í þar til að sykurinn er uppleystur í safanum. Bætið svo myntunni við og pressið hana aðeins. Hellið svo sódavatninu yfir. Jógúrtsósan Tzatziki 250 gr. grísk jógúrt (má nota skyr) 1 búnt grænminta eða 20-40 laufblöð ¼ gúrka 2-3 hvítlauksrif Salt og pipar eftir smekk Saxið mintuna smátt, rifið gúrku og hvítlauksrif niður. Hrærið öllu saman

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.