Fréttatíminn - 24.07.2015, Side 7
5%
10%
15%
Frjálsi 1 Frjálsi ÁhættaFrjálsi 2 Frjálsi 3
14,7%
10,6%
11,5%
8,4%
10,6%
15,0%
6,6% 6,8%
Ávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-0
1
4
5
Margverðlaunaður
lífeyrissjóður
Frjálsi lífeyrissjóðurinn
Frjálsi lífeyrissjóðurinn var á síðasta ári valinn besti lífeyrissjóður Evrópu í sínum stærðarflokki í
samkeppni á vegum fagtímaritsins Investment Pension Europe. Sjóðurinn var einnig valinn besti
lífeyrissjóður Evrópulanda með færri en eina milljón íbúa annað árið í röð. Á undanförnum árum hefur
sjóðurinn hlotið fjölmörg alþjóðleg verðlaun sem endurspegla sterka stöðu sjóðsins og árangur hans.
Ef þú hefur frjálst val um hvar þú ávaxtar skyldulífeyrissparnaðinn þinn og vilt faglega stýringu
þá er Frjálsi lífeyrissjóðurinn góður kostur. Jafnframt stendur öllum til boða að ávaxta viðbótar-
lífeyrissparnað sinn hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Þú færð ítarlegar upplýsingar um Frjálsa lífeyrissjóðinn í næsta útibúi Arion banka, á
frjalsi.is, með því að senda fyrirspurn á lifeyristhjonusta@arionbanki.is eða í síma 444 7000.
Nafnávöxtun 30.06.2014 – 30.06.2015
5 ára meðalnafnávöxtun tímabilið 30.06.2010 – 30.06.2015
Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um ávöxtun í
framtíð. Fimm ára ávöxtunartölurnar sýna meðalnafnávöxtun fyrir
tímabilið 30.06.2010-30.06.2015 en ávöxtunin er mismunandi á
milli ára. Frekari upplýsingar um Frjálsa lífeyrissjóðinn, þ.á.m. um
ávöxtun hvers árs, samþykktir sjóðsins o.fl., má nálgast á frjalsi.is.
Arion banki er rekstraraðili Frjálsa lífeyrissjóðsins.
Tollalækkanir rétt skref
Margrét Sanders, formaður Samtaka
verslunar og þjónustu, óttast að fataverslun
á Íslandi sé deyjandi atvinnugrein. Hún
fagnar fyrirhuguðu afnámi tolla og segir
það skref í rétta átt. Í byrjun júlí greindi
fjármálaráðherra frá afnámi tolla á fatnaði
og skóm um næstu áramót. Margrét segir
ekki víst að tollalækkunin dugi til að rífa
upp fataverslun hér á landi. Aðrir þættir,
eins og lækkun virðisaukaskatts, þurfi að
fylgja í kjölfarið. Fataverslun sé næstum því
deyjandi atvinnugrein hér á landi. „Það sem
við höfum áhyggjur af er að á hverju einasta
ári er verslun að minnka hérna heima.
Kannanir hafa sýnt okkur að hún hefur
minnkað töluvert. Þessi verslun er að aukast
almennt en við erum ekki að sjá hana og það
þarf meira til ef hún á ekki að minnka enn
frekar,” segir Margrét.
Íslensk stjórnvöld hafa
lýst yfir vilja sínum við
ráðherraráðið í Brussel til
að taka á móti 50 flótta-
mönnum samtals á þessu
og næsta ári. Ísland verður
þannig þátttakandi í sam-
vinnu Evrópuþjóða um
móttöku kvótaflóttafólks.
Yfirlýsingin er birt með
fyrirvara um samþykki
Alþingis fyrir fjármögnun
verkefnisins.
Móttaka fólksins verður
ákveðin í samráði við
Flóttamannastofnun Sam-
einuðu þjóðanna, eins og
ávallt er gert þegar tekið er
á móti kvótaflóttafólki, en
vilji stendur til þess að létta
á miklum straumi flótta-
manna til Grikklands og
Ítalíu.
Eygló Harðardóttir,
félags- og húsnæðismála-
ráðherra, segir bæði rétt
og skylt að Íslendingar
leggi lóð á vogarskálarnar:
„Vandi þessa fólks kemur
okkur öllum við. Þær þjóðir
sem geta verða að axla
ábyrgð og gera sitt til að
létta á vandanum.“
Hér á landi annast flótta-
mannanefnd undirbúning
að móttöku kvótaflóttafólks
í samvinnu við einstök
sveitarfélög hverju sinni,
auk þess sem Rauði kross
Íslands hefur hlutverki að
gegna.
Sýrlensk börn í flóttamanna-
búðum í norðurhluta landsins.
Ljósmynd/Nordic Photos/Getty Images
Atvinnuleysi
Atvinnuleysi í júní mældist
2,9 prósent samkvæmt
Vinnumarkaðs rannsókn Hagstofu
Íslands. Horfa
þarf aftur til júní
2008 til að finna
hærra hlutfall
starfandi fólks en
það mældist 84,1
prósent. Atvinnu-
þátttaka jókst um
1,3 prósentustig
frá því í maí. Þetta
kemur fram á vef
Hagstofunnar.
Alls voru 5.900
atvinnulausir í
júní - 3.800 karlar
og 2.100 konur. Um 13,4 prósent
eru utan vinnumarkaðar, 11.900
karlar en 19.400 konur.
2,9%
ATVinnUleySi Í
júnÍ 2015
Vinnumarkaðs-
rannsókn
Hagstofa
íslands
Fáir í bíó
Aðsókn á íslenskar kvikmyndir hefur verið
heldur dræm það sem af er ári og þarf
kraftaverk til að ná aðsókn síðasta árs.
Verðlaunamyndirnar Fúsi og Hrútar hafa
ekki náð að rjúfa 20 þúsund gesta múrinn.
Sjö íslenskar kvikmyndir hafa verið frum-
sýndar fyrstu sex mánuði ársins.
Þetta eru kvikmyndirnar Hrútar, Fúsi, Albat-
ross, Webcam, Bakk, Austur og Blóðberg.
Hrútar var valin besta myndin í Un Certain
Regard-flokknum á Cannes og Fúsi sópaði
til sínum verðlaunum á Tribeca-kvikmynda-
hátíðinni í new york.
nýr kjarasamningur
hjá Alcoa Fjarðaáli
Nýr kjarasamningur til fimm ára var undir-
ritaður hjá Alcoa Fjarðaáli 17. júlí á milli AFls
starfsgreinafélags, Rafiðnaðarsambands
Íslands og Alcoa Fjarðaáls. Samningurinn
gildir til fimm ára, frá 1. mars 2015 að
telja. Fram kemur í tilkynningu að helstu
breytingar í nýjum samningi felist í breyttu
vinnutímafyrir komulagi. Þannig mun t.d.
vinnustundum vaktavinnufólks á mánuði
fækka, tekinn verður upp fæðingarstyrkur
til starfsmanna í fæðingar- og foreldraorlofi
og grunnlaun munu hækka. einnig er í samn-
ingnum kveðið á um viðbætur og hækkanir
á launatöflum, árlega hækkun desember- og
orlofsuppbóta á samningstímanum og samið
er um eingreiðslu til starfsmanna.
FlóttaFólk viljayFirlýsing stjórnvalda
50 flóttamenn á tveimur árum
fréttir 7 Helgin 24.-26. júlí 2015